14.11.1985
Sameinað þing: 15. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 604 í B-deild Alþingistíðinda. (470)
38. mál, einkarekstur á heilsugæslustöðvum
Fyrirspyrjandi (Svavar Gestsson):
Herra forseti. 38. mál þessa þings er fsp. til hæstv. heilbr.- og trmrh. um einkarekstur á heilsugæslustöðvum sem er borin fram af mér og hv. þm. Guðmundi J. Guðmundssyni og Guðrúnu Helgadóttur. Fyrirspurnin er á þessa leið:
„Hver er afstaða heilbr.- og trmrn. til áforma borgaryfirvalda í Reykjavík um einkarekstur á heilsugæslustöðvum?"
Ástæðan til þess að fsp. er borin fram er sú að 13. sept. s.l. var gerð í heilbrigðisráði Reykjavíkurborgar samþykkt sem var á þessa leið, með leyfi forseta:
„Heilbrigðisráð samþykkir að fengnu leyfi heilbrrh. að bjóða út rekstur fyrirhugaðrar heilsugæslustöðvar við Drápuhlíð. Starfssvæði stöðvarinnar afmarkast af Miklubraut að norðan, Flugvallarbraut að vestan og Kringlumýrarbraut að austan.“
Í framhaldi af þessari samþykkt heilbrigðisráðs, sem var gerð með 4 atkvæðum gegn 3 í ráðinu, var fjallað um málið í borgarráði. Þar var því vísað frá á grundvelli minnisblaðs frá borgarritara, en í því segir:
„Skv. lögum verður ekki séð að ráðherra hafi lagaheimild til þess að fallast á útboð rekstrar heilsugæslustöðvarinnar við Drápuhlíð 14 eins og gert er ráð fyrir í samþykkt heilbrigðisráðs Reykjavíkurborgar frá 13. þessa mánaðar.“
Þegar þessi niðurstaða lá fyrir, og hefði auðvitað átt að liggja í augum uppi fyrir formann heilbrigðisráðs Reykjavíkur þegar í upphafi, ákvað hæstv. fyrrverandi heilbr.- og trmrh. að leyfa rekstur heilsugæslustöðvar í Drápuhlíð á grundvelli gildandi laga um heilbrigðisþjónustu. Þar með má segja að þetta upphlaup einkarekstursmannanna í borgarstjórn Reykjavíkur hafi verið stöðvað af flokksbróður þeirra, hæstv. ráðh. Matthíasi Bjarnasyni. Engu að síður er nauðsynlegt að fsp. sé borin fram um þetta efni til núverandi hæstv. ráðh. og þó er sérstaklega nauðsynlegt að fá eftirfarandi upplýst: Hvað ætlar hæstv. ráðh. að gera þar sem undanþáguákvæði laga um heilbrigðisþjónustu renna út um áramótin og þá er ljóst að heilsugæslukerfið á að taka gildi í landinu öllu, einnig á undanþágusvæðunum? Ef það er ætlun hæstv. ráðh. að viðhalda undanþáguástandi í þessum efnum áfram verður hún að flytja lagafrv. um það efni vegna þess að lagaheimildir mun ella eftir áramót skorta fyrir því að þessu blandaða kerfi verði haldið áfram hér í Reykjavík svo sem verið hefur.
Þess vegna vil ég leyfa mér, enda hafði ég nefnt það við hæstv. ráðh., að bera fram þessa viðbótarfyrirspurn: Hvað gerist um áramótin þegar undanþáguákvæði laga um heilbrigðisþjónustu renna út?