23.04.1986
Efri deild: 91. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4557 í B-deild Alþingistíðinda. (4364)

448. mál, málefni Arnarflugs hf.

Fjmrh. (Þorsteinn Pálsson):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um málefni Arnarflugs. Ríkisstj. tók ákvarðanir um það í gær að tillögu samgrh., sem um nokkurt skeið hefur fjallað um málefni þessa fyrirtækis, að leita eftir heimild til ríkisábyrgðar. Meginefni frv. felst í því að fjmrh. yrði heimilt að veita Arnarflugi sjálfskuldarábyrgð fyrir láni sem tekið yrði til að bæta greiðslustöðu fyrirtækisins. Lánið má samkvæmt frv. nema allt að 2,5 millj. bandaríkjadala eða jafnvirði þeirrar fjárhæðar í íslenskum krónum. Jafnframt yrði ríkissjóði heimilt að taka þátt í greiðslu vaxta af láninu.

Svo sem kunnugt er hefur Arnarflug verið rekið með allmiklu tapi undanfarin ár þannig að bókfært eigið fé fyrirtækisins um síðustu áramót var neikvætt sem nemur umtalsverðum fjárhæðum. Bráðabirgðauppgjör endurskoðenda hefur legið fyrir og verður að sjálfsögðu til athugunar í þeirri nefnd sem fær málið til meðferðar. Fullnaðaruppgjör á reikningum fyrirtækisins liggur hins vegar ekki fyrir enn, en stöðu fyrirtækisins má glöggt ráða af því bráðabirgðauppgjöri sem fyrir liggur.

Það er nokkuð óvenjulegt í þessu máli að Arnarflug hf. getur ekki lagt fram venjubundnar tryggingar fyrir ríkisábyrgð á lánum utan réttindi sín samkvæmt kaupleigusamningi um Boeing 737 flugvél félagsins.

Það er erfitt á þessari stundu að áætla verðmæti þessara réttinda, en þau felast einkum í því að fyrirtækið á samkvæmt samningi rétt til þess að kaupa flugvélina fyrir um 4,5 millj. bandaríkjadala eftir u.þ.b. þrjú ár. Markaðsverð flugvéla af þessari gerð er að sögn forráðamanna Arnarflugs talið vera 8-9 millj. bandaríkjadala. Á móti kemur að standa verður undir leigugreiðslum fram að þeim tíma að kaupréttur verður virkur, en miðað við núverandi aðstæður stendur þó eftir að ætla má að nokkur verðmæti séu fólgin í því að geta nýtt sér þennan kauprétt þegar þar að kemur. Rétt er þó að taka fram að það verður ekki einfalt mál að ganga frá viðkomandi tryggingum fyrir ríkisábyrgð í réttindum samkvæmt slíkum samningi. Besta tryggingin sem ætla má að út úr þessu geti fengist er sú að fengið verði samþykki leigusala og annarra hlutaðeigandi samþykktaraðila fyrir því að Ríkisábyrgðasjóður geti gengið inn í réttindi og skyldur samkvæmt samningnum hvenær sem er leigutímans, verði þess talin þörf. Og verður unnið að því að ganga frá tryggingum með þeim hætti.

Af hálfu ríkisstj. er þessi ríkisábyrgð hugsuð sem einn þáttur í aðgerðum til að koma fjárhag fyrirtækisins á réttan kjöl svo það geti starfað áfram. Fyrir því eru talin rök að nauðsynlegt hljóti að teljast að samkeppni innlendra fyrirtækja sé fyrir hendi í millilandaflugi, þótt á mismunandi flugleiðum sé, og fyrir því er þetta frv. lagt fram.

Frv. gerir ráð fyrir því að heimild til ríkisábyrgðar sé bundin mjög ákveðnum skilyrðum. Í fyrsta lagi er nauðsynlegt að auka mjög verulega eigið fé fyrirtækisins og því er gerð krafa um að það verði aukið um a.m.k. 95 millj. kr. Þar sem ljóst er að hlutafjárloforð verða ekki greidd strax að fullu þykir nauðsynlegt að setja það skilyrði einnig að sá hluti hlutafjárloforðanna sem ekki greiðist þegar í stað verði verðtryggður.

Þá er gert ráð fyrir því að ríkissjóður geti, eins og ég hef áður sagt, gengið inn í kaupleiguréttindi varðandi þá flugvél sem um ræðir og flugfélagið hefur á kaupleigu. Er gert ráð fyrir að leitað verði samþykkis eiganda flugvélarinnar fyrir því að Ríkisábyrgðasjóður geti gengið inn í bæði réttindi og skyldur samkvæmt kaupleigusamningnum, ef nauðsyn krefur.

Loks er gert ráð fyrir því að öll opinber gjöld við ríkissjóð sem í vanskilum eru verði greidd upp. Hv. Nd. gerði þá breytingu á þessu skilyrði í meðferð málsins í deildinni að heimilt er að semja um að þessi gjöld verði greidd á fjórum árum og fjmrh. semji um greiðsluhætti og greiðslukjör. Önnur efnisbreyting felst ekki í þessari breytingu. Það eru áfram skýlaus skilyrði að öll opinber gjöld ríkissjóðs, sem eru í vanskilum, verði greidd upp ásamt með viðurlögum. Og í ákvæðinu felast engar tilslakanir í þessu efni.

Nauðsynlegt þótti að setja þessi ákveðnu skilyrði fyrir því að ríkisábyrgð yrði veitt samkvæmt þeim heimildum sem frv. greinir.

Ég sé ekki, frú forseti, að ástæða sé til að fara fleiri orðum um frv. og legg til að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.