23.04.1986
Neðri deild: 97. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4548 í B-deild Alþingistíðinda. (4341)

341. mál, sala jarðarinnar Streitis

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Það hefur orðið að samkomulagi milli mín og frsm. sem skráður er á nál. minni hluta að ég mælti fyrir málinu, enda er ljóst að hér er mikið forgangsverkefni á ferðinni og mikið liggur nú við að þetta mál nái hér fram að ganga, að ætla mætti, að selja jörðina Streiti fyrir austan. Það hefur orðið niðurstaða minni hl. landbn. að leggjast gegn þessu frv. og eins og segir í nál. munum við streitast móti afgreiðslu málsins og leggjum til að það verði fellt.

Það er vitnað í rökstuðning á nál. minni hl. hv. landbn. Ed. Þar segir m.a., herra forseti, að ekkert liggi fyrir um það að væntanlegur kaupandi ætti að flytjast á jörðina og setjast þar að, enda eru fyrirvarar í samþykktum hvað þetta atriði varðar. Það er að okkar mati algerlega óeðlilegt að gefa slíka lagaheimild á meðar þessi vissa liggur ekki fyrir hendi og óeðlilegt að afgreiða lög þó svo að einhverjir fyrirvarar liggi fyrir hendi í umsögnum einstakra aðila. Það hlýtur að þurfa að vera einhver stefna um það í hvaða tilfellum það er réttlætanlegt að selja land úr opinberri eigu, úr eigu ríkis eða sveitarfélaga eða annarra opinberra aðila, til einstaklinga ef ekki er þar um að ræða að viðkomandi einstaklingar ætli beinlínis að nytja landið til búskapar og setjast þar að. Það er a.m.k. mín afstaða, herra forseti, að ef svo er ekki þá sé miklu eðlilegra að landið sé í opinberri eða sameiginlegri eigu landsmanna og einkaeignarréttur á stórum landsvæðum í slíkum tilfellum óeðlilegur.

Hér er um það að ræða að einstaklingi, sem búsettur er hér á höfuðborgarsvæðinu, verði leyft að kaupa þessa jörð án þess að það liggi nokkuð fyrir um það að hann hyggist setjast þar að og því er ég andvígur. Auk þess mætti nefna það varðandi þá starfsemi sem talin er upp af hálfu væntanlegs jarðarkaupanda, þ.e. að hann hyggist nytja jörðina fyrir æðarfugl, angórakanínur, garðrækt og fleira, eins og sagt er í nál. minni hl. landbn. Ed., sem ég treysti að hafi kannað það atriði gaumgæfilega, að ekkert hafi komið fram sem bendi til þess að jörðin henti sérstaklega til þessara nytja. Væntanlega gæti þessi búrekstur a.m.k. að verulegu leyti farið fram annars staðar og óþarfi að selja heila jörð fyrir austan undir þetta. (HBI: Svo er kanínurækt óarðbær í sjálfu sér.) Síðan kemur það fram hér hjá skrifara deildarinnar að kanínurækt sé óarðbær í sjálfu sér og ekki sé þar af leiðandi ástæða til að ýta mönnum út í hana.

Þetta hefur orðið niðurstaða minni hl. landbn., að leggjast alfarið gegn því að þetta frv. verði að lögum og að streitast gegn afgreiðslu þess. Undir nál. rita Jón Baldvin Hannibalsson, Eggert Haukdal og Steingrímur J. Sigfússon.