12.11.1985
Sameinað þing: 14. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 546 í B-deild Alþingistíðinda. (439)

1. mál, fjárlög 1986

Kristín Halldórsdóttir:

Herra forseti. Þessi umræða, sem kölluð er 1. umræða um frv. til fjárlaga 1986, er einkennileg sviðsetning og stjórnarflokkunum til lítils sóma. Segja má þó að hún sé í samræmi við það sem á undan er gengið. Síðari hluta sumars og í haust birtust stöðugar fréttir af gerð fjárlagafrv. eins og framhaldssaga í dagblöðunum, sem er alger nýlunda því að yfirleitt er frumvarpsgerðin á fárra vitorði fyrr en plaggið er lagt fram á Alþingi á fyrsta starfsdegi þingsins.

Öllum var ljóst að mikill ágreiningur var í stjórnarflokkunum um gerð frv. Engu að síður þóttu það mikil tíðindi þegar yfirlýsingar tóku að berast frá hinum og þessum fundum Sjálfstfl. um að fjárlagafrv. væri ónýtt plagg sem yrði að endurskoða frá grunni, aðeins örskömmu eftir að þingflokkar beggja stjórnarflokkanna höfðu lagt blessun sína yfir það. Fréttir bárust af hótunum um að stjórnarsamstarfið yrði rofið ef frv. yrði ekki gjörbreytt. Það var því með litlum áhuga sem þm. blöðuðu í þskj. 1 sem búið var að stimpla í bak og fyrir sem marklausan pappír.

Fjvn. lenti í undarlegri aðstöðu. Sú mikla vinna, sem hún verður að inna af höndum, getur ekki dregist von úr viti. Nm. hafa því setið á daglegum fundum og hlýtt á erindi fulltrúa sveitarstjórna, ríkisstofnana og félagasamtaka þar sem fram koma óskir um þeirra hlutdeild í hinum ýmsu liðum fjárlaga sem enginn hafði hugmynd um hvernig líta mundu út í endanlegri mynd.

Á sama tíma hefur setið að störfum önnur nefnd með það að verkefni að skera niður fjárlagaliði með öllum hugsanlegum ráðum. Nýjustu tölur fengum við að heyra fyrst í dag, sama dag og okkur er ætlað að fjalla um þetta frv. í 1. umræðu hér í þinginu. Svo mikið er viðhaft að alþjóð er gefinn kostur á áheyrn.

Kvennalistinn mótmælir þessum vinnubrögðum harðlega. Þau opinbera ekki aðeins ráðleysi og sundurlyndi stjórnarflokkanna heldur einnig yfirgangssemi þeirra og tillitsleysi við stjórnarandstöðuna og síðast en ekki síst virðingarleysi við útvarpshlustendur sem áreiðanlega hafa margt þarfara að gera en að hlusta á orðaflaum þingmanna um óunnið þingmál.

En með tilliti til þeirra sem kunna að vera að hlusta vil ég ítreka þetta: Allan tímann frá því fjárlagafrv. var lagt fram var vitað að því yrði breytt verulega. Allan þann tíma vissu þm. að þetta frv. var ómark. Um breytingar var það eitt vitað að niðurskurður vofði yfir. Fyrst nú í dag sáum við þær tölur sem hæstv. fjmrh. kynnti í ræðu sinni áðan. Snemma í morgun kom hann ásamt föruneyti á örstuttan fund með fjvn. og skýrði þessar tölur í örfáum orðum.

Það er táknrænt að næstu gestir á fund nefndarinnar komu til að kynna óskir um fjárveitingu til að halda áfram byggingu sjúkrahúss norður í landi. En ein þeirra frétta, sem hæstv. fjmrh. færði okkur, var einmitt um 35 millj. kr. niðurskurð í framlögum ríkissjóðs til bygginga sjúkrahúsa og heilsugæslustöðva. Margir fleiri eiga eftir að verða fyrir vonbrigðum með þennan niðurskurð sem m.a. bitnar á menningar- og menntastofnunum og sjóðum eins og Kvikmyndasjóði og Iðnlánasjóði og hann bitnar á Þróunarfélaginu sem verið hefur helsta skrautfjöðrin í hatti ríkisstj.

Enginn tími hefur gefist til að átta sig á því hvað þessar nýju tölur hafa í för með sér í raun og veru. Skýringar hæstv. fjmrh. eru ekki til mikils gagns með þessari fljótaskrift. Ég vil þó óska honum og öðrum ráðherrum góðs gengis við niðurskurð í almennum rekstri sem hann sagði einkum verða fólginn í hertum reglum varðandi risnu og ferðakostnað og fleira af því tagi. Kvennalistinn hefur æ ofan í æ og alveg frá upphafi bent á þessa sparnaðarleið og styður það eindregið ef nú á að ráðast gegn þeirri óráðsíu af einhverri alvöru.

Vissara er þó eflaust að lofa það framtak ekki um of fyrr en séð verður hvernig til tekst. En ástæða er til að ætta að ríkisstj. sé alvara með slíkar aðgerðir þegar hæstv. forsrh. er farinn að barma sér opinberlega yfir fjáraustri í risnu og ferðalög á vegum ríkisins og m.a. að gagnrýna eigin flokksmenn fullum hálsi. Var athyglisverð frétt um slík orðaskipti í Morgunblaðinu nýlega, en því miður gat sá, sem einkum hlaut gagnrýnina, ekki svarað fyrir sig þar sem hann var nýlagður af stað í enn eina utanlandsferðina.

Einnig er að finna í þessum nýjustu tölum, sem fjmrh. kynnti hér áðan, niðurskurð í virkjanaframkvæmdum sem eru samhljóða hugmyndum Kvennalistans í þeim efnum. Að öðru leyti sé ég ekki efni til að tjá mig um þessar nýjustu tölur. Enginn tími hefur gefist til að kynna þær þingflokki Kvennalistans hvað þá að fjalla um þær á breiðari grundvelli. Engin trygging er fyrir því að þetta séu endanlegar tölur eða haldbetri en fyrri tölur frá þessum aðilum sem réttast væri að kalla áhugahóp um gerð fjárlagafrv. og virðist helst ætla að gera þetta eina frv. að ævistarfi. Engar ákvarðanir liggja fyrir um nýjar verðlagsforsendur né heldur hvort þær verða látnar ná til allra liða frv. eða bara sumra.

Af þeim ástæðum, sem ég hef nú rakið, er enginn grundvöllur til að fjalla um einstaka liði þessa frv. Það hlýtur að bíða 2. umræðu ef áhugahópurinn um gerð fjárlagafrv. verður þá orðinn nokkru nær um markmið og leiðir í sameiginlegum heimilisrekstri okkar landsmanna.

Herra forseti. Umbúðirnar um þetta frv., sem hér á að heita til umræðu, eru að sönnu laglegar. Ýmsu hefur verið breytt um ytra form þess sem gerir það skiljanlegra en áður og sýnu betra yfirlit yfir fjárhagsáætlun ríkisins í heild. En laglegar umbúðir megna ekki að fela kreppusvip og kolrangar áherslur sem einkenna innihaldið, hverjar svo sem endanlegar tölur verða. Verra er þó, og verst af öllu, að spámenn ríkisstj. vilja ekki gefa fólki neina von um betri tíð. Ef marka má spána, sem fram kemur í VII. kafla grg. frv. um horfur í fjármálum ríkisins 1986-1988, sér núverandi ríkisstj. engin ráð til að bæta hag ríkissjóðs og þar er engar vísbendingar að finna um breyttar áherslur eða sókn fram á við. Stefna þessarar ríkisstj. í ríkisfjármálum og efnahagsmálum almennt er stórhættuleg. Hún grefur undan afkomuöryggi fólks í landinu og sviptir það allri trú á framtíðina.

Kvennalistinn hélt landsfund um síðustu helgi. Engum tíma var þar eytt í deilur, hvorki um menn né málefni, heldur unnið markvisst og með jákvæðu hugarfari. Ályktanir voru samþykktar í ýmsum málaflokkum. Þær innihéldu ekki aðeins harða gagnrýni á stefnu og vinnubrögð núverandi ríkisstj., heldur bentu einnig á úrræði og leiðir. Í ályktun fundarins um efnahagsmál var varað eindregið við afleiðingum af stefnu núverandi ríkisstj. í efnahagsmálum. Þar sagði enn fremur, með leyfi forseta:

"Ríkisstj. hælir sér af því að hafa náð niður verðbólgunni en ágæti þess árangurs er í raun mikil blekking. Verðbólgan náðist að vísu niður með stórkostlegum fórnum launafólks en er nú aftur komin á flug og er nálægt 40%. Það kann að hljóma vel í eyrum þeirra sem kynnst hafa yfir 100% verðbólgu en hafa ber í huga að aðstæður eru nú svo gjörólíkar að 40% verðbólga nú hefur aðrar afleiðingar en hún hafði fyrir nokkrum árum þar sem skuldir einstaklinga og fyrirtækja eru nú verðtryggðar og með háum vöxtum. Við þessar aðstæður verða stórkostlegar eignatilfærslur og ástæða er til að óttast þær afleiðingar að innan fárra mánaða standi skuldugt fólk uppi eignalaust og fyrirtæki, sem standa undir afkomu okkar, verði gjaldþrota.

Hugmyndir ríkisstj. í skattamálum virðast fela í sér að enn eigi launafólk aðallega að bera byrðarnar. Hún stefnir að því að koma á flötum neyslusköttum, en slíkir skattar leggjast þyngst á þá sem enga skatta ættu að bera. Kvennalistinn andmælir slíkum hugmyndum og leggur áherslu á að hinir vel stæðu beri stærri hluta af byrðum samfélagsins.

Við þær aðstæður upplausnar og óöryggis í efnahagslífi okkar sem nú ríkja er illmögulegt að byggja upp traust atvinnulíf og tryggja örugga afkomu fólks í landinu. Kvennalistinn leggur áherslu á að frekari lausnir í efnahagsmálum verði ekki með þeim hætti að þær grafi undan afkomuöryggi íslenskra heimila.

Kvennalistinn styður hugmyndir um veltuskatta og stighækkandi eignarskatta.

Kvennalistinn leggur þunga áherslu á að lögum um bann við vaxtaokri sé framfylgt og skorar á stjórnvöld að stuðla að almennri lækkun vaxta. Þó raunvextir séu eðlilegir eru okurvextir óþolandi.“

Í ályktun landsfundar Kvennalistans um húsnæðismál segir m.a., með leyfi forseta: „Fjölmörg heimili í landinu eru á barmi gjaldþrots sem rekja má til efnahagsráðstafana ríkisstj. Núverandi ríkisstj. virðist hvorki hafa vilja né getu til að leysa þennan vanda. Það virðist nú gert ráð fyrir að viðbótarskattlagning vegna sérstakrar fjáröflunar til húsnæðismála eigi öll að renna til hefðbundinna útlána á vegum Húsnæðisstofnunar. Ekkert á að fara til að leysa vanda þess fólks sem nú á í mestum erfiðleikum. Það á að auka vandann en ekki að leysa hann.

Nú þegar verður að grípa til ráðstafana. Frestun nauðungaruppboða og breyting skammtímalána til lengri tíma eru aðgerðir sem hægt er að grípa til strax. Framlag ríkissjóðs í gegnum skattakerfið í formi vaxtafrádráttar þarf að renna til þeirra sem eiga í mestum erfiðleikum en ekki til þeirra sem mestar eignir eiga og eru tekjuhæstir.

Við viljum breytta stefnu í húsnæðismálum þar sem fólki verði tryggt húsnæði án þess að það þurfi að leggja á sig ok vinnu og skuldaklafa. Endurskoða verður lánakjör þeirra sem eignast vilja húsnæði til eigin afnota. Við viljum stórauka byggingu leiguhúsnæðis og styðjum búseturéttarhugmyndina. Það má öllum vera ljóst að lausn á húsnæðisvandanum kostar peninga. Húsnæðismálin og önnur mál, er varða mannlega velferð, verða að koma framar í forgangsröðina en nú er.“

Á bls. 303 í grg. fjárlagafrv. geta menn fræðst um vilja ríkisstj. og áhuga á þessum málaflokki. Þar stendur m.a., með leyfi forseta:

„Framlög til íbúðarlánasjóða lækka um tæp 22% á milli áranna 1986 og 1987 en lög um sérstaka fjáröflun til sjóðanna taka aðeins til áranna 1985 og 1986. Í spánni fyrir 1987 og 1988 er gert ráð fyrir að heildarframlag til íbúðarlánasjóðanna lækki úr 1600 millj. kr. 1986 í 1250 millj. kr. 1987 og 1988.“

Þetta er stefna stjórnarflokkanna í húsnæðismálum. Man nú enginn lengur loforð þeirra fyrir síðustu kosningar þegar digurt var talað um 80% húsnæðislán til 44 ára? Þetta eru efndirnar.

Í atvinnumálum er stóriðjumartröðin enn fyrirferðarmikil í stefnu þessarar ríkisstj. Þó virðist hún nú vera að átta sig á því, að vissu marki a.m.k., að helsta auðlind okkar er fólkið sem byggir þetta land, hugvit þess og þekking. Það veldur hins vegar áhyggjum að um leið og farið er að tala af alvöru um tækniþekkingu sem leið í uppbyggingu atvinnulífs heyrast hugmyndir úr herbúðum stjórnarliðs um það að Íslendingar nýti sér hugvit sitt í þágu vígbunaðar og taki þátt í vopnaframleiðslu.

Slíkum hugmyndum mótmælir Kvennalistinn harðlega. Íslendingar hafa aldrei borið vopn á aðrar þjóðir og mega aldrei gerast þátttakendur í gjöreyðingaráformum sem vopnaframleiðslu fylgja.

Í ítarlegri ályktun landsfundar Kvennalistans um atvinnumál er lögð áhersla á að Íslendingar eru fyrst og fremst matvælaframleiðendur og eiga ýmsa ónýtta möguleika á því sviði þar sem taka ber mið af vaxandi kröfum um ómengaða framleiðslu. Smáfyrirtæki eru og verða kjölfestan á sviði iðnaðar og í orkukerfi landsins er mikil umframorka sem nýta ber til eflingar smáiðnaði, t.d. með því að bjóða framleiðslufyrirtækjum lágt verð utan álagstíma.

Herra forseti. Við höfum heyrt fréttir af stórkarlalegum yfirlýsingum á stjórnmálafundum úti um landið þar sem menn hrósa sér af því að vera blóðugir upp að öxlum í niðurskurði og hafa sparað þjóðinni milljarða á milljarða ofan. Ekki sér þess nú stað í búskapnum okkar. En betur værum við stödd nú ef farið hefði verið af meiri gát í virkjanaframkvæmdir, flugstöðvarbyggingu og aðrar slíkar framkvæmdir strax í upphafi þessa samdráttartímabils. Og betur yrðum við sett í lok þessarar aldar ef stjórnvöld skildu að það er alls ekki sama hvort við segjum: „Efling afvinnulífs og hagsældar þjóðarinnar er grundvöllurinn að eflingu menntunar og þekkingar í landinu“, eða: „Efling menntunar og þekkingar er grundvöllurinn að uppbyggingu atvinnulífs og hagsældar þjóðarinnar.“

Útvarpsumræðum lokið og umr. frestað.