18.11.1985
Efri deild: 15. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 668 í B-deild Alþingistíðinda. (510)

105. mál, hitaveita Reykjavíkur

Davíð Aðalsteinsson:

Virðulegi forseti. E.t.v. hefði ég getað sparað mér sporin hingað í ræðustólinn, fyrst og fremst vegna þess að ég á sæti í iðnn. þessarar deildar, en ég vildi þó ekki láta hjá líða að standa upp og segja nokkur orð.

Það er rétt hjá hv. flm. þessa frv. að lögin um Hitaveitu Reykjavíkur eru orðin ævagömul, eða frá því um 1940, þannig að ljóst er að þau lög eru að ýmsu leyti úrelt. Hins vegar megum við ekki gleyma því að löngu eftir að þau lög voru sett voru sett orkulög og felldur inn í orkulög sérstakur kafli um hitaveitur. Fjölda hitaveitna hefur verið komið á fót og þær hafa tekið til starfa og þeirra starfsemi grundvallast m.a. á þeim kafla um hitaveitur sem ég gat um og er í orkulögum.

Hv. flm. gat um að ein meginbreytingin, sem er í 1. gr. frv., felur í sér að borgarstjórn komi í stað bæjarstjórnar, ásamt með því að þar er gert ráð fyrir að hitaveitan öðlist rétt til þess að framleiða og selja rafmagn. En hitt er ljóst að í velflestum greinum laganna um Hitaveitu Reykjavíkur frá 1940 er getið um bæjarstjórn en ekki borgarstjórn. Á þessu sjáum við að það hefur verið ástæða til að taka þessi lög til athugunar, endurskoðunar og umorðunar.

Ef ég skil hv. flm. rétt er meginefni þessa frv. að Hitaveitu Reykjavíkur verði veittur réttur til að framleiða og selja rafmagn. Nú leikur mér forvitni á að vita hvort slíkar tillögur - fyrir það fyrsta hugrenningar og í öðru lagi tillögur - eru uppi af hálfu forsvarsaðila Hitaveitu Reykjavíkur, bæði þeirrar stofnunar sem rekin er á sérstökum reikningi og hins vegar í borgarstjórn Reykjavíkur. Ég tel að hér sé lögð til svo mikil breyting að því er varðar 1. gr. frv. að hjá því verði ekki komist að leita upplýsingar frá hv. flm. um hvort slíkar óskir liggja fyrir af hálfu borgaryfirvalda.

Hvað snertir 1. gr. þykir mér nokkuð einkennilegt, og þá vísa ég til samanburðar við til að mynda Hitaveitu Suðurnesja, að í þessari grein er ekki gert ráð fyrir neinum skorðum að því er varðar orkumagn, framleiðslu hennar eða sölu. Þá er ég með rafmagn í huga. Þar eru engar skorður. Er það fyrirhugað af hálfu flm. að þessi heimild verði ótakmörkuð? Að vísu koma orkulög þarna til skjalanna.

2. gr. er að mínum dómi gersamlega óþörf vegna þess að í orkulögum stendur, með leyfi forseta, þ.e. í kaflanum um hitaveitur:

„Nú hefur einkaleyfi verið veitt til þess að starfrækja hitaveitu skv. lögum þessum og skal þá, áður en veitan tekur til starfa, setja henni gjaldskrá er ráðherra staðfestir.“

Eftir því sem ég veit best setja í raun allar orkuveitur landsins gjaldskrá sem er háð staðfestingu ráðherra. Að vísu er Landsvirkjun ekki háð slíkum ákvæðum. Menn minnast frv. sem hér var til umfjöllunar líklega á haustdögum 1983. Út voru gefin brbl. fyrir tilstilli hæstv. fyrrv. iðnrh. Hjörleifs Guttormssonar um að gjaldskrár Landsvirkjunar þyrftu að hljóta staðfestingu iðnrh. Við munum það allir, hv. alþm., að þau lög fengu ekki staðfestingu á hv. Alþingi.

Varðandi 3. gr. er það alveg ljóst að a.m.k. síðan 1981 hefur Hitaveita Reykjavíkur notið eftirgjafar að því er varðar aðflutningsgjöld og söluskatt af efni og tækjum og vélum sem talist hafa nýbúnaður. Það hefur ekki verið um það að ræða að niður hafi verið felld aðflutningsgjöld og söluskattur vegna lagnanna sjálfra.

Hv. flm. gat um að á vegum Hitaveitu Reykjavíkur væri í þann mund verið að ráðast í mjög miklar framkvæmdir. Því miður er hæstv. iðnrh. ekki hér og eru margir sem harma það og ég er einn þeirra. Hins vegar má vel vera að hv. flm. hafi kynnt sér málefni Hitaveitu Reykjavíkur svo vel að hann geti upplýst mig um hvort til orða hafi komið á vegum borgarinnar og á vegum Hitaveitu Reykjavíkur að kaupa raforku af Landsvirkjun við góðu verði til upphitunar vatns, einfaldlega vegna þess að það er mikil raforka umfram í orkukerfinu, eins og kunnugt er, og hvort slík ráðstöfun gæti hugsanlega byggt undir það að hægja á og seinka framkvæmdum þeim sem hv. flm. þessa frv. drap á. E.t.v. hefur hv. flm. eitthvað að segja okkur deildarmönnum um þetta efni.

En aðalafriðið varðandi frv. er í mínum huga þetta: Eru uppi óskir af hálfu borgaryfirvalda í Reykjavík þess efnis að Hitaveita Reykjavíkur stofni til raforkuframleiðslu og raforkusölu í náinni framtíð?