18.11.1985
Efri deild: 15. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 665 í B-deild Alþingistíðinda. (503)
Varamaður tekur þingsæti
Forseti (Stefán Benediktsson):
Deildinni hafa borist eftirfarandi bréf:
„Reykjavík, 18. nóv. 1985.
Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Sjálfstfl. í Reykjaneskjördæmi, Kristjana Milla Thorsteinsson viðskiptafræðingur, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Salome Þorkelsdóttir,
4. þm. Reykn.“
Kristjana Milla Thorsteinsson hefur setið áður á þingi á þessu kjörtímabili. Kjörbréf hennar hefur þegar verið rannsakað og bjóðum við hana velkomna til starfa.
Enn fremur hefur borist annað bréf:
„Reykjavík, 18. nóv. 1985.
Þar sem ég af heilsufarsástæðum get ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Alþb. í Austurlandskjördæmi, Sveinn Jónsson verkfræðingur, taki sæti á Alþingi í forföllum mínum.
Helgi Seljan,
2. þm. Austurl.“
Sveinn Jónsson verkfræðingur hefur setið á þingi þetta kjörtímabil. Kjörbréf hans hefur verið rannsakað og samþykkt. Það er eingöngu því um að kenna að hv. þm. varð fyrir töfum í flugi að hann er ekki mættur þegar á þennan fund, en hann mun vera væntanlegur þar sem flugvél hans mun vera að lenda í þessu augnabliki.