23.04.1986
Neðri deild: 101. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4599 í B-deild Alþingistíðinda. (4426)
341. mál, sala jarðarinnar Streitis
Eggert Haukdal:
Herra forseti. Það er ekki vani minn að tefja umræður og verður allra síst gert nú á þingslitadaginn. Hér er búið að draga fram rök gegn þessu máli í góðum ræðum sem eru svo augljós að ekki þarf við að bæta, en þrátt fyrir það virðist Alþingi ætla að samþykkja þetta frv. Það getur þó varla verið markmið Alþingis í þeirri stöðu sem landbúnaðurinn er í í dag að veita fé úr opinberum sjóðum til uppbyggingar eyðijarða. Er það virkilega markmiðið að hefja nú uppbyggingu þeirra einmitt í dag eins og staða landbúnaðarins er, en það mundi leiða af samþykkt þessa frv.? Ef það er vilji Alþingis verða ekki vandræði að fá verulegt fjármagn úr ríkissjóði til að leysa þann mikla vanda sem blasir við landbúnaðinum núna á vordögum, þann vanda að stefnir í að hella verði niður mikilli mjólk. Gott er að eiga von á hjálp í þeim vanda í framhaldi af samþykkt þessa frv. og vonandi fyrir bændurna og þjóðfélagið mun ekki á henni standa.
Að lokum: Á það að verða niðurstaðan á þingslitadaginn að selurinn sé felldur í Ed., en í Nd. streitist menn við að selja jörðina Streiti?