14.11.1985
Sameinað þing: 15. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 610 í B-deild Alþingistíðinda. (479)
46. mál, athvarf fyrir unga fíkniefnaneytendur
Heílbr.- og trmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):
Herra forseti. 1. liður fsp. hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Hefur undirnefnd þeirrar nefndar um geðheilbrigðismál, sem skipuð var af heilbr.- og trmrh. 15. júlí 1981 og hefur fjallað sérstaklega um geðheilbrigðismál barna og unglinga, m.a. vandamál vegna fíkniefnaneyslu, skilað heildartillögum eins og áætlað var?"
Því er til að svara að þessi nefnd hefur ekki skilað til ráðuneytisins þeim tillögum sem hér er um rætt. En af viðtali við formann nefndarinnar um það leyti sem þessi fsp. var lögð fram í októbermánuði kom fram að nefndin gerði ráð fyrir að skila þessum tillögum sínum um næstu mánaðamót sem þá voru, þ.e. um s.l. mánaðamót. Það hefur ekki verið gert enn þá. Ég held því að tillögurnar hljóti bara að vera í vélritun og vera á næsta leiti. Ég hef ekki fengið skýringu á því hvers vegna tillögurnar eru ekki komnar inn til ráðuneytisins.
Aðrir liðir fsp. falla að sjálfsögðu niður að fengnum þessum upplýsingum því að þeir vísa til tillagna þessarar nefndar. Hitt er ljóst að aðalatriði og stefnumál ráðuneytisins á forgangslista þess í nokkur ár hefur verið unglingageðdeild. Heimild er til makaskipta á eignum í því skyni í fjárlögum þessa árs. Samningur um það atriði stendur nú alveg fyrir dyrum og þá vona ég að hægt verði að leysa úr því máli þannig að slík stofnun kæmist í gagnið á næsta ári.