13.11.1985
Efri deild: 14. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 575 í B-deild Alþingistíðinda. (451)

2. mál, lánsfjárlög 1986

Sigríður Dúna Kristmundsdóttir:

Virðulegi forseti. Aðeins örstutt athugasemd. Hæstv. fyrrv. fjmrh. hélt býsna skrautlega ræðu áðan og þar sem hlutirnir fara stundum dálítið á flot í skrautlegum ræðum þessa hæstv. ráðherra langar mig aðeins til að árétta það sem ég sagði áðan.

Ég var ekki að gera athugasemdir við vinnu starfsfólks Fjárlaga- og hagsýslustofnunar eða annarra starfsmanna sem unnið hafa að framsetningu fjárlagafrv. eða lánsfjárlagafrv. Ég var að gera athugasemdir við vinnubrögð hæstv. ráðherra. Það er þeirra að taka ákvarðanir um hvaða tölur standa á hvaða póstum í þessum frumvörpum báðum en ekki starfsmanna hagsýslunnar eða annarra þeirra sem koma nálægt vinnu við þessi frv. Og það eru vinnubrögð við hina pólitísku ákvarðanatöku sem ég hef hér gagnrýnt en ekki vinnubrögð títtnefndra starfsmanna.