23.04.1986
Efri deild: 91. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4563 í B-deild Alþingistíðinda. (4369)

448. mál, málefni Arnarflugs hf.

Fjmrh. (Þorsteinn Pálsson):

Frú forseti. Hv. 11. þm. Reykv. spurði að því hvers vegna einungis hefði verið farin hálf leiðin að því marki að hjálpa fyrirtækinu til þess að komast á réttan kjöl. Ég tel að það sé matsatriði hversu miklar aðgerðir þarf að gera til þess að tryggt sé að fyrirtækið geti haldið áfram öruggum rekstri. Frv. þetta gerir ráð fyrir því að veita ríkisábyrgð upp að ákveðnu marki. Það er ljóst að lánafyrirgreiðsla ein sér hjálpar ekki fyrirtækinu. Þar þarf meira að koma til og fyrst og fremst aukið eigið fjármagn. Ríkissjóður er ekki tilbúinn til þess að leggja fram fjármagn sem eigið fé inn í fyrirtækið eða taka á þann þátt í rekstri þess að gerast aðili að fyrirtækinu. Fyrir því kom ekki annað til álita en að veita ríkisábyrgð upp að ákveðnu marki og þá var niðurstaðan að það væri rétt að gera það gegn ákveðnum skilyrðum sem ég ætla ekki að rekja hér.

Það sem hugsanlega mætti segja að kæmi til álita, ef menn vildu gera ríkari kröfur en þetta frv. gerir ráð fyrir, væri að krefjast þess að hluthafar tryggðu að meira kæmi af nýju hlutafé inn í fyrirtækið en þær 95 millj. sem frv. gerir ráð fyrir. Það væri eina hugsanlega atriðið ef menn kæmust að þeirri niðurstöðu að nauðsynlegt væri að gera ríkari kröfur. Það var hins vegar mat ríkisstj. að eðlilegt væri að staðnæmast við þetta mark og ætlast til þess og setja það skilyrði fyrir ríkisábyrgðinni að hluthafar tryggðu að 95 millj. kr. kæmu inn í auknu hlutafé. Það er ljóst að nýtt hlutafé, nýtt eigið fé, verður að koma inn í fyrirtækið því að það lifir ekki einungis á auknum lánum. Þetta vildi ég einungis taka fram vegna þeirrar fsp. sem fram kom af hálfu hv. 11. þm. Reykv. (SDK: Það var tryggingin um kaupleigusamninginn.) (KSG: Ég spurði um það líka.)

Frú forseti. Það fór fram hjá mér að tveir hv. þm. munu hafa innt eftir því hvort fordæmi væru fyrir því í veröldinni að tekið væri veð í kaupleigusamningi án þess að kaupleigusali vissi um það. Þetta frv. gerir ráð fyrir því að kaupleigurétturinn eða kaupleiga Arnarflugs sé til tryggingar þeirri ríkisábyrgð sem hér er veitt og það er tekið fram í 2. gr. frv. að fjmrh. ákveði nánar framkvæmd þessa ákvæðis og setji þá skilmála sem nauðsynlegir kunna að teljast. Og í því sambandi segir í athugasemdum með frv. að nauðsynlegt kunni að verða að leitað verði eftir samþykki eiganda flugvélarinnar fyrir því að Ríkisábyrgðasjóður geti gengið inn í réttindi og skyldur samkvæmt kaupleigusamningnum. Það kann að vera að hagsmunir Ríkisábyrgðasjóðs verði ekki nægjanlega tryggðir nema þessi krafa verði gerð og því þykir eðlilegt að þessi heimild sé fyrir hendi. Ég kann auðvitað ekki skil á því hvort fordæmi eru til þess annars staðar frá eða frá öðrum löndum að slík skilyrði séu sett. En það þótti rétt að hafa ótvíræða heimild fyrir því að fjmrh. gæti sett slíkt skilyrði fyrir þeirri tryggingu sem Ríkisábyrgðasjóður hefur í þessum kaupleigusamningi.