19.11.1985
Sameinað þing: 17. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 716 í B-deild Alþingistíðinda. (558)

93. mál, dráttarvextir

Samgrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Svar við 1. lið fsp.: Hjá viðskrn. er unnið að samningu frv. um dráttarvexti sem m.a. mun hafa að geyma ákvæði um hvernig reikna skuli vextina. Mér er sagt að samning frv. gangi allvel og að frv. verði lagt fram á þessu þingi og hugsanlega fyrir jólaleyfi þm., en þó þori ég ekki að fullyrða það á þessu stigi.

Svar við 2. lið: Með samningu frv. um dráttarvexti er unnið að setningu meginreglna um þau atriði sem þessi liður fsp. lýtur að. Ég tel því ekki rétt að svo stöddu að lýsa þeim meginreglum sem að mínu mati eiga að gilda í þessu efni því að það mun koma í ljós þegar frv. verður lagt fram á Alþingi og verður mælt fyrir því.

Um 3. og síðasta lið: Ég tel mig þess ekki umkominn að svara honum því að þetta mál heyrir alfarið undir dómsmrh. og við erum svo formfastir í þessari ríkisstj. að við göngum aldrei hver inn á annars verksvið.