19.11.1985
Sameinað þing: 17. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 725 í B-deild Alþingistíðinda. (575)

103. mál, fræðsla til varnar vímuefnaneyslu

Fyrirspyrjandi (Kristín S. Kvaran):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. menntmrh. svörin. Það er gott að heyra að stefnumótun á sér stað í ráðuneytinu og á vegum þess, en að sama skapi er leitt að vita til þess að ekki skuli vera farið að nálgast það að um reglubundna fræðslu verði að ræða á næstunni úti í skólunum.

En það ber e.t.v. að einbeita sér að þeim sem eiga að fræða börn og unglinga. Mér dettur í hug: Hvað er fyrirbyggjandi starf? Það er ekki nóg að koma á laggirnar viðeigandi meðferð fyrir þá sem þegar hafa dottið í brunninn. Markmið okkar hlýtur að verða að koma í veg fyrir að nokkrum þyki eftirsóknarvert að kanna botninn á brunninum.

Fræðsla um afleiðingar vímuefnaneyslu hefur takmarkast við afmarkaða atburði. Undanfarin ár hefur fræðslan mestmegnis verið í því formi að 1-2 daga á vetri hafa fræðslufulltrúar frá SÁÁ farið í skóla og gert grein fyrir þróun alkóhólisma. Þess ber að geta að þróun fíknar er nokkuð svipuð hver sem vímugjafinn er, nema þróunin fer hraðar niður á við þegar í hlut eiga lyf eða fíkniefni.

Ég ætla að gera grein fyrir þeim rökum sem eru með og á móti þessu fyrirkomulagi. Sé tekið mið af gamla forminu, þar sem fulltrúar Góðtemplarareglunnar komu í heimsókn einu sinni á vetri og veittu fræðslu um skaðsemi áfengis og tóbaks, eins og við flest kannske munum eftir sem hér erum inni, er núverandi form hreint himnaríki. Gamla formið var stirt og þurrt og leiðinlegt og náði eyrum fárra. Heimsóknir SÁÁ manna hafa alla jafna vakið mikla athygli, vakið margar spurningar og leitt til líflegra umræðna. Auk þess hafa þessar heimsóknir oftlega vakið hlustendur til umhugsunar um eigin neyslu.

En neikvæðu þættirnir eru þessir og vil ég sérstaklega vekja athygli á þeim: Hér er á ferðinni afmarkaður atburður sem hugsanlega veldur hræringum einn dag eða svo og fellur síðan í gleymsku. Fræðslufulltrúarnir hafa jafnan verið óvirkir alkóhólistar sem segja sögu sína og viðbrögð geta verið þau að hlustendur hugsi sem svo: Vá, þessi gæi hefur upplifað margt og spennandi og hann er kominn út úr þessu. Ég vil prófa þetta líka og slepp örugglega líka.

Í grunnskólalögunum er kveðið á um að skylt sé að uppfræða nemendur um skaðsemi áfengis og tóbaks og spurningin er hvort setja þurfi nú sérstaklega í þessa grein ákvæði sem varðar fræðslu um vímuefni.