17.10.1985
Sameinað þing: 4. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 82 í B-deild Alþingistíðinda. (46)

Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana

Guðrún Agnarsdóttir:

Herra forseti. Góðir áheyrendur. Enn kveður hefðin alþm. saman til að ræða stefnuræðu forsrh. í áheyrn þjóðarinnar. Í þetta sinn áætlun til þriggja ára sem er nýlunda.

Í þjóðhagsáætlun fyrir árið 1986 segir, og það er líka nýlunda, að ríkisstj. hafi sett sér það meginmarkmið í efnahagsmálum á næsta ári að stöðva skuldasöfnun erlendis, og þótt fyrr hefði verið, segja víst margir.

Þessi skuldasöfnun, sem hefur orðið að áráttu stjórnvalda undanfarin ár, á rætur að rekja til langvarandi viðskiptahalla. Drýgstu orsakir viðskiptahallans eru svo fjárfestingar í stórvirkum orkuframkvæmdum og fiskiskipum, auk neyslu. Þessum viðskiptahalla hefur svo verið viðhaldið mestmegnis af miklum vaxtagreiðslum af erlendum lánum, en aflabrestur og versnandi viðskiptakjör leggja einnig sitt af mörkum.

Það er vert að vekja athygli á því nú, þegar á að herða ólarnar í samneyslunni, að rúmur helmingur þeirra erlendu skulda þjóðarinnar sem við eigum að greiða stafar af fjárfestingum vegna stórvirkjanaframkvæmda. Í kapphlaupi við kjarnorkuna á 6. áratugnum var anað út í óhagstæða samningagerð og virkjanaframkvæmdir sem við höfum æ síðan sopið seyðið af. Af metnaði var ráðist í stórar, hratt byggðar og rándýrar virkjanir til að uppfylla kröfu stóriðjunnar. En orkan sem rann úr fosshjartanu varð aldrei að því gulli í höndum okkar sem marga dreymdi um. Það verð sem fyrir hana fæst þegar hún er seld til stóriðju er talsvert undir því verði sem kostar að framleiða hana og sér hver maður að það eru léleg viðskipti. Á meðan greiða heimilin, fiskvinnslan og ýmis smáiðnaður, sem er að reyna að skjóta rótum, hærra raforkuverð en þekkist t.d. á Norðurlöndunum. Og nú eigum við nokkur hundruð gígawattstundir af umframorku í kerfinu, en gert er ráð fyrir minnkandi eftirspurn eftir raforku á innanlandsmarkaði fram yfir aldamót og engir erlendir stórkaupendur vísir. Þetta dæmi gengur ekki upp. Og það sá hæstv. fyrrv. iðnrh. loks þegar hann vaknaði upp af stóriðjudraumnum og sagði í febrúar s.l.: Þessari orkuveislu er lokið.

Kvennalistinn hefur frá upphafi lagt áherslu á hættuna af erlendri skuldasöfnun og á það að auka ekki við stóriðjuframkvæmdir, en miða virkjanastefnu fyrst og fremst við innlendar þarfir.

Atvinnumál þjóðarinnar standa nú á tímamótum og okkur er brýn nauðsyn að leita allra leiða til að nýta og markaðssetja það úrvalshráefni sem okkur stendur til boða, bæði í sjávarútvegi og landbúnaði. Hins vegar verðum við að vinna hörðum höndum að því að varðveita og efla gæði þessa hráefnis og megum hvergi slá slöku við. Það er því til háborinnar skammar hve lítil rækt hefur verið lögð við nám og kjör fiskvinnslufólks. Eru menn blindir á það hver er undirstöðuatvinnuvegur þessarar þjóðar? Verkmenntun og starfsmetnaður þeirra sem vinna svo verðmætt hráefni, tæknivæðing og allur aðbúnaður við fiskvinnslu ætti að vera forgangsverkefni. Til þess að vega upp á móti einhæfni og sveiflum í undirstöðuatvinnuvegum er okkur nauðsyn að leita nýrra atvinnugreina. Kvennalistinn hefur bent á ýmiss konar smáiðnað, nýjar búgreinar og þekkingarsköpun sem vænlega framtíðarkosti. Enginn þeirra er ýkja orkufrekur, en allir byggja fyrst og fremst á þekkingu og rannsóknum.

Það er smám saman að renna upp fyrir æ fleirum að það er hægt að virkja fleira en fallvötn. Ein besta fjárfesting okkar, bæði til skemmri og lengri tíma, er í góðri almennri menntun allra landsmanna, bæði bókmennt og verkmennt.

Kínverskur spekingur sagði fyrir nærri 2500 árum: Ef þú hugsar eitt ár fram í tímann sáir þú korni. Ef þú hugsar tíu ár fram í tímann gróðursetur þú tré. Ef þú hugsar eitt hundrað ár fram í tímann menntar þú fólkið.

Til þess að Íslendingar geti orðið gjaldgengir á vinnumarkaði framtíðarinnar og sjálfstæði og afkoma þjóðarinnar sé tryggð verðum við að standa vörð um menntakerfið og bæta það með öllum ráðum. Ef við uggum ekki að okkur gætum við sem þjóð hæglega lent í fátækragildru í samkeppni við aðrar þjóðir um markaði og hugmyndir.

Það er trú mín að gullskip íslensku þjóðarinnar, sem grafið er í svarbláum sandi framtíðarinnar, sé hugvit. Við verðum að lagfæra þann ójöfnuð sem nú ríkir í skólamálum milli þéttbýlis og dreifbýlis og tryggja jöfnuð allra landsmanna til náms. Við verðum að útvega skólum fjölbreytt og nútímaleg námsgögn og við verðum að búa vel að börnum meðan þau dvelja í skólanum. Flest ef ekki öll lönd í okkar heimshluta búa við samfelldan skóladag og þykir það sjálfsagt. Okkur er skömm að því, foreldrum jafnt sem stjórnmálamönnum, að hafa ekki gert slíkt að forgangsverkefni fyrir börnin okkar. Okkur er sömuleiðis skömm að því að búa þannig að kennarastéttinni í launum og virðingu að svo fari e.t.v. að það fáist ekki aðrir til að kenna börnum okkar en þeir sem eiga ekki á öðru völ. Sú aðför sem farin var að kennarastéttinni á s.l. ári og staðan í menntamálum gefa ekki tilefni til bjartsýni þegar nú er boðaður aukinn niðurskurður á því sem kallað er útgjaldaáform ríkisins í lokaorðum þjóðhagsáætlunar. Ég vil vara þessa ríkisstj. alvarlega við því að spara í menntun frekar en orðið er. Slíkt væri glapræði sem illt yrði að bæta.

Þeir atvinnukostir sem bíða á næsta leiti krefjast ekki einungis menntunar, heldur líka rannsókna. Þetta hefur stjórnvöldum reyndar skilist, en samt ekki nógu vel því að þeir verja ekki nema 50 millj. kr. til rannsókna í þágu nýsköpunar í atvinnuvegunum á þessu ári. Það er allt of naumlega skammtað þegar um er að ræða að fjárfesta í hugviti fyrir framtíðina.

Sömuleiðis er skilningur á gildi rannsókna almennt mjög takmarkaður meðal ráðamanna, eins og sést best á því hve illa er búið að Háskólanum. Þekkingarsköpun verður æ mikilvægari sem grundvöllur atvinnuuppbyggingar og þar með fyrir sjálfstæði þjóðarinnar. Það er með rannsóknir eins og veðreiðar. Það er aldrei hægt að vita fyrir fram hver vinnur. En þeim mun fleiri hesta sem veðjað er á, þeim mun meir aukast líkurnar á vinningi.

Hæstv. fjmrh. hinn nýi talaði um það áðan að til þess að móta skynsamlega stefnu yrði hún að vera í takt við veruleikann. Honum fannst í umræðum í sjónvarpi í fyrrakvöld ég gefa neikvæðar lýsingar af þjóðfélaginu. Ef svo er er það e.t.v. einmitt vegna þess að veruleiki þeirra sem ég er fyrst og fremst málsvari fyrir er oft býsna neikvæður. Það er hlutverk mitt að vera verðugur erindreki þeirra og það geri ég best með því að reyna að setja mig í þeirra spor og koma reynslu þeirra á framfæri.

Á þeim kvennaáratug Sameinuðu þjóðanna sem nú er senn liðinn hafa margar jákvæðar og uppbyggjandi aðgerðir gefið tilefni til bjartsýni og vissulega leitt til þess að konum hefur aukist kjarkur og þor. Sömuleiðis hefur sjálfsmynd og sjálfsvirðing þeirra styrkst og þær hafa fundið fyrir þeim krafti sem samstaða kvenna gefur. Frumkvæði kvenna til athafna, hvort sem er á vinnumarkaði, í stjórnmálum og nú síðast í rannsóknum og listum með fjölsóttri ráðstefnu um kvennarannsóknir og veglegri listahátíð kvenna, hafa vakið konur til dáða og sýnt hve framlag þeirra er ríkulegt. En þrátt fyrir þetta eru býti kvenna rýr þegar kemur að því að viðurkenna framlag þeirra.

Þær konur sem vinna á heimilum sínum búa við skert réttindi miðað við aðra þjóðfélagsþegna, bæði hvað varðar lífeyrisréttindi og tryggingabætur. Þær sem úti vinna bera úr býtum mun lægri laun en karlar og virðist nokkuð sama hver starísvettvangurinn er. Hver skýrslan á fætur annarri sýnir svipaðan launamun. Jafnframt eiga konur mun erfiðara með það að öðlast frama í starfi en karlar. Láglaunahópar þjóðfélagsins eru að stórum hluta skipaðir konum og kjörin versna stöðugt.

Stefna ríkisstj. tekur ekki mið af kjörum og aðstæðum kvenna, kannske vegna þess að hún er fyrst og fremst mótuð af körlum sem vita ekki og skilja ekki hvert hlutskipti kvenna er. Þess vegna ættu hæstv. fjmrh. og hæstv. forsrh. að hlusta vel á þær lýsingar sem ég gef af þjóðlífinu og taka tillit til þeirra þegar þeir móta stefnu sína ef hún á að vera sanngjörn. Betra væri þó að þeir færu sjálfir og reyndu að lifa af fóstrulaunum, sóknarstúlkulaunum eða brygðu sér í bónus til að reyna sjálfir á eigin kroppi hvað það er sem er svona neikvætt.

Sú niðurskurðarstefna, sem boðuð er, vekur óhug. Þó að flestir mundu fallast á það að brýn nauðsyn sé að draga úr erlendri skuldasöfnun er jafnframt nauðsynlegt að gera sér grein fyrir því að svo langvinnur vandi verður ekki leystur á neinni svipstundu. Það eru mörg heimili í landinu sem hreinlega geta ekki gefið meir.

Sú fjölskyldupólitík, sem þessi ríkisstj. hefur rekið, er ófullnægjandi. Launin eru það lág að báðir foreldrar þurfa einatt að vinna til að framfleyta fjölskyldunni. Samfélagið hefur einungis tekið takmarkaða ábyrgð á öryggi barna og því verða flestir að leysa dagvistunarmál sín upp á eigin spýtur og ég hef áður minnst á þann skort sem er á samfelldum skóladegi.

Húsnæðismálin eru í þvílíkum ólestri um þessar mundir að fjöldi heimila hefur þegar lent á nauðungaruppboði. Þó eru þetta engir afglapar sem reist hafa sér hurðarás um öxl eins og sumir virðast halda, heldur venjulegt fólk sem reiknaði út getu sína til að standa við þær skuldbindingar sem það gerði. Það gat bara ekki vitað að ríkisstj. mundi gera ráðstafanir sem hækkuðu lán þeirra um 30-40%. Hvernig hefur ríkisstj. hugsað sér að leiðrétta þennan vanda? Leiguíbúðir eru fáar og dýrar og þyrfti að gera stórátak til úrbóta í þeim efnum, eins og Kvennalistinn hefur þrásinnis lagt til, t.d. með þáltill. á síðasta þingi. Sömuleiðis þarf að tryggja Búseta tilverurétt.

Það úrræðaleysi, sem ríkt hefur í þessum efnum, kallar á gagngerar breytingar. Það þarf nýja stefnu í málum íslensku fjölskyldunnar sem í reynd tryggir velferð hennar jafnt inni á heimilunum eins og í þjóðarbúinu í heild sinni. Sú aðferð, sem þessi stjórn hefur beitt hingað til og virðist nú boða af meiri hörku en áður, að leysa efnahagsvandann með því að auka mannlegan vanda er óviðunandi. Við þurfum nýja mannúðlega stefnu, ekki léleg töfrabrögð með stóla eða vangaveltur um valdastyrk fáeinna karla, karla sem ekki gegna kalli tímans.

Ég var einu sinni spurð að því hvort mér þætti karlmennskublær ríkjandi í sölum Alþingis. Ég svaraði þá og ég óska þess enn að í þeim blæ sem leikur um sali Alþingis og reyndar um íslenskt þjóðlíf væri minna af karli og meira af mennsku. Þess þarfnast þjóðin nú. - Ég þakka áheyrnina. Góða nótt.