23.04.1986
Neðri deild: 97. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4549 í B-deild Alþingistíðinda. (4343)

341. mál, sala jarðarinnar Streitis

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Það líður nú óðum að þingslitum og mér skilst að menn séu hér í óða önn að afgreiða þau mál sem mest sé nauðsyn á að afgreiða áður en þingið fer heim. Hér er komið frv. frá Ed. þar sem lagt er á það höfuðkapp að selja jörðina Streiti í Breiðdal í Suður-Múlasýslu. Það stendur nú svo í íslenskum landbúnaði í dag að vonandi fást þeir fjármunir sem gera það kleift að hægt sé að halda í byggð þeim jörðum sem í byggð eru. En litlar líkur eru á að fjármunir séu til staðar til að hefja uppbyggingu eyðibýla í stórum stíl. Hitt er þó ekki síður undrunarefni að ef maður les hér á bls. 2 það sem fram kemur um þá starfsemi sem ætlunin er að hafa á jörðinni þar til að uppbyggingu er lokið, þá hnýtur maður um það að vissulega er hægt að hirða um æðarvarp og stunda garðrækt án þess að hafa þar vetursetu. En hvernig það er hugsað að hafa þar kanínurækt án þess að hafa þar vetursetu, fæ ég ekki skilið, nema hugsunin sé að sleppa þeim á beit og láta ráðast hvað lifir um vorið. (HBl: Það voru lengi villtar kanínur í Laxárhólma.) Ég heyri að hv. 2. þm. Norðurl. e. telur að fordæmi séu fyrir slíkri kanínurækt, en mér er ekki ljóst hvort það fordæmi er til fyrir austan.

Ég hygg að það skjóti dálítið skökku við að setja það annars vegar í almenn lög að menn þurfi að sitja í tíu ár á ríkisjörðum áður en þeir eigi rétt á að fá þær keyptar og að þingið taki nú á seinasta degi þingsins ákvörðun um að selja einstaklingi ríkisjörð til búsetu e.t.v. tíu árum áður en hann hyggst setjast þar að því að eins og hér er tekið fram verði bæði kostnaðarsamt og tímafrekt að byggja jörðina upp. Þarna gæti orðið um 20 ára mismunun að ræða á milli þeirra sem þingið vill að hafi forgangsaðstöðu í svona máli og þeirra sem fara hina venjulegu braut. Ég verð því að segja eins og er að allmerkilegur má sá maður vera sem slíka þjónustu á að fá hér í þingsölum.

Ég hygg að hér hafi nefndarmenn hlaupið á sig, hér hafi þeir flýtt sér einum um of. Það er alveg fráleitt að annars vegar séu ákvæði í almennum lögum á þann veg sem ég gat um áðan og hins vegar taki menn sig svo til með undantekningaraðgerðum að afgreiða mál á þann hátt sem hér er lagt til.

Ég hnaut einnig um það að sá aðili, sem nú sækir eftir því að fá jörðina keypta, átti kost á því að fá hana til ábúðar 1983. En eftir að hafa skoðað jörðina treysti hann sér ekki til að taka hana til ábúðar. Þó er það alveg öruggt mál að hann hefði getað fengið jörðina leigða til ábúðar án þess að þurfa að skuldbinda sig til að sitja á henni fyrstu árin hafi húsakostur verið á því stigi að vonlaust væri að setjast þar að. (HBI: Hvað á þm. við með því að sitja á jörðinni?) Það er rétt að hið venjulega orðalag er „að sitja jörðina“ og skal það tekið til greina.

Ég rek einnig augun í það að þessi jörð er nytjuð af öðrum aðila. Hún er nytjuð af Einari Árnasyni í Felli. Jarðanefnd setur þann fyrirvara að þessum Einari Árnasyni í Felli verði leigðar þær landsnytjar sem verðandi kaupandi telur sig ekki þurfa eða þarf ekki að nota til eigin búrekstrar. Nú sýnist mér að það geti orðið mjög umdeilt atriði. Ég veit bara ekki til þess að jarðir hafi verið seldar af hálfu ríkisins með þeirri kvöð að einhverjum mönnum, sem eru nú dauðlegir, séu um aldur og ævi leigðar þar landsnytjar. Það væri dálítið erfitt að ganga frá því og mikil spurning hvernig hæstv. fjmrh. gengi frá því ef á miðilsfundi yrði leitað á hans fund og óskað eftir því að farið yrði eftir lagabókstafnum í þessu efni.

Mér sýnist að allur málatilbúnaður í þessum efnum sé alveg furðulegur þó að ekki sé meira sagt. Auðvitað er það einfalt mál, ef maður les þær umsagnir sem hér eru, að jarðanefnd er í reynd andvíg þessu tiltæki. Það blasir alveg við. Hún telur þetta alveg fráleitt mál. Það hefur hins vegar verið haldið áfram að nudda í henni þar til hún telur að það sé orðið sitt hlutverk að leggja til að mönnum séu seldar jarðir en öðrum aðilum áskilinn réttur til að fá þar landnytjar. (PJ: Það er tómt rugl.) Tómt rugl. Það er vel ef hv. 1. þm. Norðurl. v. er farinn að hugsa um málið. Hann virðist ekki hafa gert það til þessa. Hann virðist hafa farið á hundavaði yfir þetta mál, því miður. Ég vil, með leyfi forseta, lesa hér það sem stendur á 3. bls. í frv.:

„Kaupandi, Magnús Þorleifsson, skuldbindi sig til að lána eða leigja Einari Árnasyni í Felli eða öðrum, eftir tillögum hreppsnefndar Breiðdalshrepps, þær landsnytjar sem hann þarf ekki að nota til eigin búrekstrar og gefi skriflegt loforð eða yfirlýsingu um það mál.“

Það fer ekki á milli mála að það er ákveðið að halda vissum kvöðum í þessum efnum. Ég hygg að það hljóti að verða umhugsunarefni hvort menn vilja þá taka ákvarðanir um að fella úr gildi hinar almennu reglur sem gilda um það hvenær ábúandi eigi rétt á að fá keyptar jarðir. Mér sýnist margt þarfara á seinustu dögum þingsins en að vinna að afgreiðslu frumvarpa sem jafnhroðvirknislega hefur verið staðið að og því máli sem hér er til umræðu.

Umr. frestað.