14.11.1985
Sameinað þing: 16. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 642 í B-deild Alþingistíðinda. (497)
Hafskip og Útvegsbankinn
Friðrik Sophusson:
Herra forseti. Það er ekki vegna orða málshefjandans sem ég hef ákveðið að taka til máls. Ræða hans gaf ekki tilefni til þess. En þar sem hv. 1. landsk. þm. Kristín S. Kvaran hefur lesið úr Morgunblaðinu þar sem nafn mitt ber á góma tel ég mér skylt að segja nokkur orð og fjalla um atriði sem ég held að sé hollt að komi fram í þessari umræðu.
Hv. þm. Kristín S. Kvaran vitnaði til greinar í Morgunblaðinu eftir Halldór Halldórsson, ritstjóra Helgarpóstsins, en í þessari grein segir Halldór Halldórsson réttilega frá því að ég hafi tekið til máls á aðalfundi Hafskips sem haldinn var um mánaðamótin maí-júní s.l. Hann segir reyndar að sá sem hér stendur hafi flutt kröftuga kosningaræðu, „pepp“-ræðu, eins og það er kallað o.s.frv., o.s.frv.
Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. þá einkunn sem hann gefur minni ræðu. Það er verst að sá sem semur þessa grein var ekki viðstaddur. Það sést síðar í greininni að hann hefur það eftir öðrum sem fór fram á þessum fundi eins og reyndar margt annað sem á við fyrirtækið sem á í hlut. Þar á meðal heldur greinarhöfundur því fram, eins og reyndar kom fram í upplestri hv. þm. Kristínar S. Kvaran, að ég hafi á þessum fundi ekkert um greinina í Helgarpóstinum talað heldur kallað Helgarpóstinn sorprit sem lifði á því að segja „gróusögur“ o.s.frv., o.s.frv.
Það er alveg rétt hjá þeim sem skrifar þessa grein í Morgunblaðið 12. júní að ég talaði ekki um efni greinar í Helgarpóstinum. Hins vegar er það alrangt, og að því eru allmörg vitni, að ég hafi kallað Helgarpóstinn sorprit. Ég vék þeim einum orðum að Helgarpóstinum að ég mun hafa sagt í minni ræðu, ég held ég fari orðrétt með: „Eitt af blöðum bæjarins sem aðallega lifir á slúðursögum“ o.s.frv., o.s.frv. Ritstjóri Helgarpóstsins kýs að setja samasemmerki við það sem ég sagði þarna og hugtakið „sorprit“. Það er auðvitað hans hugarsmíð og lýsir kannske hans hugmyndum um það hvað séu sorprit. En ég notaði orðið slúðursögur og slúður einfaldlega vegna þess að ritstjórinn sem þarna á í hlut hefur sjálfur talað um að Helgarpósturinn lifi á slúðri og hefur t.a.m. kallað á þann sem hér stendur í útvarpsþátt til að fjalla um slúður og þar var sérstaklega minnst á slúður Helgarpóstsins, en Helgarpósturinn er eins og menn vita einn af brautryðjendum slúðurdálka í íslenskum blaðaheimi, og legg ég engan dóm á hvort þetta er góð eða vond blaðamennska.
Hitt er annað mál, og það stendur, að Helgarpósturinn og ritstjórar hans hafa hælt sér af því að hafa haldið úti þætti sem er vinsæll hjá lesendum og þeir kalla sjálfir slúðurdálka og hafa gert það margsinnis.
Það er þess vegna alrangt, sem kemur fram í þessari grein, að ég hafi kallað Helgarpóstinn sorprit. Það er fjarri mér að gera það, og mér þykir leitt að ritstjóri blaðsins hafi sett samasemmerki á milli slúðurdálkanna og þess sem í almennu tali er kallað sorprit. Hitt er svo annað mál að ég hringdi í þennan ágæta ritstjóra, sem er góður kunningi minn, og benti honum á að þarna hefði eitthvað skolast til og bað hann um að leiðrétta þetta. Sú leiðrétting hefur enn ekki komið fram og er nú liðinn dágóður tími. Þetta vildi ég, herra forseti, að kæmi fram þar sem einn ágætur hv. þm. taldi sig þurfa að vitna í þessa grein ritstjóra Helgarpóstsins.
Það sem ég hins vegar sagði á þessum aðalfundi Hafskips var - ég tek það fram að ég er einn af hluthöfum fyrirtækisins og hef verið það um nokkurra ára skeið - að það sem skipti máli nú fyrir þetta fyrirtæki væri að viðurkenna þau vandamál sem við blöstu og reyna að taka á þeim með þeim hætti að viðunandi væri. Þessi ræða var flutt vegna þess að fyrir þessum fundi lá tillaga þess efnis að auka hlutafé fyrirtækisins um 80 millj. kr. og ég var að hvetja fundarmenn til þess að leggja fram fé, gerði það reyndar sjálfur, og gera þannig úrslitatilraun til þess að fyrirtækið gæti lifað af. En þetta er eitt af þeim fyrirtækjum sem séð hafa til þess að næg samkeppni hefur verið á flutningaleiðum til og frá Íslandi. Tillagan um 80 millj. náði fram að ganga. En það er rétt að því miður dugði það ekki til og þess vegna erum við að ræða þetta mál hér í dag.
En það er ekki úr vegi, herra forseti, að fjalla örlítið um þetta mál í nokkuð víðara samhengi en hér hefur verið gert. Í fyrsta lagi vil ég rifja það upp, sem kom fram hjá hæstv. ráðh., að veðhæfni eigna fyrirtækisins minnkaði frá í júní og fram í október um 20%. Þetta hlýtur að vekja upp þær spurningar hvort hér sé um einangrað fyrirbæri að ræða. Ég held að það sé fullkomin ástæða fyrir okkur hv. þm. að kanna það rækilega hvort þetta sé einstakt fyrirbrigði. Ég held að svo sé ekki.
Sannleikurinn er nefnilega sá að á undanförnum misserum hefur gengið yfir einhver mesta kreppa frá því í heimsstyrjöldinni í alþjóðlegri kaupskipaútgerð. Það má gera ráð fyrir því að verðfall á matsverði skipa á undanförnum misserum hafi verið um 70 - 80% og til eru dæmi um að verðfall á þessu ári, aðeins á þessu ári, sé 40%. Ef þetta er fært yfir á íslenska kaupskipaflotann í heild má telja að orðið hafi 2500 - 3000 millj. kr., tveggja og hálfs til þriggja milljarða verðrýrnun á íslenska kaupskipaflotanum. Hlutur Hafskips í þessu dæmi er líklega um 10% eða 200 - 300 millj. kr. Það voru nokkrar vonir bundnar við það um síðustu áramót, seint á síðasta ári og eins í upphafi þessa árs, að á þessu ári mundi skipaverð hækka aftur. En þær vonir hafa algerlega brugðist.
Til þess að benda á dæmi hefur því jafnframt verið haldið fram - ég get ekki sannað það heldur hef þessar upplýsingar frá öðrum en það er til umhugsunar - að nýtt skip skipadeildar Sambands ísl. samvinnufélaga, sem var afhent úr skipasmíðastöð í Bretlandi í upphafi ársins og var að byggingarverðmæti milli 8 og 9 millj. dollara eða 330 - 370 millj. íslenskra króna, sé nú metið á kannske 4 millj. dollara eða um 170 millj. íslenskra króna. Ef þetta er rétt er auðvitað um gífurlegt eignatap að ræða.
En hér er ekki nema hálf sagan sögð. Það hefur ekki einungis orðið hrun á kaupskipaflotanum. Það hefur jafnframt gerst varðandi fiskiskip að alheimsverð á fiskiskipum hefur stórkostlega lækkað á undanförnum misserum. Þetta hefur ekki komið fram á íslenskum markaði vegna þess að við lifum í einangruðu hagkerfi þegar um fiskiskip er að ræða. Við seljum skipin innanlands og það er bannað að flytja ný skip til landsins. Ef hins vegar væri skyndilega opnað fyrir innflutning fiskiskipa má gera ráð fyrir því að raunverulegt markaðsverð fiskiskipanna í landinu mundi stórkostlega rýrna. Ég giska á 30-40% . Og þá má spyrja spurningar og hún er sú: Hvað verður þá um veðhæfni fiskiskipaflotans? Hvað verður um þær tryggingar sem lánardrottnar hafa? Og hvað verður um eigur þeirra manna sem hafa verið að gera út að undanförnu? Þetta er alvarleg spurning. Og ég held að það sé ástæða til þess, þegar við fjöllum um eitt afmarkað svið þessara mála, að gera sér grein fyrir því að þetta er ekki mál sem varðar eitt fyrirtæki, heldur alla þá þjóð sem lifir mestmegnis á því að gera út. Íslenska þjóðin stundar sem aðalatvinnuveg fiskveiðar sem byggjast á fiskiskipastóli og hún verður að afla sér aðdrátta með kaupskipaflota. Það hlýtur þess vegna að vera stórkostlega alvarlegt mál þegar þessi verðrýrnun ríður svona yfir. Ekki síst ef um miklar skuldir er að ræða. Þetta þyrftu menn að ræða og það ætti kannske að þakka málshefjendunum fyrir að koma inn á hv. Alþingi með þessi mál til þess að okkur gefist tækifæri til að ræða umræðuefnið í víðara samhengi en hér hefur verið gert.
Það er hins vegar alveg ljóst að það er ekki einungis verðrýrnun eignanna sem hér er um að kenna. Áhrif Rainbow Navigation-málsins svokallaða og skaðinn sem nýjar vonir og tilheyrandi vonbrigði hafa valdið hefur auðvitað verið tilfinnanleg. Það má gera ráð fyrir að tekjutap íslenskra skipafélaga á 20 mánuðum nemi brúttó um 600 millj. kr. Það má gera ráð fyrir því að nettó sé tapið 300-400 millj. kr., m.a. vegna þess að allur fastur kostnaður var fyrir hendi á siglingaleiðinni til Bandaríkjanna og nægt rými til að veita þjónustuna.
Taprekstur varð líka á síðari hluta ársins 1984 vegna verkfalls sem þá stóð yfir. Skip stöðvuðust sem gátu verið í flutningum annars staðar. Og þó að það komi málinu ekki vitundar ögn við held ég að það sé ástæða fyrir okkur að rifja upp umræður sem þá fóru fram í þessum þingsal um milliliðagróðann í verkfallinu sem Bandalag starfsmanna ríkis og bæja átti í fyrir ári. Þá sagði formaður Alþb., Svavar Gestsson, að það væri kominn tími til þess að taka þennan mikla gróða, sem hefði myndast hjá skipafélögunum, og átti þá við Hafskip og Eimskip. Auðvitað sagði hv. þm. þetta vegna þess að hann trúði því einlæglega að þessi gróði væri fyrir hendi. Menn höfðu ekki nýrri upplýsingar og þeim er auðvitað vorkunn þess vegna. Það er rétt, sem mér heyrist hv. þm. vera að segja, að gróði vár 1983. En það var ljóst í október 1984 að það hafði hallað á hinn bóginn, að það hafði komið fram verulegt tap. Ég benti hv. þm. á þetta þá. Svo brá við að hann hefur ekki minnst á þetta síðan, hvort sem það er vegna minna ummæla eða ekki, og er ég þakklátur fyrir að hann sýnir þessu máli þó þann skilning að hætta að fara með rangt mál. Það er ekki alltaf sem okkur tekst svo vel upp sem erum á öndverðum meiði við hann í pólitík.
Þess er enn fremur rétt að geta að erfið fjárhagsstaða þess fyrirtækis sem hér er rætt um hefur háð fyrirtækinu verulega í samkeppni í erlendu starfi og á Atlantshafssiglingunum. Eins og fram hefur komið í þessum umræðum hefur velta félagsins þrefaldast í ár og tekjuáætlanir hafa nokkurn veginn staðist. En það er líka rétt að það komi fram að það reyndist vera yfir 10% skekkja í kostnaðaráætlunum og það hefur að sjálfsögðu sett það strik í reikninginn sem gert hefur útslagið.
Að minni hyggju er það sorglegt vegna þess að það var verið að gera tilraun til þess að flytja út þjónustu á þessu sviði. Það var verið að gera tilraun til þess af hálfu skipafélagsins að flytja út þjónustu sem Íslendingar eru sérfræðingar í, en það eru siglingar. Þetta höfum við gert í okkar flugmálum. Við höfum stundað leiguflug annars staðar með ágætum árangri. Þarna var gerð úrslitatilraun sem vonir voru bundnar við eins og hv. síðasti ræðumaður gat um í sinni ræðu. Það tókst ekki, því miður. En tilraun var gerð og nú hefur málið orðið með þeim hætti sem við öll þekkjum.
Til fróðleiks má benda á það jafnframt að við rekum skipafélag, íslenska ríkið, Skipaútgerð ríkisins. Velta Skipaútgerðar ríkisins árið 1983 var 170 millj. kr. Þar af kom 51 millj. úr ríkissjóði. Á næsta ári er veltan áætluð 283 millj. kr. Yfir 100 millj. kr. eiga að koma úr ríkissjóði. Það er talsvert meira en nemur öllum launagreiðslum fyrirtækisins. Við höfum því vitandi vits og í okkar fjárlagagerð frá ári til árs verið að greiða niður starfsemi skipafélags sem við rekum en ugglaust aðrir gætu gert. Meira að segja kom það til greina á sínum tíma að önnur skipafélög tækju þennan rekstur yfir og hefði það ugglaust verið hagstæðara. Á þetta minni ég því að það eru og hafa verið erfiðleikar hjá skipafélögunum.
Mér finnst það vera aðalatriðið í þessum umræðum, sem hafa orðið vegna erfiðleika Hafskips, að menn átti sig á því að það hefur orðið verðrýrnun á eignum og þar með er veðhæfni minni á öllum íslenska skipastólnum. Þetta hefur verulega þýðingu fyrir lánardrottna og eigendur.
Veik eiginfjárstaða Hafskips frá upphafi vega leiðir til þess að líklega er sögu þessa fyrirtækis lokið, a.m.k. í óbreyttri mynd. En ég vona það, bæði vegna þess fólks sem vinnur hjá fyrirtækinu og eins vegna allra annarra sem hlut eiga að máli, þar á meðal bankans og sparifjáreigenda, að sem heppilegust lausn fáist á þessu máli. Hún verður ekki til í þingsölum Alþingis, en hún verður vonandi til á næstu dögum þar sem verið er að leysa þetta mál.
Herra forseti. Ég kaus að gefnu tilefni að þessi fáeinu atriði fengju að koma fram í þessum umræðum.