18.11.1985
Efri deild: 15. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 668 í B-deild Alþingistíðinda. (508)
105. mál, hitaveita Reykjavíkur
Þorv. Garðar Kristjánsson:
Herra forseti. Það er ekki ætlun mín nú að fara að ræða þetta frv. efnislega. Það kemur væntanlega í nefnd sem ég á sæti í. En mér þykir eðlilegt að heyra í þessari umræðu, áður en frv. verður vísað til iðnn., hvað hæstv. iðnrh. hefur fram að færa í þessu máli. Ég stend því hér upp af formsástæðum, ef svo mætti segja, og vildi gera það að tillögu minni að umræðunni yrði ekki lokið nú þannig að iðnrh. hefði tækifæri til þess að tjá sig um málið við 1. umr.