14.11.1985
Sameinað þing: 15. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 605 í B-deild Alþingistíðinda. (471)
38. mál, einkarekstur á heilsugæslustöðvum
Heilbr.- og trmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):
Herra forseti. Fsp. hv. þm. hljóðaði svo:
„Hver er afstaða heilbr.- og trmrn. til áforma borgaryfirvalda í Reykjavík um einkarekstur á heilsugæslustöðvum?"
Að nokkru leyti svaraði hv. þm. fsp. sjálfur með því að greina frá afgreiðslu heilbr.- og trmrn. á sérstöku máli sem þetta varðaði, en það leiðir í ljós að það hefur verið mat heilbr.- og trmrn. að samkvæmt gildandi lögum um heilbrigðisþjónustu sé einkarekstur á heilsugæslustöðvum ekki heimill því að lögin geri ráð fyrir að sveitarfélög reki heilsugæslustöðvar.
Ég er sammála fyrirrennara mínum um þessa túlkun og vil sérstaklega taka það fram í þessu sambandi að túlkun núgildandi laga á annan veg teldi ég vera það hæpna að ég vil ekki standa að ákvörðunum á þeim grundvelli.
Hins vegar liggur það fyrir nú þegar í áliti nefndar sem ráðherra skipaði á árinu 1984 til að endurskoða ákvæði laga nr. 59/1983, um skipulag heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu, en það eru lögin um heilbrigðisþjónustu, að þar eru gerðar tillögur um lagabreytingar. Einnig hefur það álit komið fram áður, að ég tel í ráðherratíð hv. fyrirspyrjanda, að nauðsynlegt sé og skynsamlegt að gera vissar lagabreytingar sem opni möguleika fyrir fleiri rekstrarform á sviði heilsugæslunnar. Að sjálfsögðu yrði þá gert ráð fyrir að fullnægt yrði öllum hinum faglegu og löglegu kröfum svo og kröfum um eftirlit með þessari starfsemi.
Þær tillögur, sem unnið hefur svo verið að í framhaldi af þessu nál. og hafa verið að taka form sem lagafrv., gera ráð fyrir að í þéttbýli sé heimilt að semja við sjúkrahús, heilsugæsluhóp eða einstaka heilbrigðisstarfsmenn um rekstur heilsugæslu eða vissa þætti hennar.
Þetta frv. lá fyrir að mestu fullsmíðað þegar ég tók við embætti ráðherra, en ég tel þó að þurfi að vinna betur úr ýmsum þáttum sem í því eru, m.ö.o. að það þurfi að vinna betur að prófarkalestri og ýmsu slíku í því frv. Ég tel því að þessu verki sé ekki fulllokið.
Það liggur þess vegna fyrir að það er ekki endanlega og formlega hægt að svara því sem hv. fyrirspyrjandi er að leita eftir, en ég tel að það sé ekkert því til fyrirstöðu, ef Alþingi samþykkir lagabreytingu í þessa veru, að reyna fleiri rekstrarform heilsugæslustöðva en nú er lögum samkvæmt. Mér er vel kunnugt um að ýmsir flokksmenn hv. fyrirspyrjanda og ráðgjafar í heilsugæslumálum eru þeirri ráðabreytni hlynntir.
Það segir sig auðvitað sjálft að það verður að taka á því máli sem hv. þm. spurði um þegar bráðabirgðaákvæðið tímabundna rennur út. Það er auðvitað ágætt að fá hans ábendingu um það. Það var reyndar ljóst fyrir alllöngu og hefur verið unnið að undirbúningi viðbragða gagnvart því einmitt með frv. sem í smíðum er. Undir eins og frá því plaggi er gengið mun það að sjálfsögðu verða kynnt þm. Ég vona að það verði nú mjög fljótlega.