14.11.1985
Sameinað þing: 15. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 610 í B-deild Alþingistíðinda. (480)

46. mál, athvarf fyrir unga fíkniefnaneytendur

Fyrirspyrjandi (Guðrún Agnarsdóttir):

Herra forseti. Um leið og ég þakka hæstv. ráðh. svör hennar þykir mér leitt að heyra að enn liggja ekki fyrir tillögur um það hvernig megi bæta úr vanda ungra fíkniefnaneytenda. Meðan við bíðum og höfumst ekki að eykst þessi vandi og reyndar vímuefnaneysla almennt. Innflutningur vímuefna fer vaxandi og er furðulegustu aðferðum beitt við að koma þeim til landsins. Sömuleiðis eykst fjölbreytni efnanna og margir óttast að hættumeiri efnin, eins og heróín, fari að berast á íslenskan markað.

Áhyggjur alls þorra fólks vegna vímuefnavandans fara vaxandi og stjórnvöld geta ekki setið aðgerðarlaus í þessum efnum. Á þessum vanda þarf að grípa með ýmsum aðgerðum. Fræðsla og aðrar fyrirbyggjandi aðgerðir eru nauðsynlegar, svo og hertar og markvissar aðgerðir til að koma í veg fyrir innflutning. Jafnframt má ekki gleyma eða vanrækja það að sinna þeim sem þegar hafa ánetjast vímuefnum því að það er í senn sjálfsögð mannúð og fyrirbyggjandi aðgerð.

Lengi hefur verið áætlað að sinna geðheilbrigðismálum barna og unglinga með því að byggja sérstaka unglingageðdeild. Það er kostnaðarsamt og verður varla á dagskrá á næstunni. Hins vegar þola vandamál þessa fámenna hóps ungra fíkniefnaneytenda ekki að bíða slíkrar lausnar. Ég álít að þessi mál megi leysa með góðum vilja, samræmingaraðgerðum og tiltölulega litlum kostnaði miklu fremur en með fjárfrekum meðferðarúrræðum sem krefjast byggingar á nýju húsnæði.

Ég vil minna hæstv. ráðh. á áskoranir til Alþingis um þessi efni frá ýmsum félagasamtökum kvenna og þeirra sem fara með mál unglinga. Enn fremur vil ég minna hæstv. ráðh. á nýlegan borgarstjórnarfund æskunnar sem haldinn var 24. okt. s.l. Þar beindi borgarstjórn æskunnar þeirri spurningu til kjörinna borgarfulltrúa: „Til hvers er að tilnefna þetta ár æskunnar og gera svo ekki neitt?"

Ég tek undir þessa spurningu um leið og ég bendi heilbrigðisyfirvöldum á að það er verðugt verkefni að koma á fót athvarfi fyrir unga fíkniefnaneytendur á alþjóðaári æskunnar, sem nú er senn á enda, til að leggja fram skerf til lausnar þess mikla vanda sem fíkniefnaneysla er.

Ég heyri að það er góður vilji og þarf varla að skora á hæstv. heilbrrh. að fylgja því eftir að tillögum nefndarinnar verði senn skilað og í framhaldi af því að leitað verði árangursríkra leiða til að lækna og endurhæfa unga fíkniefnaneytendur til heilbrigðari lífshátta. Vegna þess, hæstv. forseti, að ekki liggur fyrir svar við fsp. minni þá vil ég fara fram á það að hún verði látin liggja frammi áfram þangað til skýrslu verður skilað