23.04.1986
Efri deild: 93. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4578 í B-deild Alþingistíðinda. (4394)

368. mál, selveiðar við Ísland

Skúli Alexandersson:

Virðulegi forseti. Það er svo komið með þetta frv., sem við vorum með til afgreiðslu á svipaðan máta fyrir þingslit fyrir tæpu ári, að við stöndum í sömu sporum. Ég tel að ég þurfi, virðulegi forseti, til að spjalla um meðferð þessa máls á þessum liðna tíma alveg í lágmarki þann tíma sem okkur þremur var boðið upp á. Ég vil því spyrja forseta: Telur forseti ástæðu til þess að ég fari að hefja ræðu mína út frá því að ég taki meginhluta þessa tíma eða jafnvel allan?