19.11.1985
Sameinað þing: 17. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 706 í B-deild Alþingistíðinda. (539)

Eldgos í Kólumbíu

Eiður Guðnason:

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Ólafi Ragnari Grímssyni fyrir að hafa tekið þetta mál upp með þessum hætti og jafnframt fagna því að hæstv. ríkisstj. skuli hafa ákveðið að láta nokkurt fé af hendi rakna til hjálparstarfsins sem þarna á sér nú stað. Ég vil sömuleiðis lýsa fullum stuðningi þingflokks Alþfl. við þá hugmynd að sett verði á laggirnar samstarfsnefnd til að kanna með hverjum hætti við getum veitt annars konar aðstoð og þar á meðal nýtt okkur þá miklu sérfræðiþekkingu sem okkar ágætu vísindamenn á þessum sviðum búa yfir. Ég hika ekki við að fullyrða að þeir vísindamenn séu meðal þeirra fremstu á sínu sviði í veröldinni og hafa langa reynslu og mikla í þessum efnum. Okkur ber skylda til að sjá til þess að þeirra þekking, þeirra vitneskja og kunnátta komist á framfæri. Mér sýnist þetta vera nokkuð góð leið til að byrja á því að menn ræði hér saman um þetta, fulltrúar allra þingflokka á Alþingi. Af hálfu Alþfl. er hér með lýst stuðningi við þá hugmynd.