23.04.1986
Neðri deild: 97. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4545 í B-deild Alþingistíðinda. (4332)

448. mál, málefni Arnarflugs hf.

Jón Baldvin Hannibalsson:

Herra forseti. Þetta mál er þess eðlis að ríkisstj. og sá þingmeirihluti sem hún styðst við verða ein að bera ábyrgð á þeirri ákvörðun, sem hefur þegar verið tekin, að veita þessa ríkisábyrgð til Arnarflugs. Málið er líka þess eðlis að fæst orð bera minnsta ábyrgð úr þessum ræðustól. Fyrirtækið er þannig statt að það skiptir sköpum næstu dagana hvernig til tekst um söfnun hlutafjár sem er eitt af þessum skilyrðum.

Að því er varðar spurninguna um hvort stjórnarandstæðingar geti að fengnum nægum upplýsingum gerst meðábyrgir kynni það að vera við aðrar kringumstæður, þ.e. ef einhver tími væri til að fara ofan í saumana á þeim yfirborðskenndu upplýsingum sem nefndar hafa verið nú þegar. Þar dugar ekki að byggja á upplýsingum frá aðilunum sjálfum um einföldustu undirstöðuatriði eins og eiginfjárstöðu, rekstrarafkomu á síðasta ári, stöðu ríkisábyrgða eða skuldastöðu gagnvart erlendum aðilum. Það sem skiptir sköpum er að kanna fram í tímann rekstrarhorfur og þar með þær upplýsingar sem hægt væri að treysta til að álykta eitthvað um hvort þessi aðgerð er líkleg eða ekki til þess að duga. Auðvitað er mönnum í mun að reyna að viðhalda samkeppnisstöðu, en ef ekki eru forsendur fyrir því að það sé hægt er sú skoðun ekkert annað en frómar óskir og óskhyggja.

Þetta mál fer nú til fjh.- og viðskn. og vera má að þar verði lagðar fram eitthvað haldbetri upplýsingar en nú þegar liggja fyrir. Þangað til það verður skoðað er skynsamlegt að segja ekki mikið meira. En fyrir fram liggur þetta mál þannig fyrir að ríkisstj. og þingmeirihluti hennar verða ein að taka þá ákvörðun ef þau telja að þeim sé fært á þessum tíma að fá í hendur upplýsingar sem eru marktækar til að byggja á einhverjar raunverulegar alvarlegar ákvarðanir.