18.11.1985
Efri deild: 15. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 672 í B-deild Alþingistíðinda. (513)

105. mál, hitaveita Reykjavíkur

Davíð Aðalsteinsson:

Hæstv. forseti. Það er þá fyrst til að taka vegna orða hv. 4. þm. Vesturl. um að forsetar þessarar hv. deildar séu að skipuleggja einhvers konar maraþonumræður meðan beðið er eftir ráðherrum að það má vel vera að eitthvað sé til í því, en ekki er það svo alfarið.

Hv. flm. viðhafði þau orð úr ræðustól að honum sýndist hv. 5. þm. Vesturl. sýna af sér dæmalausa stofnanaþægð, eins og hann orðaði það. Það var helst á honum að skilja að honum fyndist sem ég hefði hagað orðum mínum þannig að mér finnist eðlilegt að flytja þingmál eftir pöntun hinna ýmsu stofnana í landinu. Mínu hugarfari er síður en svo þannig farið. Hins vegar tel ég mjög eðlilegt með tilliti til þessa máls, sem hér er á ferðinni, að inna hv. flm. eftir því hvort þessi mál hefði borið á góma meðal forsvarsmanna hitaveitunnar, æðstu stjórnenda hennar, og taldi mjög eðlilegt að kalla eftir slíkum upplýsingum.

Ég vísa því alfarið á bug að það sé mín skoðun að þm. eigi að flytja mál eftir pöntun og ekki ætla ég að efast um góðan hug hv. flm. til kjósenda hans hér í Reykjavík.

Ég fullyrti ekkert um það í minni ræðu að Hitaveita Reykjavíkur ætti kost á ódýru rafmagni. Ég varpaði því fram hvort hv. tlm. væri kunnugt um umræður af því tagi hvort hitaveitan ætti kost á ódýru rafmagni. Það var það sem ég sagði.

Ég vil taka fram að þegar rætt er um ódýrt rafmagn er það afstætt og þá eru menn auðvitað með í huga ódýrara rafmagn en almennt gerist hérlendis. Við erum ekki að tala um orkuverð í öðrum löndum. Þetta er afstætt innanlands fyrst og fremst.

Til að fyrirbyggja allan misskilning lýsi ég ekki á þessari stundu yfir eindregnum stuðningi við þetta frv. Ég vil geta þess sérstaklega vegna þess að í orðum hv. 4. þm. Vesturl. fannst mér það koma fram. Ég held að ég muni það rétt að hann hafi sagt sem svo að hér hefðu menn komið hver á eftir öðrum í virðulegan ræðustól og lýst yfir fylgi, eindregnum stuðningi, við frv. Því er ekki þannig farið af minni hálfu. Ég áskil mér allan rétt til að inna aðstandendur þessa fyrirtækis eftir þeirra viðhorfum. Eftir þeim viðhorfum verður að sjálfsögðu leitað við umfjöllun málsins í iðnn. Og hef ég þessi orð ekki fleiri.