23.04.1986
Neðri deild: 99. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4555 í B-deild Alþingistíðinda. (4358)

414. mál, Viðey í Kollafirði

Frsm. meiri hl. (Halldór Blöndal):

Herra forseti. Frv. þetta fjallar um það að heimila ríkisstj. að afhenda Reykjavíkurborg að gjöf til eignar og umráða eignarhluta ríkisins í Viðey í Kollafirði, þar með talin hvers kyns mannvirki. Er afhendingin háð því skilyrði að Reykjavíkurborg taki að sér og kosti verndun þeirra minja sem eru á eynni og afhentar eru.

Meiri hl. menntmn. mælir með samþykki þessa frv., enda er sú gjöf, sem hér um ræðir, höfðingleg og virðuleg í senn.