23.04.1986
Neðri deild: 100. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4591 í B-deild Alþingistíðinda. (4414)

396. mál, framleiðsla og sala á búvörum

Guðmundur J. Guðmundsson:

Herra forseti. Ég hafði hugsað mér að tala hér alllangt mál, en eftir yfirlýsingu hæstv. forsrh. er kannske óþarfi að fara ítarlega út í þessi mál. Ég vil þó grípa á nokkrum atriðum.

Ég vildi segja að á ýmsum sviðum hefur ríkisstj. - og er ég ekki mjög hrifinn af núverandi ríkisstj. - staðið að ýmsu leyti vel við þá samninga sem gerðir voru 26. febr. Það er verið að afgreiða hér nýtt húsnæðismálafrv. sem er í samræmi við þá samninga. Hér hafa farið greiðlega í gegn breytingar á lögum um Atvinnuleysistryggingasjóð. Frægt er að hæstv. viðskrh. tók hressilega til hendi þegar bankar sem ríkisfyrirtæki ætluðu að fara að hækka sína þjónustu.

En jafnframt því sem ég viðurkenni þetta vil ég benda á að það er ákaflega lítið svigrúm til að fara ekki yfir þau mörk sem gert var ráð fyrir. Eftir hækkun á áfengi og tóbaki minnkar það svigrúm enn. Menn geta haft sínar skoðanir. Margir kannast við einn virtasta læknaprófessor sem heldur því fram að það ætti að þrefalda allt tóbaksverð af heilbrigðisástæðum. Það viðhorf er ekki til staðar hjá hæstv. ríkisstj. Það er gert af tekjuástæðum. Prófessorinn vill þrefalda verðið til að draga úr reykingum. Ríkissjóður hækkar þetta til að auka sínar tekjur. Þetta vegur um 0,23%. En svigrúmið er innan við 1%. Þarna kom inn hækkun á tryggingum bifreiða. Þetta verður ákaflega naumt.

Manni verður á að spyrja: Hvað meinar ríkisstj.? Hvert er hún að fara þegar hún kemur með frv., sem sjálfsagt er hægt að færa ýmis ágæt rök fyrir undir venjuleguni kringumstæðum, þar sem bókstaflega er samið um það og allt stendur og fellur með því að verðlagi sé haldið í skefjum má ríkisstj. ekki undir neinum kringumstæðum gera neitt til að sprengja þessar verðtakmarkanir. Ég veit að það vakir ekki fyrir hæstv. landbrh. að gera það, hann er þarna að hugsa um sína umbjóðendur. En þetta hefur áhrif sem ákaflega erfitt er að segja um hvað verða mikil. Þetta hækkar verðlag í landinu.

Ég skal ekki vera að fárast yfir áfengis- eða tóbakshækkunum. Þær hafa þó þau áhrif að hækka lánskjaravísitöluna. (JBH: Lausn fyrir húsbyggjendur.) Ein af lausnum fyrir húsbyggjendur. Út af fyrir sig kom kannske ekki á óvart að þetta yrði. Hins vegar held ég að enginn hafi búist við þessu fyrr en liði vel á sumar.

Ég vara hæstv. ríkisstj. mjög alvarlega við hversu uggvænleg áhrif slíkt hefur og ég efast mjög um að það sé á hennar færi ef hún gengur fram í hækkunum að hindra að aðrir geri það. Ef verkalýðsfélög eru að leggja í kostnað, sem sjálfsagt er og ekki er eftir talið, til verðgæslu þarf kannske fyrst og fremst að setja verðgæslu á hæstv. ríkisstj.

Menn hafa lýst því hér yfir og m.a. hæstv. forsrh. að þetta muni ekki koma til framkvæmda nema um óeðlilega verðfellingu sé að ræða og muni ekki hafa áhrif á vísitölu. Ég sé satt að segja ekki hvernig þetta á að vera framkvæmanlegt. Ef það á að millifæra þarna, ef mikið er lagt á innfluttar kartöflur, háir tollar, seljast innlendar fyrst og fremst, en þá eru ákaflega litlar tekjur eftir til að greiða niður innlendar kartöflur vegna þess að tekjurnar sem áttu að koma af hækkuðum tollum á þær erlendu eru ekki til staðar. Ef hins vegar er lítið lagt á innfluttar kartöflur eru þær íslensku dýrari og frv. nær ekki tilgangi sínum. Ég er ekki einn um þessa skoðun. Ég hef borið þetta undir virtustu hagfræðinga, bæði aðila vinnumarkaðarins og aðra virta hagfræðinga. Það hefur enginn þeirra séð nokkra einustu smugu, ef það verði framkvæmt sem gert er ráð fyrir hér, öðruvísi en að hefði áhrif til að hækka vísitölu.

Ég hef engan áhuga á því og hef ekki iðkað hér að tefja þingstörf eða vera með málalengingar eða ætta t.d. hæstv. landbrh. eitthvað sérstaklega illt í þessu. Ég ítreka að ég skal taka tillit til yfirlýsingar forsrh. og treysta á að hún standi. En ég vil að endingu aðvara hæstv. ríkisstj. Hún ætti ekki að ganga fram með svona mál vegna þess að þá mun sagt verða: Þegar svo er um hin grænu tré hvernig er þá með hin? Og hvað höfðingjarnir hafast að o.s.frv.

Eftir yfirlýsingu forsrh. sé ég ekki tilganginn með þessu lagafrv. Ég held að hvort sem sá ágæti hv. 2. þm. Reykv. dregur sína till. til baka eða ekki ætti hæstv. ríkisstj. að draga þetta mál til baka því að nánast er forsrh. búinn að gefa út þá yfirlýsingu sem gerir það að engu eða verður ósannindamaður ella sem ég er alls ekki að brigsla honum um. Ég mun greiða atkvæði á móti þessu frv. verði það ekki dregið til baka og ég vara við því fordæmi og við þeim hættum sem af því skapast ef farið verður að tíðka slík vinnubrögð í hæstv. ríkisstj. Ég tel ekki séð fyrir afleiðingarnar af því.