12.11.1985
Sameinað þing: 14. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 537 í B-deild Alþingistíðinda. (437)

1. mál, fjárlög 1986

Kristín S. Kvaran:

Virðulegi forseti. Það verður að segjast eins og er að það frv. sem er til umræðu í dag á Alþingi er hreinasta vanvirða við þjóð og þing. Það er til háborinnar skammar að hér skuli vera lagt fram frv. til fjárlaga af fyrrv. hæstv. fjmrh. með fororði núverandi hæstv. fjmrh. um að það sé ekkert að marka það.

Sjónvarpið ber það inn í stofu í fyrrakvöld að hugsanlega verði um að ræða niðurskurð á þessu frv. sem nemi einum milljarði króna og því næst kemur Dagblaðið í gær og ber að enn þá vanti 6-700 milljónir á að endar nái saman. Ég vek athygli á því að enn þá er ekki haft samráð við stjórnarandstöðuna. Svo er það ekki fyrr en klukkan er langt gengin í eitt í nótt að inn um bréfalúguna er laumað niðurskurðarplaggi hæstv. fjmrh.; það kemur rétt eins og þjófur að nóttu. Þetta er e.t.v. gert til þess að hægt sé að segja sem svo að samráð hafi verið haft og breytingarnar lagðar fyrir alþingismenn í gær.

Ekki veit ég hvað lá að baki þessa skrípaleiks, en það er annað sem mig fýsir að fá svör við. Er meiningin að ræða þetta plagg í þátíð eða nútíð? Eða eigum við e.t.v. að reyna að horfa til framtíðar? Er það hægt með þetta plagg, sem á að heita fjárlagafrv. ársins 1986, í höndunum? Frv. um það hvernig fjárlögin okkar líta út næsta fjárhagsár. Frv. sagði ég, en verst er að það vantar allan frumleika í þetta plagg; það vantar allan ferskleika. Þetta er sama plaggið og við fjölluðum um í fyrra og árið þar áður. Bara með framreiknuðum tölum. Átti ekki fólk svona frekar von á því að fá að líta nýjan og ferskan stíl nú þegar við höfum fengið nýjan og ungan fjmrh. við völd? En hvað skeður? Hann apar allt vendilega upp eftir fyrrv. fjármálaráðherrum þessa lands og það eina sem gerst hefur er framreikningur.

Bandalag jafnaðarmanna hefur margoft bent á hve hættuleg þessi þróun er sem viðgengist hefur þar sem er sjálfvirknin í gerð fjárlaganna. Hér tíðkast það sem sagt að fjárlög fyrra árs eru tekin og með einföldum framreikningi látin sýna tölur sem gilda eiga næsta ár. Í besta falli er dregið lítils háttar úr framkvæmdum við stóra pósta eða þeim frestað. Síðan eru aðrir bráðnauðsynlegir liðir teknir út að vanda. Það er lífsspursmál fyrir fólkið sem byggir þetta land að staðinn sé dyggur vörður um það kerfi sem varðar velferð einstaklinga og fjölskyldna þeirra og menntun og heilbrigði. Með þeim stjórnarháttum sem nú eru efst á baugi hefur okkur verið ýtt út í þær þrengingar sem einkenna samfélagið.

BJ vill benda á og vara við hverjir það eru sem eru fórnarlömb þessarar stjórnarstefnu. Það er fólkið sem er að missa allt sitt á nauðungaruppboðunum; það eru menntastofnanir og dagvistarheimili sem eru unnvörpum að missa hæfileikaríkt fólk til starfa á hinum frjálsa vinnumarkaði sem í öllum tilfellum borgar betur; það eru fjölskyldurnar sem lifa harmleikinn í kringum vímuefnaneyslu ástvina sinna sem eykst stöðugt og óhugnanlega - harðsvíraðir kaupsýslumenn á því sviði versla í rólegheitum með mannlíf á meðan lítið sem ekkert er aðhafst af hálfu ríkisstj. til að koma í veg fyrir glæpinn - það eru aldraðir sem margir hverjir verða að búa við slíka vesöld að þeir eiga ekki aura fyrir brýnustu nauðsynjum.

Er þetta til sóma okkur Íslendingum? Nei, segi ég. Þetta er til háborinnar skammar fyrir þjóð sem á fengsælustu fiskimið heimsins og auðlindir aðrar allt um kring. Þetta ástand, örbirgð aldraðra og aleigumissir húsbyggjenda, á sér stað á því ári sem stefnir í að verða mesta aflaár Íslandssögunnar.

Þær þrengingar sem einkenna samfélagið enn fremur koma m.a. fram í að öryrkjar og fatlaðir eru niðurlægðir með því að framkvæmdasjóður þeirra er stórlega skorinn niður ár eftir ár. Það er að mati ríkisstj. fólkið sem liggur vel við höggi. Þetta er nefnilega fólk sem ógjarnan ber hönd fyrir höfuð sér og getur illa komið því við að víkja sér undan höggi. Þessar þrengingar koma enn fremur fram í því að okurlánastarfsemi af ólöglega taginu þrífst vel og dafnar. En við verðum að átta okkur á að undir þessa okurlánastarfsemi er kynt með því að hér þrífst viðurkennd okurlánastarfsemi, viðurkennd og samþykkt af stjórnvöldum. Það viðgengst löglegt okur á Íslandi. Það er okrið sem snýr að verðlagsmynduninni í þessu landi. Og við verðum að vera vel meðvituð um það áður en lengra er haldið að okur er farvegur verðbólgu.

Þegar ég segi að okur sé löglegt á Íslandi þá á ég við að allar reglur vantar um verðtryggingu og verðmyndun. Hér eru einungis til slíkar reglur hvað varðar bankaviðskipti og á meðan blómstrar og viðgengst okrið sem aftur blæs duglega á verðbólgubálið. Á meðan ekki er tekið svo um munar til hendinni á þessu sviði er ekki nokkur von til þess að takist að koma í veg fyrir verðbólgufyrirbærið.

Við verðum að sjálfsögðu að greiða til baka það sem við fengum að láni, það sama og við fengum að láni en hvorki meira né minna. Það er hins vegar svo að það er verðbótaþáttur vísitölu sem hefur hleypt hér öllu í algjöra vitleysu og kynt undir verðbólgubálið.

Það eitt er víst og öruggt að þegar framkvæmdaliður fjárlaga er reiknaður samkvæmt frv. og verður talinn í heild sinni u.þ.b. 33 milljarðar króna getum við reiknað með að samkvæmt núgildandi aðferðum við útreikning þessara þátta skili hann sér ekki eins og til er ætlast. Mismunurinn verður á þessu eina dæmi fjárlaganna um 10% eða hvorki meira né minna en 3,3 milljarðar. Það eru svona grundvallaratriði sem skipta máli og verður að taka með í reikninginn þegar verið er að tala um stóra pósta.

Það sem hér er fyrirliggjandi til umræðu er ekkert annað en veikburða yfirlýsing og sýndarmennska. Þetta er marklaust plagg sem þegar er í endurskoðun og á örugglega eftir að breytast mikið frá því sem við erum að ræða núna og þó svo það yrði samþykkt í núverandi gerð er eitt víst að það lítur ekki svona út við endurskoðun þess á sama tíma að ári. Þá verða væntanlega komnar inn í dæmið allar aukafjárveitingarnar sem nú til dags eru orðnar daglegt brauð.

Uppáhaldsmáltæki fyrrv. fjmrh. var að hafa skyldi samráð og sníða sér stakk eftir vexti. Hann sneið stakkinn að vísu en án samráðs bæði við þing og þjóð, og sjá, stakkurinn varð heldur rosalegur að vexti sem helst hefur sýnt sig í aukafjárveitingunum.

Fjárlögin sem samþykkt voru á þinginu s.l. ár voru sem sagt á engan hátt raunhæf. Það var skorið niður hér og það var skorið niður þar. Svo sá maður þessar tölur birtast aftur í formi aukafjárveitinga síðar á árinu.

Til þess að nefna eitt lýsandi dæmi eru mér afar minnisstæðar miklar umræður sem áttu sér stað hér á hv. Alþingi, umræður um fjárlög yfirstandandi árs. Þá höfðu framlög til Kvikmyndasjóðs verið skorin niður eða hlutur sjóðsins skertur um sem svarar 10 millj. kr. En ekki stóð á því að þessu máli væri bjargað fyrir horn og sjóðurinn fékk, þrátt fyrir áður harðorðar yfirlýsingar af hálfu ráðherra um neitun, aukafjárveitingu og fékk sínar 10 milljónir. Var Alþingi spurt þá? Var leitað eftir viljayfirlýsingu Alþingis? Nei. Fyrrv. fjmrh. varð einnig mjög tíðrætt um endurreisnarstarf. En það vill svo til að sú endurbygging hefur verið reist á sandi ef ekki á kviksyndi þar sem í sökkva t.d. þeir sem hafa verið að streða við, samkvæmt fyrirmælum ríkisstj., að koma yfir sig þaki. Allir verða jú að eiga sitt; það heitir sjálfseignarstefna.

Ef að einhverju leyti má marka þær tölur sem fram koma í frv. er sá kafli sem snýr að húsnæðismálum alveg lýsandi fyrir það ráðaleysi og dáðleysi sem störf ríkisstj. einkennast helst af. Það kemur fram að til húsnæðismála er í heildina lögð til hækkun frá síðustu fjárlögum sem aðeins nemur 26 millj. þrátt fyrir að sérstök fjáröflun til húsnæðismála skili samkvæmt frv. 655 millj. kr. með hækkuðum sköttum á landsmenn. Í þeim efnum hefur ríkisstj. helst getað fundið það úrræði við neyðarástandi því sem ríkir í þessum málaflokki að setja á laggirnar nefnd sem virðist byggja tilveru sína einna helst á því að sefa almenning og láta líta svo út sem eitthvað sé verið að aðhafast. Þessi nefnd, milliþinganefnd sem sett var á stofn, var skipuð fulltrúum allra þingflokka og með því virtist ætlunin einnig hafa verið sú að kaupa sér frest, að kaupa sér frið fyrir stjórnarandstöðunni. Þá var hún lokuð inni í nefnd sem auðvitað var aldrei ætlunin að skilaði árangri.

Nei, alls staðar ber fyrir augu úrræðaleysi, sama hvert litið er, og augljóst er að hver framsóknaráratugurinn leysir annan af hólmi. Fólki er boðið upp á framhaldssögu framsóknar og íhalds hvort sem er í nútíð eða þátíð. Ef þetta er það sem á að benda okkur á framtíðina er greinilega boðið upp á sama réttinn áfram, sama réttinn sem verið hefur á matseðlinum undanfarna áratugi og er nú orðinn hálfleiðigjarn. Auk þess sem hann er orðinn óætur vegna þess að hráefnið sem notað er í hann er með eindæmum lélegt.

En núverandi framsóknarstjórn er að verða einhver hrikalegasta auðsöfnunarstjórn sem komið hefur fram á sjónarsviðið. Og hverjir eru það nú sem safna auði? Eru það þeir sem eru að missa allt sitt á nauðungaruppboðum? Eru það þeir sem hrakist hafa út í það neyðarúrræði að taka lán á okurlánamarkaðinum? Eru það aldraðir eða e.t.v. öryrkjar og fatlaðir? Nei. Það eru dekurbörn hæstv. ríkisstj. sem safna auði þessa dagana. Það eru þeir sem hafa tök á því að fjárfesta í ríkisskuldabréfum sem ríkisstj. hefur boðið út og selt með afföllum. Það er þetta sem við höfum upp úr krafsinu með frjálshyggjunni.

Það hefur nú átt sér stað að hæstv. fjmrh. hefur ákveðið að ríkisskuldabréfin skuli seld með afföllum. Það er vitað mál að það eru engir atvinnuvegir til í landinu sem bera uppi slíka ávöxtun. En ríkisstj. gengur á undan og ætlar að leysa vandamál fortíðarinnar með því að draga til sín fjármagn frá atvinnuvegunum með tælandi gylliboðum og greiða með því gamlar syndir. Nú á að leysa það sem aflaga hefur farið með því að kynda undir enn verri lífskjörum en þekkst hafa til þessa. Versnandi lífskjör koma auðvitað fyrst og fremst fram hjá þeim sem ekki geta tekið þátt í þessum darraðardansi og keypt ríkisskuldabréf og á þann hátt ávaxtað í okrinu. Framsókn færir með sér vandamálin sem hún skóp í fyrri ríkisstjórnum áfram inn í þessa ríkisstj. Og nú á að leysa vandann, syndaregistrið, með þessu móti.

Þessa dagana talar hæstv. forsrh. um að vaxtafrelsið hafi verið mikil mistök. Hann verður auðvitað að gera sér grein fyrir því að það frelsi er einn af meginkjörnunum í stefnu þessarar ríkisstj. Og svo talar hæstv. forsrh. rétt eins og hann hafi ekkert með þetta allt að gera, eins og hann hafi ekki komið nálægt þessu öllu saman.

Þessi ríkisstj., sem hefur vogað sér að leggja fyrir þingið svo kolómögulegt frv. sem raun ber vitni, ætti auðvitað að sýna og sanna hvort það þor og sá kjarkur býr með henni sem hún er sífellt að stæra sig af að búa yfir. Hún ætti auðvitað að hafa burði til þess að gera uppskurð á þessu þrælstaðnaða kerfi þar sem allir liðir þess eru ár eftir ár einungis framreiknaðir. Til þess ætti hún að hafa burði miðað við fjölda stjórnarliða. Þessi ríkisstj. ætti auðvitað að setja stopp og byrja á núllpunkti, hætta þessari sjálfvirkni og gefa sér að það náist skynsamlegri útkoma út úr stærstu liðunum.

Að síðustu er auðvitað óhjákvæmilegt að koma lítillega að því í hverju fjárveitingavald þingsins er fólgið. Er það fólgið í að veita fjmrh. óskorað vald til þess að deila út fjármunum að eigin hentisemi? Það virðist í það minnsta vera skilningur hæstv. fyrrv. fjmrh. á valdi sínu að hann geti leyft sér að skrifa út úr annars tómu ávísanahefti ríkissjóðs og dreift á báðar hendur að eigin geðþótta ekki bara milljónum heldur milljarði upp á eigið einsdæmi. Með slíkum og þvílíkum aðferðum fer maður nú verulega að efast um gagnsemi þess að vera að halda gangandi svona sýndarmennskuleiksýningu eins og þeirri sem hér fer fram.

Virðulegi forseti. Það er kominn tími til fyrir þing og þjóð að staldra við og hugsa sitt ráð. Er það þetta sem er framtíðin? Virðingu Alþingis er stórlega misboðið.

Alþingi hefur sett niður við þetta framferði hæstv. ríkisstj. Er nokkuð í þessu frv. eða framferði ríkisstj. yfirleitt sem gefur tilefni til þess að ætla að slíkt endurtaki sig ekki? Því að auðvitað er það sök allrar ríkisstj. og stjórnarliða að þessi austur skuli hafa verið látinn óátalinn.