14.11.1985
Sameinað þing: 16. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 627 í B-deild Alþingistíðinda. (493)
Hafskip og Útvegsbankinn
Kristín S. Kvaran:
Virðulegi forseti. Það eru nokkur atriði sem mig langar til að koma á framfæri við þessa umræðu.
Fyrir um það bil viku var í blaði, Helgarpóstinum, spurt: Hvenær skyldi Útvegsbankamálið svokallaða koma fyrir Alþingi? En áður en þetta kom fram í Helgarpóstinum fyrir rúmri viku hafði birst fullyrðing varðandi þetta mál m.a. þann 6. júní í Helgarpóstinum og í Morgunblaðinu 12. júní. Með leyfi forseta langar mig að vitna í það blað frá þeim tíma. Þetta er grein eftir Halldór Halldórsson sem er ritstjóri Helgarpóstsins. Hann skrifar í Morgunblaðið miðvikudaginn 12. júní:
„Nokkrum dögum fyrir aðalfund Hafskips hf. á föstudaginn ákvað undirritaður ritstjóri Helgarpóstsins að fjalla um fyrirtækið í blaðinu í tilefni af þessum fundi. Á aðalfundi er farið yfir rekstur, lagðir fram reikningar og gætt að horfum í framtíð. Helgarpósturinn hafði heimildir fyrir því að ekki væri allt með felldu hjá Hafskipi hf. og þar með var komin rík ástæða fyrir fréttamann að kanna sjálfstætt stöðu fyrirtækisins og önnur mál því tengd.“
Það verður að segja það alveg eins og er að það er virkilegt umhugsunaratriði að þessi umræða hefði e.t.v. alls ekki mátt dragast mikið lengur, þ.e. það hefði ekki mátt dragast á langinn að þessu máli hefði verið hreyft hér inni og skýr svör þá fengin við þeim spurningum sem liggja þungt á t.d. sparifjáreigendum í bankanum og svo auðvitað öðrum þeim skattborgurum sem gera sér grein fyrir því að fyrir dyrum stendur hugsanlega samkvæmt fullyrðingum að láta þá borga brúsann í formi aukinnar skattheimtu. Það er líka alveg óþarfi að láta slíka umræðu dragast á langinn, í það minnsta ef enginn er með óhreint mjöl í pokanum. Það verður að koma hreint fram hér hvort um er að ræða fullyrðingar úr lausu lofti gripnar eða hvort það sé einhver fótur fyrir þeim.
Í þeirri grein sem ég vitnaði í áðan, í Morgunblaðinu var enn fremur sagt, með leyfi forseta:
„Það sem hér hefur verið sagt er nauðsynlegt að komi fram. Ekkert blaðanna skýrði frá umræðum og öll frásögnin miðaðist við að segja frá sjónarmiðum Hafskipsmanna um það að Helgarpósturinn hefði farið með meiðandi ummæli og róg. Hins vegar var látið liggja milli hluta að skýra frá því hvað sagt hefði verið í grein Helgarpóstsins um Hafskip.“
Það er einmitt þetta sem ég held að við verðum að gera okkur fulla grein fyrir, hvort þarna sé um að ræða fullyrðingar sem hafi verið slegið fram í blaðafregn eða hvort það geti verið að blaðið hafi farið með rétt mál upphaflega í byrjun júní. Þeir sem fara með valdið í þessu máli eru auðvitað ríkisstjórnin öll og hún ætti auðvitað að vera fegin að fá tækifæri til að koma fram með réttar upplýsingar og fá með því möguleika til að hreinsa sig af þeim áburði sem títt hefur verið nefndur „rógur Helgarpóstsins“. Þess vegna ætti það að vera öllum kærkomið tækifæri að láta hið sanna koma fram í málinu. En það er fleira sem er nauðsynlegt að hreingera. Það er nauðsynlegt að breyta því andrúmslofti eða þeim hugsanagangi, sem virðist vera ríkjandí í bankastofnuninni, vonandi bara þessari einu, að þar sé allt í lagi, að fólk geti bara slakað á, það sé engin áhætta að vera með fé sitt, sparifé sitt inni á reikningi hjá Útvegsbankanum vegna þess að það sé ríkisábyrgð á bak við allt saman. Hvað heldur þessi bankastjóri eiginlega að almenningur sé? Heldur hann að almenningur sé skynlausar skepnur? Heldur bankastjórinn að það sé nóg að róa fólk með því að koma fram í fréttatíma sjónvarpsins og segja því að það sé allt í himnalagi, bankinn fari ekkert á hausinn, það sé öruggt vegna þess að bankinn hafi alltaf baktryggingu þar sem ríkisábyrgðin sé og það sé allra meina bót að ríkið borgi brúsann?
Ég vil þá aftur vitna til greinarinnar í Morgunblaðinu. Þar segir svo, með leyfi forseta:
„Hins vegar er Útvegsbankinn ríkisbanki og slíkar stofnanir eru ekki látnar fara á hausinn. Þá kemur til kasta skattgreiðenda að borga brúsann.“
Þetta var sem sagt í júní og það er að koma fram núna að hugsast getur að eitthvað af þessu sé rétt. Getur verið að þessi bankastjóri og e.t.v. fleiri gangi með þá firru í maganum að almenningur sé svo skyni skroppinn að hann viti ekki hvað ríkiskassinn er, að almenningur viti ekki hvaða fé það er sem er uppistaðan í ríkiskassanum? Auðvitað er það það sem fólk hefur áhyggjur af í þessu máli og það réttmætar áhyggjur. Það kemur fyrst og fremst fram í aukinni skattbyrði á landsmenn ef ríkissjóður þarf að standa við ríkisábyrgðina. Bankastjóranum hefði e.t.v. verið nær að láta þessi orð falla í tíð fyrrv. hæstv. fjmrh. sem ýmist mokaði út úr ríkiskassanum beint í formi aukafjárveitinga eða óbeint í formi fyrirgreiðslu.
Hlutur útvegsbankans í þessu máli er að því er virðist með ólíkindum. Það virðast allar líkur benda til þess að þarna hafi verið um að ræða afar óeðlilega fyrirgreiðslu af hálfu bankans. Þess vegna er nauðsynlegt að fá mjög ítarleg svör og skýringar um þetta mál allt saman í heild sinni. Ég vil fá að vísa í þessu sambandi í Helgarpóstinn þann 31. október, en þar segir, með leyfi forseta:
„En hvernig svo sem menn leysa Hafskipsvandamálið breytir það engu um að Útvegsbankinn hefur teygt sig út yfir öll eðlileg mörk vegna fyrirgreiðslu til handa Hafskipi. Bankinn tapar stórfé á þessum viðskiptum og raunar munu dæmin fleiri, en samt verður þessi banki áfram starfandi. Það er vegna þess að hér er um að ræða ríkisbanka og láni pólitískt skipaðir bankastjórar of mikið eða vitlaust og vanhugsað er rokið til og vitleysan falin. Í þessu dæmi má heldur ekki gleyma hlutverki fyrsta formanns bankaráðs Útvegsbankans. Þetta var Albert Guðmundsson sem þá var jafnframt formaður stjórnar Hafskips. Í alvörulandi hefði sami maður aldrei gegnt þessum tveimur störfum á sama tíma. Í alvörulandi hefði það verið kallað hagsmunaárekstur.“
Þess vegna er alveg nauðsynlegt að fram komi um hve mikið lán var að ræða og hvernig tryggingar það voru sem settar voru fyrir þessum lánum. Komi það fram og reynist rétt vera, sem fram hefur komið í blaðafréttum, að þær eignir sem settar hafa verið til tryggingar fyrir lánum bankans til Hafskips hafi á lánstímanum rýrnað yfir 20%, sem mér heyrðist nú helst hér áðan á hæstv. viðskrh. að rétt væri, hvað er þá líklegt að bankinn hafi í heildina tapað miklu? Þetta vildi hæstv. viðskrh. ekki tjá sig um að svo stöddu. Það er að vísu búið að telja upp slíkar tölur í blaðafréttum, hvort sem þær eru réttar, þær upplýsingar sem koma þar fram, fáum við sjálfsagt ekki að vita í dag.
Fékk Hafskip ný lán eftir að eignir þess tóku að falla í verði á almennum markaði? er mér spurn. Það voru tryggingar fyrir hendi fram á síðasta ár, sagði hæstv. viðskrh. Matthías Bjarnason áðan. Fékk Hafskip ný lán eftir að eignir þess tóku að falla í verði á almennum markaði? er mér þá aftur spurn. Ef svo er, var þá krafist nýrra trygginga? Var þá krafist nýrra veðbókarvottorða? Var þá krafist yfirlits yfir stöðu fyrirtækisins, reikningsyfirlits? Var krafist nýrra trygginga ef í ljós kom að hinar fyrri stóðu ekki lengur undir lánunum sem veð? Þær tryggingar sem settar höfðu verið voru greinilega mjög háðar breyttum aðstæðum í milliríkjaviðskiptum. Þær breytingar sem urðu vegna utanaðkomandi aðstæðna sköpuðust vegna gildandi markaðslögmála í heildarviðskiptum milli þjóða.
Erlendis er venjan sú að þar er fylgst með skráningu skipa og verðmæti þeirra á almennum markaði. Þá er það einnig regla að verðmæti þeirra og skráning eignahlutfalls eigenda er látið uppi við þá aðila sem hagsmuna eiga að gæta, t.d. við þá aðila sem standa í útlánum til eigenda skipa. Hérlendis virðist ekki vera um að ræða neinn slíkan aðila. Enginn virðist fylgjast með og gæta hagsmuna bankans hvað þetta varðar. Það er e.t.v. full ástæða til fyrir yfirmenn slíkra stofnana hérlendis að láta sér þetta mál að kenningu verða og gaumgæfa þetta atriði vel og vandlega. Það hlýtur einhver ákveðinn aðili að fylgjast með verðlagsþróun og markaðsverði skipanna og, allt eftir þróuninni, að færa til tryggingar fyrir útlánum yfir á veðhæfar eignir, eignir sem standa undir veðum.
Það virðist vanta eins konar loftvog í þessi viðskipti. Í það minnsta virðist það augljóslega vanta þegar um er að ræða að lánað er út á eignir sem eru þesslegar að matshlutfall eða matsverð þeirra á það á hættu að falla eða stíga sitt á hvað eftir því hvaðan vindurinn blæs. Það er þess vegna nauðsynlegt að fá um það upplýsingar hvað það er sem er á seyði. Það verður að koma fram á hvaða tíma lánin voru veitt. Það verður líka að koma fram hvort þá voru fengin ný veðbókarvottorð þannig að veðhæfi eignanna væri þar með endurmetið. Er það ekki þannig að öll viðskipti bankans eru tryggð af hálfu ríkisins og því eðlilegt að tryggingar fáist að nýju?
Nú vill það svo til að það dæmi sem hér er til umræðu í dag er komið fram á sjónarsviðið vegna þess að blaðamenn hafa komist á snoðir um að ekki virtist allt með felldu. Samt sem áður hafa liðið heilir fimm mánuðir frá því að fréttir fóru að birtast um þetta mál í blöðunum þar til það virkilega kemst upp á yfirborðið. Gerðu þingkjörnir bankaráðsmenn sér enga grein fyrir því hvað málið var alvarlegt? Höfðu þeir ekki fengið réttar upplýsingar? Létu bankaráðsmenn e.t.v. ekki allar upplýsingar ganga áfram til sinna flokka, hverja þeir voru fulltrúar fyrir í bankaráðinu? Eitt er víst og öruggt. Alþingismenn hafa þegar komið hér í ræðustól og afneitað því á síðasta þingi eftir að blaðafréttir fóru að berast að nokkuð gæti verið athugavert. Það bendir til þess að réttar upplýsingar hafi ekki borist - eða er það samtryggingin sem þarna er á svo yfirgengilega háu stigi? Nú er það hins vegar upplýst að lántaka eða megnið af lántöku Hafskips átti sér stað á meðan verðgildi skipafélagsins á almennum markaði var miklu hærra og stöðugra en það er í dag. En gefur það ekki einmitt ástæðu til að spyrja: Hvað með það skipafélag sem hefur á að skipa margfalt stærri skipastól en Hafskip hefur? Getur það átt sér stað að Eimskip hafi þurft að fá lán einhvers staðar? Hefur ekki skipastóll Eimskipafélagsins að sama skapi rýrnað að verðgildi? Og ef rétt reynist, hvað þá með tryggingar, veðhæfi eigna Eimskipafélagsins fyrir þeim lánum?
Nú hefur einnig verið upplýst að Eimskipafélagið hefur hug á að kaupa eignir Hafskips og skipaleiðir. Það gefur tilefni til þess að spyrja: Þarf Eimskipafélagið e.t.v. að taka lán til þeirra kaupa? Hvernig er með verðmæti eigna Eimskips? Hafa eignir þess félags ekki fallið í verði líkt og eignir Hafskips?
Í Helgarpóstinum 3. október er grein sem mig langar til að vitna í. Þar eru hugleiðingar einmitt hvað þetta varðar, en þar segir:
„Þarna var stigið fyrsta skrefið í átt til samvinnu, en ef af sameiningu hefði orðið hefði það kostað Eimskip yfirtöku á öllum skuldum Hafskips og jafnvel Eimskip hefði ekki ráðið við þær. Fyrst ekki tókst að koma á samvinnu hvað þá sameiningu skipafélaganna tveggja virðist aðeins eitt blasa við Hafskip, þ.e. að félagið verði gert upp. Raunar eru margir undrandi á því að félagið skuli enn vera í rekstri, fyrirtæki sem skuldar langt umfram eignir, og sá galli er á gjöf Njarðar að tíminn vinnur ekki með Hafskip. Hins vegar má vera að hann vinni með tilteknum einstaklingum hjá Hafskip og öðrum sem tengjast fyrirtækinu frá fyrri tíð og má þar nefna Albert Guðmundsson fjmrh.“
Og áfram vil ég vitna, með leyfi forseta, í þessa grein: „Albert Guðmundssyni er í mun að bjarga Hafskipi frá því að sökkva vegna afskipta hans af fyrirtækinu og lánafyrirgreiðslum Útvegsbankans til þess á sínum tíma, en þær voru ótæpilegar. Sumir ganga svo langt að segja að pólitísk framtíð fjmrh. sé í veði. Fari Hafskip á hausinn, eða verði réttara sagt leyft að fara á hausinn, komi upp á yfirborðið staðreyndir um fyrirgreiðslu ráðherrans og fyrrv. bankaráðsformannsins sem taki út yfir allan þjófabálk. Að auki skjótist svo upp á yfirborðið ýmsir göróttir hlutir úr rekstri Hafskips sem kunni að kalla á sérstaka rannsókn.“
Það virðist vera svo að Eimskipafélagið hafi vart næg verkefni fyrir þau skip sem það á þegar og þá spyr ég: Hvað hefur Eimskip að gera við að kaupa upp eignir Hafskips? Ég vil einnig spyrja: Fær ekki Eimskipafélagið skipaleiðir Hafskips hvort eð er ef Hafskip hættir siglingum um þær leiðir sem það hefur nú? Er þetta allt saman gert til þess hugsanlega að bjarga andliti Útvegsbankans og stjórnenda hans?
Það kemur einnig upp í hugann þegar þetta mál er grannt skoðað hve háum fjárhæðum nemi útlán bankans til annarra fyrirtækja og þá til hverra. Hvert er hlutfallið af lánafyrirgreiðslu Útvegsbankans annars vegar til Hafskips og hins vegar til einstakra annarra fyrirtækja? Einnig vaknar spurningin um hvort Hafskip hafi ekki einnig fengið lán annars staðar. Hvaða tryggingar hafa þá verið settar fyrir þeim lánum? Auðvitað hlýtur bankinn að meta hve miklu hann mundi tapa við að stoppa þessi viðskipti og láta Hafskip fara á hausinn. Hann hlýtur að vega og meta þá möguleika sem séðir verða í stöðunni. Bankinn getur auðvitað tekið þá ákvörðun út frá einhverjum gefnum líkum að það geti verið hagstæðara allra hluta vegna að láta fyrirtækið rúlla áfram. Bankinn getur út frá þessum líkum metið stöðuna sem svo að tapið verði minna en ella hjálpi hann til við að fyrirtækið rúlli áfram og eygi með því möguleika í framtíðinni til að greiða upp skuldir sínar.
En þessi atburður, sem nú hefur átt sér stað og kominn er upp á yfirborðið, virðist undirstrika það, sem Bandalag jafnaðarmanna hefur hvað eftir annað bent á og gagnrýnt, að bankakerfið er með öllu óhæft til að takast á við aðstæður sem þessar. Þegar slíkar aðstæður hafa þróast getur núgildandi fyrirkomulag orðið til mestu óþurftar. Þetta fyrirkomulag er þannig að fámennisvaldið, sem skapast hefur, er með ólíkindum og miðstýringin er alger. Með þessu fyrirkomulagi hljóta hagsmunir bankans og þeirra sem aftur eiga hagsmuna að gæta í formi inneigna o.s.frv. ætíð að víkja fyrir hinu almenna efnahagsástandi. Hagsmunir þeirra hljóta samkvæmt þessu að verða að víkja fyrir hinu almennu efnahagsástandi hins miðstýrða ríkiskerfis. Með þessu móti er bankinn notaður sem tæki í eða við stýringu eða stjórnun og þar með látinn venda allt eftir því hvernig vindar blása í peningamálum þjóðarinnar og eftir almennu efnahagsástandi. Á Vesturlöndum tíðkast, alveg þveröfugt við þá bankapólitík sem hér er rekin, að þar eru það bankarnir sjálfir sem eru sjálfstæðir gagnvart ríkisvaldinu og þar með eru það þeir sem spyrna við fótum þegar efnahagspólitíkin hefur farið úr böndunum. Ef eitthvað hefur verið farið að fara verulega úrskeiðis verka bankarnir sem bremsa á framhald slíkrar þróunar. Hérlendis hefur einmitt tíðkast hið gagnstæða. Hér eru það hinir pólitísku flokkar sem eiga sína menn í bankaráðunum og í flestum tilfellum sömu mennina og jafnframt eiga sæti á vegum flokkanna á Alþingi.
Ég vil þá fá að vitna aftur í Morgunblaðið þann 12. júní þar sem Halldór Halldórsson segir svo:
„Á aðalfundinum á föstudaginn, eftir birtingu Helgarpóstsgreinarinnar, var mikið í húfi fyrir stjórnendur fyrirtækisins og stjórn þess að fram kæmi gífurleg samstaða á fundinum. Vegna rekstrarerfiðleikanna var þetta raunar bráðnauðsynlegt hvort sem var. En nú skyldi blásið í herlúðra. Á þessum fundi var stigið fyrsta opinbera skrefið til þess að berja niður sannleika þann sem Helgarpósturinn hafði birt. Í þetta verk var fenginn önnum kafinn þingmaður, Friðrik Sophusson varaformaður Sjálfsttl. Hann flutti kröftuga kosningaræðu, „peppræðu“ eins og það er kallað, og hljóp svo strax af fundi niður á þing. Efnislega sagði Friðrik ekkert um greinina í Helgarpóstinum, heldur talaði hann um sorprit sem lifði á því að segja gróusögur. Það er þeirra „bissniss“, sagði varaformaðurinn sem ósjaldan hefur verið viðmælandi HP og raunar ekki verið tregur til þess að úttala sig einmitt í Helgarpóstinum. Hingað til hafa samskipti ritstjóra HP og varaformannsins verið með ágætum og einkennst af gagnkvæmri kurteisi, en nú hefur Friðrik Sophusson því miður tekið það að sér að vera fyrsti flutningsmaður fyrir fyrirtæki þar sem ekki er allt sem sýnist og er það spá mín að hann eigi síðar eftir að óska þess að hann hefði aldrei orðið við ósk Hafskips um að halda „peppræðuna“.
Friðrik tók pólitíska áhættu. Öðru máli gegnir um fjármálaráðherra Íslands því hann hefur verið viðriðinn Hafskip og Útvegsbankann um hríð. Hann var búinn að taka sína áhættu og því gat hann umhugsunarlítið tekið að sér að stjórna þessum aðalfundi og sjá um annan þátt í sýningunni á honum. Albert bað nefnilega fundarmenn að standa upp alla sem einn til þess að sýna samstöðu með stjórn og stjórnendum fyrirtækisins.“
Það er þess vegna sem ég segi að hérlendis hefur einmitt tíðkast hið gagnstæða við það sem tíðkast erlendis, að hér eru það hinir pólitísku flokkar sem eiga sína menn í bankaráðunum og í flestum tilfellum sömu mennina og jafnframt eiga sæti á vegum flokkanna á Alþingi. Þar með hafa flokkarnir verið komnir svo rækilega báðum megin við borðið að kertinu hefur ekki verið til að hagga. Allir eiga hagsmuna að gæta og kyrja einum rómi: Samtryggingin lifi! Vegna þess, sem fram hefur komið í fréttum og haft var eftir einum bankastjóra Útvegsbankans, að tryggingar fyrir lánum bankans til Hafskips séu nægar, ef ekki í eigum Hafskips þá í eigum hluthafa, er nauðsynlegt að fram komi hve margir hluthafar í Hafskipi hafa lagt eignir sem tryggingu fyrir lánum til Hafskips. Eru það allir hluthafar sem um ræðir? Er þar með trygging fengin í eignum hæstv. fyrrv. fjmrh. og núv. iðnrh.? Ef svo er verð ég að segja alveg eins og er að það er það siðlausasta af öllu sem ég get hugsað mér.
Í bréfi til ritstjórnar Helgarpóstsins segir svo, með leyfi forseta:
„Útvegsbankinn og Hafskip. Eftirfarandi athugasemd birtist í Morgunblaðinu þann 16. júní 1985. Bankastjórn Útvegsbanka Íslands vill taka það fram að fullyrðingar sem koma fram í blaði yðar þann 12. þ.m. í grein Halldórs Halldórssonar ritstjóra Helgarpóstsins um tryggingar bankans vegna skuldbindinga Hafskips hf. eru úr lausu lofti gripnar. Tryggingar bankans eru í eignum fyrirtækisins og hluthafa.
Undir þetta rita fyrir hönd bankastjórnar Útvegsbanka Íslands Lárus Jónsson og Ólafur Helgason.“ Með leyfi forseta er spurt í svari við þessu bréfi: „En þá vakna spurningar: Hvaða hluthafar hafa gengist í ábyrgð, hvaða eignir er verið að tala um og hvaða upphæðir? Á ársreikningi Hafskips hf. fyrir 1984 má sjá að áhættan sem hvílir á Útvegsbankanum er fyrst og fremst tengd erlendum veðskuldum upp á rúmlega 549 milljónir. Þar að auki er félagið með yfirdrætti hjá bankanum upp á 37 milljónir króna. Útvegsbankinn er einnig ábyrgur fyrir þeirri upphæð. Samtals er hér um að ræða 586 milljóna króna áhættuupphæð sem hvílir á Útvegsbankanum (sem vitað er um). Hvaða veð hefur Hafskip hf. upp á að bjóða?. Fyrst og fremst skipaeign.“
Í framhaldi af þessu, hvaða eignir hluthafa það séu sem eru trygging fyrir veðum bankans, vil ég segja sem svo: Sé það virkilega tilfellið að maður gangi undir mann við að bjarga einkaeignum ráðherrans undan hamrinum eða til þess að bjarga einkaeignum ráðherrans frá því að lenda til bankans, þá er dæmið orðið mun svartara en mann óraði nokkurn tíma fyrir. Það er ekki nóg með að þarna eigi sér stað það siðleysi, sem gagnrýnt hefur verið mörgum sinnum af hálfu Bandalags jafnaðarmanna, að ráðherrann eigi þarna tryggt sæti báðum megin við borðið með því að vera á sama tíma formaður bankaráðsins og stjórnarformaður Hafskips ofan á allt saman eins og til þess að kóróna þetta.
Ef ætlunin er að pína Eimskipafélagið til að kaupa eignir Hafskips og skipaleiðir þess, nokkuð sem þeir virðast ekkert hafa við að gera, til þess að bjarga andliti Útvegsbankans og e.t.v. einnig til þess að bjarga einkaeignum Alberts ráðherra Guðmundssonar, held ég að það sé kominn tími til þess að fara að hrista duglega upp í því spillta kerfi sem býður upp á slíka kosti. Er það svo að það sé fullt af fólki sem fer á hausinn og missir allt sitt vegna þessa máls eða er e.t.v. svo tryggilega frá hnútunum gengið að það verði ekki gengið að því fólki sem sett hefur veð og tryggingar í eignum sínum fyrir lánum Hafskips? Er svo frá málum gengið að það verði bara gengið eftir ríkisábyrgðinni og þar með verði farið í það að skattleggja hinn almenna borgara fyrir greiðann? Það verður líklegast það næsta sem þörf er að gera og það nærtækasta að setja upp námskeið fyrir bankastjórana og kenna þeim að segja nei í svona tilfellum. Þeir sem ekki kunna slíkt eru greinilega óhæfir og má til furðu teljast að þeir skuli hafa verið svo lausir á kostunum - eða jáunum í þessu tilfelli.
Mér sýnist alveg augljóst að bankaráð Útvegsbankans hafi verið yfirmáta bláeygt og látið segja sér allt mögulegt án þess að krefjast sannana fyrir því að upplýsingar sem voru fyrirliggjandi reyndust réttar. Það er auðvitað ótækt að það ráð sem er kosið af Alþingi skuli ekki reynast vandanum vaxið þegar til kastanna kemur. Þarna hefur bankaráðið greinilega fengið í hendurnar gögn, upplýsingar, sem að meira eða minna leyti hafa verið sett fram í tölulegu formi. Þær upplýsingar hafa auðvitað verið skýrðar fyrir bankaráðsmeðlimum sem að sjálfsögðu hefur einnig um leið verið gerð grein fyrir því að þarna var háalvarlegt mál á ferðinni.
Það hefur komið til tals í bankaráðinu eftir heimildum blaðsins, sem ég hef tíðast vitnað í hér, að bankaráðið hefði átt að biðja um skýrslu, þ.e. úttekt á samskiptum bankans og Hafskips á þeim tíma sem Albert var bankaráðsformaður og stjórnarformaður Hafskips. Efasemdir höfðu einnig komið fram á þessum fundi um að Hafskip hefði reitt fram réttar upplýsingar til bankans, þ.e. að hugsanlegt hafi verið að Hafskip hafi blekkt bankann.
Það kemur einnig fram samkvæmt heimildarmanni að þarna virðist vera um að ræða að í gangi hafi verið tvö „sett“ af stöðuyfirliti fyrirtækisins, þ.e. hver staða fyrirtækisins væri. Annað „settið“ eða önnur útgáfan hafi verið fyrir innanhúsnotkun, þ.e. fyrir Hafskip, og hin útgáfan, glæsta myndin, fyrir Útvegsbankann. Er þarna ekki um að ræða fölsun eða blekkingu gagnvart bankanum og ef rétt reynist að ársskýrslan hafi verið blekking í þrjú til fjögur ár er það enn svartara. Hver er þá þáttur endurskoðanda fyrirtækisins?
Vil ég þá vitna aftur í Helgarpóstinn þann 31. október 1985, með leyfi forseta:
„Í þessu samhengi má geta þess að í Útvegsbankanum hefur sérstaklega verið ræddur hlutur löggilds endurskoðanda Hafskips, en í ljós hefur komið að hann hafi ekki alltaf beitt sömu reikningsskilavenjunni ár frá ári og virðast frávikin miðast við að fram komi hagstæðari ársreikningur.“
Þau dæmi sem hér hafa komið fram eru auðvitað stór og ljót, en hið sama er auðvitað að eiga sér stað allt um kring. Hvað með alla togarana sem eru á nauðungaruppboðum? Þetta eru allt saman skip sem eru með lán langt umfram veð. Hvað með húsbyggjendurna? Eru þeir ekki líka komnir með lán langt umfram veðhæfi húsa sinna?
Að lokum, virðulegi forseti. Það er auðvitað alveg ljóst að framkvæmdavaldið, ríkisstjórnin ber ábyrgð á þeim fyrirtækjum, sem rekin eru af því eða af hálfu þess, gagnvart löggjafanum. Þess vegna er nauðsynlegt að hér sé gerð gagnger og nákvæm grein fyrir því hvað það er sem er á seyði. Það er alveg ljóst að gera verður um það kröfu að ríkisbankarnir ásamt öðrum ríkisfyrirtækjum verði hafnir yfir slíka gagnrýni og að komið verði í veg fyrir hana með því að gera nauðsynlegar breytingar á þeim og starfsemi þeirra. Starfsemi og starfshættir þeirra eru með þeim hætti nú að sífellt fleiri ástæður skapast og lag gefst til að gagnrýna og til að efast um að rétt sé að málum staðið. Það verður fyrir það fyrsta að skera upp herör gagnvart þessu samkrulli valdþáttanna og taka fulltrúa flokkanna út úr bankaráðunum og það verður að gera bankana óháða ríkisvaldinu með því að hlutur ríkisins í viðskiptabönkunum verði að engu gerður og sjálfstæði þeirra verði þar með algert gagnvart ríkisvaldinu.