19.11.1985
Sameinað þing: 18. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 745 í B-deild Alþingistíðinda. (585)
Okurmál
Jón Baldvin Hannibalsson:
Herra forseti. Nýlega gerðist það að maður nokkur kom í einn af ríkisbönkunum til að greiða þar af skuldabréfi sem bankinn hafði tekið í innheimtu. Honum var gert að greiða upphæð í vexti - þetta voru ekki mjög háar tölur, tæpar 22 þús. kr. og í verðbætur eitthvað tæplega 33 þús. kr. eða samtals tæpar 80 þús. kr.
Nú vildi svo til að þessi maður er bókhaldskennari að starfi. Honum komu þessar tölur spánskt fyrir sjónir og fór að kanna málið. Það kom á daginn að ríkisbankinn var að krefja þennan mann um að greiða verðbótaþátt miðað við lánskjaravísitölu frá upphaflega útgefna bréfinu án tillits til þess að af því hafði verið greitt oftar en einu sinni og munaði þar verulega. Í annan stað kom á daginn að bankinn áskildi sér rétt til að krefjast greiðslu á forsendum breytilegra vaxta þótt á bréfinu stæði að það bæri 3% vexti.
Á þessum forsendum var maðurinn krafinn um verðbótagreiðslu upp á 178 þús. og eftirstöðvar hækkaðar upp í 346 þús. Alls var hann krafinn um greiðslu vaxta og verðbóta upp á 80 þús. Þegar maðurinn fór að leggja þetta mál niður fyrir sér og leita leiðréttingar kom á daginn að þetta hafði allt saman verið kolvitlaust gert í bankanum. Viðmiðun lánskjaravísitölunnar var röng, vaxtaútreikningurinn var rangur. Eftir mikið japl og jaml og fuður kom á daginn að í stað 22 þús. kr. vaxtagreiðslu bar manninum að greiða 9 þús. kr. Bankinn hafði því haft af manninum 57% hærri upphæð í vexti en vera átti. Verðbætur áttu í sama stað ekki að vera 33 þús. kr. heldur 20 þús. kr. Ríkisbankinn hafði því tekið af manninum 40% hærri upphæð en vera bar. Til greiðslu voru þess vegna ekki 80 þús. kr. heldur 29 þús. kr. Og alvarlegast var þó að eftirstöðvar með verðbótum áttu ekki að vera 346 þús. kr. heldur 270 þús. kr. Þannig hafði maðurinn verið skuldfærður fyrir 76 þús. kr. meira en vera bar. Þetta var í einum ríkisbankanum. Ég tek það fram að þessi maður er bókhaldskennari og hefur það að starfi daglega að kenna börnum og unglingum reikningsdæmi af þessu tagi.
Á hverjum degi berast gluggaumslög til borgara þessa lands í tuga og þúsunda tali frá þessum sömu ríkisbönkum, þetta er rútínumál. Ég spyr: Í hve mörgum tilvikum eru þessar greiðslukröfur kolrangar vegna þess að hér er um rútínumál að ræða? Ef þetta getur hent í einum af ríkisbönkunum með svona hætti er ástæða til að spyrja: Er ekki óvissan, flækjan, kunnáttuleysið í þessum málum orðið slíkt að það sé nánast stórhættulegt? Má það vera að allflestir, sem taka við þessum gluggaumslögum og þessum reikningsfærslum athugasemdalaust í ofurtrú á bankakerfið, séu að greiða þarna sem svarar kannske tugum og hundruðum þúsunda umfram það sem þeim ber?
Hvað er okur? Almenna reglan er sú að ekki er heimilt að taka hærri ársvexti en sem svarar þeim vöxtum er stjórn Seðlabankans leyfir bönkum og sparisjóðum.
Hvað er okur? Það er okur hafi maður nokkur notað sér bágindi annars manns, einfeldni hans, fákunnáttu eða léttúð eða það að hann var honum háður til að afla sér hagsmuna eða tekna.
Hvað er okur? Er þetta dæmi um okur þó að það sé okur fyrir mistök? Er refsivaxtataka Seðlabankans okur? Er sjálfvirk refsivaxtainnheimta ríkisbankanna af innistæðulausum ávísunum upp á 835% á ári okur? Er gengisvaxtapráxís, þ.e. affallasala einkabankanna sem nú er orðin regla og Seðlabankinn hefur ekkert aðhafst um, það að selja viðskiptavíxla á kaupgengi sem samsvarar affallasölu og þýðir 55% vexti í staðinn fyrir rúm 30%, okur? Er okur stundað í bankakerfinu? Er óvissa manna um það hvað er okur orðin slík að við séum ekki bara að tala um menn sem stunda okurlán sín í skjóli leyndar? Það er orðið mikið álitamál hvað okur er og hvað er leyfilegt í þessum efnum.
Ég tók eftir því í umræðum um stefnuræðu forsrh. að í þjóðhagsáætlun stóð, ef mig misminnir ekki, að það væri eitt af stefnumálum núv. hæstv. ríkisstj. að fella úr gildi núgildandi lagaákvæði um okur. Nú leyfi ég mér að spyrja: Hvað líður þeim áformum? Og hvað er á bak við þau áform? Er það sá skilningur hæstv. ríkisstj. að lögin hamli nú þegar algildum praxís og þess vegna beri að fella þau úr gildi? M.ö.o., er þess að vænta að t.d. innan mánaðar, upp úr áramótum, verði þessi lög numin úr gildi og þá taki gildi önnur lög sem þýði að þeir okurlánarar, sem nú hafa verið teknir, megi vænta þess að starfsemi þeirra verði framvegis lögleg?
Herra forseti. Hæstv. fjmrh. sagði áðan í tilefni af affallasölu hans á spariskírteinum ríkissjóðs að því færi víðs fjarri að það mundi leiða til hækkunar vaxta. Engu að síður er það nú staðreynd að fyrir bankaráðum ríkisbankanna liggja tillögur seðlabankastjórnar um hækkun á vöxtum, ekki bara að tryggja sparifjáreigendum það sem þeim að sjálfsögðu ber, fulla verðtryggingu til samræmis við verðbólgustig, 37% á innlánum, heldur líka vaxtahækkun á útlánum, bæði verðtryggðum og óverðtryggðum. Hvaða rökum er þetta stutt? Þetta er stutt þeim rökum af hálfu bankastjóra ríkisbankanna að þetta sé algerlega nauðsynlegt fyrir bankakerfið til að mæta vaxandi samkeppni af hálfu hæstv. fjmrh.
Ákvarðanir hafa ekki verið teknar en því er borið við að það sé ekki gerlegt vegna þess að innan hæstv. ríkisstj. sé ríkjandi þessi venjulegi ágreiningur um það hver sé rétt vaxtastefna. M.ö.o., því er haldið fram að sumir a.m.k. í þingflokki Framsfl. andæfi og þess vegna hafi ekki fengist tekin ákvörðun.
Að öðru leyti skal ég taka fram að ég var að mörgu leyti sammála almennum hugleiðingum hæstv. fjmrh. um vaxtastig og hvernig gera megi sér vonir um að keyra niður vexti. Við erum í allt öðrum sporum nú árið 1985 að því er varðar möguleika okkar til vaxtapólitíkur en við vorum þegar samstarfsflokkur hæstv. fjmrh., Framsfl., kom til valda 1971 og setti þetta efnahagskerfi svo gersamlega úr skorðum að það hefur ekki beðið þess bætur síðan. Við erum mörgum tugum þúsunda milljónum fátækari en við vorum. Okkur hefur síðan verið sökkt svo gersamlega í skuldir. Það er rétt. Hlutfall erlends fjármagns á mjög háum raunvöxtum er orðið svo gífurlega hátt. Búið er að sökkva sjávarútveginum okkar sérstaklega í slíkt skuldafen erlendra skulda að honum er um megn að standa undir ávöxtunarkröfum þess fjármagns. Allt er þetta satt og rétt og auðvitað hefur þetta veruleg áhrif á getu ríkisstjórnar til að móta vaxtastefnu.
En ég verð að bæta hinu við, hæstv. fjmrh., að það hafi alls ekki orðið þau umskipti í tíð núv. ríkisstj. sem hann hefur stundum verið að gefa í skyn og jafnvel verið að guma af. Það er alveg augljós staðreynd að í tíð þessarar ríkisstj. hefur orðið um stórkostlega aukningu að ræða á erlendum skuldum þrátt fyrir þá staðreynd að vextir hafa farið þar hækkandi. Það er staðreynd að ríkissjóður hefur lengst af í tíð þessarar ríkisstj. verið rekinn með dúndrandi halla, þ.e. hann hefur verið rekinn með seðlaprentun sem þýðir innstreymi erlends fjármagns. Það er líka staðreynd að núverandi hæstv. ríkisstj. hefur haldið hér uppi röngu gengi sem hefur þýtt gífurlegar byrðar á sjávarútveginn og um leið ýtt undir spákaupmennsku, innflutningsæði og þenslu.
Þetta ber öllum saman um og þetta hafa hagfræðingar Vinnuveitendasambandsins farið svo oft með yfir hæstv. fjmrh. að hann mun kunna það. Stefna núv. ríkisstj. er ein aðalorsök verðbólguþenslu í íslensku þjóðfélagi. Það er stefna núv. hæstv. ríkisstj. sem veldur þrýstingi í þá átt að halda uppi of háum vöxtum og þessu fræga misgengi milli atvinnuveganna í leiðinni. Þenslan, sem birtist í miklum innflutningi, nýtur góðs af þessari efnahagsstefnu. Hrun sjávarútvegsins stafar að verulegu leyti - fyrir utan aðrar sögulegar forsendur - af þessari efnahagsstefnu.
M.ö.o., það sem núv. ríkisstj. hefur gert er sannanlega ekki að stefna í rétta átt. Að vísu var það til bóta að bera fram vantraust í Stykkishólmi á hæstv. fyrrv. fjmrh. sem að sönnu skv. öllum staðreyndum reyndist óhæfur fjmrh. Enn vil ég gera mér vonir um að arftaki hans bæti ögn um betur. Þó vil ég leyfa mér að lýsa efasemdum um það, ekki vegna mannsins sjálfs heldur fyrst og fremst vegna þess að ég hef afar litla trú á því að hægt sé að endurreisa efnahagskerfi Íslendinga í samstarfi við flokk hæstv. forsrh. sem hæstv. fjmrh. rifjaði upp að ber höfuðábyrgð á hversu illa er fyrir okkur komið.
Sérstaklega hef ég ástæðu til að ætla að ekki verði næg umskipti í tíð núv. hæstv. fjmrh. vegna þess að þó að hann hafi nokkuð góðan almennan skilning á rökréttu samhengi efnahagsmála virðist mér hann ekki gera sér grein fyrir því hversu illa er komið í þessu þjóðfélagi að sumu leyti. Hann talaði um þá hættu sem gæti skapast af neðanjarðarhagkerfinu. Guð minn almáttugur! Við erum að tala um okur. Okurpraxísinn hér, sem er ekkert nýr af nálinni en hefur áreiðanlega vaxið stórlega, er önnur hlið á því sem við köllum skattsvik. Skattsvik eru orðin svo útbreidd í þessu þjóðfélagi sem afleiðing af efnahagsóstjórn undanfarandi ára að þau nálgast hrikalegar stærðir. Ég tel alveg tvímælalaust að ekki sé ofætlað að 10-15% af íslenskri þjóðarframleiðslu séu með einum eða öðrum hætti stungið undan skatti, löglega eða ólöglega. Þetta eru hrikalegar upphæðir. Og ég segi: Okur er hin hlið þessa máls vegna þess að það fé, sem ávaxtað er fram hjá bankakerfi á okurmörkuðum eftirlitslaust, er að verulegu leyti skattsvikið fé.
Ég vil líka minna á að það er ekki aðeins að löggjöf um þessi efni sé ekki til, og það er ekki nóg í því efni að vísa almennt til nauðsynjar á því að hún sé sett, það er langt síðan það var alveg augljóst mál að þörf var á að setja sérstaka löggjöf um verðbréfamarkað. En það er ekki bara það. Fyrst hitt. Hér segir: Meginið af þessu skattsvikna fé, sem ávaxtað er á okurmörkuðunum, er ekki einu sinni skattskylt skv. lögum. Við erum með skattalöggjöf sem er hriplek og himinhrópandi ranglát - þetta kunna allir hv. þm., bæði að því er varðar tekjuskatt og söluskatt. En nú er komin upp sú staða að hagnaður manna vegna raunvaxta umfram verðbólgu á verðbréfamörkuðum, sem lúta engum lögum og nánast engu eftirliti, er ekki framtalsskyldur og ekki skattskyldur.
Þess vegna er það fyrsta mál á dagskrá, ef menn vilja koma lögum yfir þennan markað, að setja lög um verðbréfamarkaðinn þar sem skilmerkilega sé tekið fram að réttinum til þessarar verslunar fylgi skyldur. Þær skyldur eiga að vera ósköp einfaldlega að öll verðbréfaviðskipti af hvaða tagi sem er eiga að vera skráð og framtalsskyld. Það er fyrsta mál.
Í annan stað kemur til álita - en ég veit að hæstv. fjmrh. hefur lýst sig andvígan því - að leiðrétta þá misvísun skattalaga að tekjur manna séu meðhöndlaðar á mismunandi hátt gagnvart skatti eftir því hvernig þær eru fengnar. Ég tel alveg augljóst mál að tekjur af ávöxtun fjár, vaxtatekjur umfram raunvexti, verði að vera hvort tveggja framtalsskyldar og skattskyldar í einhverjum mæli. Það hefur ekki komið fram hér í umræðunum að það sé stefna hæstv. ríkisstj. þótt þeir hafi að vísu talað um nauðsyn þess að setja hér einhver almenn lög. Mér finnst aðalatriðin vera þessi: Skyldan til að gera þetta fé og þessi viðskipti framtalsskyld og í annan stað að hægt sé að gera upp á milli tekna manna eftir því hvernig þeirra er aflað sérstaklega þegar vitað er um þá himinháu raunávöxtun umfram verðbólgu sem gildir á þessum mörkuðum.
Herra forseti. Stundum er um það rætt að aðalmálgagn hæstv. ríkisstj. sé nú orðið Lögbirtingablaðið. Útgáfudögum þess hefur verið fjölgað til að gera því kleift að birta allan þann gífurlega fjölda nauðungaruppboða sem þar þarf að birtast. Ef fram heldur sem horfir stefnir að því að Lögbirtingablaðið bætist í hóp dagblaða þjóðarinnar. Hvað táknar það? Hvað táknar öll þessi gífurlega fjölgun nauðungaruppboða? Hún snertir auðvitað að nokkru leyti þessa okurumræðu en er þó kannske ekki beinlínis inntak hennar. Hún snertir annað, vaxtastefnuna, húsnæðispólitíkina.
Að því er varðar starfsemina og okurvextina þá er bara ein spurning sem rétt er að nefna: Hverjir greiða að lokum þessa okurvexti? Ef það er rétt, sem almennt hefur verið haldið fram í umræðum um þessi mál, að það séu einkum efnamenn sem hafa sérstaka aðstöðu til skattundandráttar sem ávaxta sitt fé þarna og það séu einkum og sér í lagi innflutnings- og að nokkru leyti þjónustufyrirtæki sem hafa mjög öra veltu og leita þarna eftir fjármögnun skammtímalána til að fínansera vörubirgðir, þá liggur það augljóst fyrir hverjir það eru sem borga þetta. Þessum okurvöxtum er jafnharðan velt út í verðlagið og þeir sem greiða þetta erum við sem erum almennir neytendur í landinu. En vaxtapólitíkin og húsnæðispólitíkin er svo dálítið sér á parti. Er það virkilega svo að vegna þess að það er búið að sökkva okkur í erlendar skuldir eigum við engra annarra kosta völ að því er varðar vaxtastig en að það ákvarðist af frjálsum heimsmarkaði? Ef það er staðreynd að 50- 55%, kannske upp í 60% , af því fjármagni sem er hér til ráðstöfunar til fjárfestingar og reksturs í atvinnulífi sé erlent fé og ber mjög háa vexti, ef ég tók rétt eftir sagði hæstv. forsrh. 9-l0%, er þá enginn kostur annars en að bjóða öllum landsmönnum, undir hvaða kringumstæðum sem er og af hvaða toga sem lánin eru, til hversu langs tíma sem þau eru, hversu mikil eða lítil áhættulán sem þetta eru og hversu vel þau eru veðtryggð í fasteignum, sömu vexti? Að sjálfsögðu er það ekki svo. Þrátt fyrir allt er vitað að við bjóðum lántakendum Húsnæðisstofnunar ríkisins 31/2 % vexti og vaxtastig er ákveðið í lögum 1% á langtímalánum vegna húsnæðislána til verkamannabústaða. Auðvitað felur þetta í sér niðurgreiðslu á vöxtum og er um leið svar við því að þrátt fyrir allt er hægt að hugsa sér að skilja að hina tvo lánsfjármarkaði, þ.e. hér er unnt, og Alþingi getur tekið um það ákvörðun, að lækka vexti í tilteknum tilvikum og þá verður það náttúrlega að heita ákveðin félagsleg aðgerð af hálfu Alþingis. En er þetta ekki nóg? Af hverju er þá neyðarástand í húsnæðismálum eða er kannske ekkert neyðarástand í húsnæðismálum? Lögbirtingur segir það. Dæmin sem fólk er að koma með úr uppboðsbransanum og dæmin sem menn leggja á borðið í almennri umræðu um eignaupptökuna virðast benda til þess að þetta neyðarástand sé mikið. Mér virðist að málsvarar hæstv. ríkisstj., þótt þeir jánki því í einu orðinu, aðhafist lítið í þeim málum og kannske skilji þau ekki og hafi jafnvel ekki trú á því að hér sé um réttar upplýsingar að ræða. Ég nefni sem dæmi að til þeirra ráða var gripið í vor að leggja aukna skatta á almenning í landinu með hækkun söluskatts og sérstökum eignarskattsauka og því lýst yfir að þessu fé ætti að verja til þess að leysa neyðarástandið hjá húsbyggjendum og lántakendum, en við það er ekki staðið þegar fjárlagafrv. er lagt fram og á því virðast ekki eiga að verða neinar breytingar.
Neyðarástandið í húsnæðismálum sem tengist þessari vaxtaumræðu stafar að mínu viti af fimm ástæðum:
Í fyrsta lagi er það að sjóðakerfi Húsnæðisstofnunar ríkisins, eigin fjárhagur Byggingarsjóðs ríkisins og Byggingarsjóðs verkamanna, varð fyrir hrottalegum áföllum í tíð fyrrv. ríkisstj. Fyrst og fremst vegna þess að hann var sviptur föstum tekjustofnum og í annan stað vegna þess að honum var vísað á lánamarkað þar sem lánin sem inn voru tekin voru gífurlega óhagkvæm og til stutts tíma, en útlánin aftur á móti til lengri tíma með lægri vöxtum þannig að fjármunir sjóðsins brunnu upp í óðaverðbólgu, enda hefur það verið lagt fram hér á Alþingi að eiginfjárstaða byggingarlánasjóðanna er nú mjög dapurleg. Síðan bættist við í tíð núv. ríkisstj. að farið var að fjármagna þessa sjóði með erlendum lánum sem er eins og hver önnur skemmdarverkastarfsemi í efnahagsmálum.
Aðra meginástæðuna tel ég vera það misgengi launa og lánskjara, sem menn tala um, sem byrjaði að myndast með hrottafengnum hætti strax á árinu 1982. einfaldlega vegna þess að verðbólga fór þá upp í himinhæðir en um leið hafði vísitölutrygging launa verið skert hvað eftir annað, enda ber samanburður á töflum um lánskjaravísitölu og kaupgjald frá þessari tíð það með sér að það misgengi varð gífurlegt og hefur haft mjög alvarlegar afleiðingar.
Þriðja meginástæðan var sú gífurlega vaxtahækkun sem hlaust af frumkvæði hæstv. fjmrh. sumarið 1984 um takmarkað frelsi bankastofnana til samkeppni um vaxtahækkanir og þá sérstaklega vegna þess að þar sem sjóðirnir duga ekki til langtímafjármögnunar í húsnæðismálum hefur fólk neyðst til að reyna að bjarga eignum sínum með því að leita á náðir íslenska bankakerfisins með skammtímalánum á ávöxtunarkjörum sem eru langt umfram það sem húsbyggjendur geta staðið undir. Manni telst til að niðurstöður ráðgjafarstofnunar Húsnæðisstofnunar séu þær að a.m.k. 50% þeirra lána, sem beinlínis valda því að húsbyggjendur eru að kikna undan byrðum sínum, séu þessi bankalán. Og ég vil staldra við það.
Íslenska bankakerfið hefur á margan hátt brugðist og það hefur sérstaklega brugðist skyldum sínum við húsbyggjendur. Það er hægt að leggja fram ótal dæmi um það. Ef bankarnir hefðu ætlað að gera skyldu sína áttu þeir í mjög mörgum tilvikum beinlínis að ráðleggja fólki að taka ekki þessi lán vegna þess að af reynslu sinni og skilningi á því hvað væri að gerast í íslenskum bankamálum og vaxtamálum átti þeim að vera Ljóst að mjög mikill fjöldi íbúðakaupenda mundi aldrei rísa undir því að greiða af þessum lánum. Banki sem skiptir sér ekki af greiðslugetu og fjárhag lántakanda og lætur hann einan um þá áhættu er ekki banki. Bankastofnanir erlendis hegða sér ekki þannig. Ég tel því að bankakerfið hér hafi brugðist á alla vegu.
Í fyrsta lagi hefur það ekki sinnt skyldum sínum við einstaklinga, sem eiga meginið af því innlánsfé sem þarna er, vegna þess að þeir lána allt of lítið og til allt of skamms tíma til húsbyggjenda og sér í lagi vegna þess að ráðgjöf bankanna er verri en engin, lítil sem engin. Að því leyti er hægt að nefna dæmi um það að verðbréfafyrirtækin hafa í sumum tilvikum staðið sig betur með raunsærri ráðgjöf um greiðslugetu byggjenda.
Ég nefni þessar þrjár ástæður, hrun á eiginfjárstöðu byggingarlánasjóðanna, misgengi launa og lánskjara, hina gífurlegu hækkun vaxta sem átt hefur sér stað eftir 1984, og svo að sjálfsögðu síðast en ekki síst þá miklu kaupmáttarskerðingu sem átt hefur sér stað hjá meginhluta launþega eftir 1983 og að lokum það verðfall fasteigna sem átt hefur sér stað ekki hvað síst úti á landi á undanförnum misserum og nú er að verða mjög alvarlegt í Reykjavík líka. Þegar þessar ástæður eru allar teknar saman hefur það leitt til þess sem kalla má eignaupptökustefnu hjá þeim árgöngum fólks sem eru með hvað þyngstar skuldabyrðar á tímabilinu frá 1980, gróflega, einkum og sér í lagi 1982, til dagsins í dag.
Þegar rætt er um vaxtastefnu ríkisstjórnarinnar er spurningin: Eru skilaboð hæstv. ríkisstj. til þess fólks, sem lent hefur í fjárhagslegum ógöngum og í raunverulega alvarlegri hættu á því að missa eignir sínar, engin önnur en þau að við eigum engra kosta völ í að breyta þessu, að við höfum raunverulega ekki svigrúm eða vald á því að breyta vaxtastefnu í landinu vegna þess hvað mikið er um erlent fjármagn? Hefur ríkisstjórnin engin skilaboð til þessa fólks önnur en þau að leggja á aukna skatta eins og gert var í vor, en sýna hins vegar í verki algjört skilningsleysi sitt með því að verja þeim skattpeningum til annarra hluta. Auðvitað má segja að þessi umræða sé komin út á nokkuð annað svið, þ.e. hún heyrir þá væntanlega aðallega undir félags- og húsnæðismálaráðherra. Engu að síður er þetta sá partur vaxtastefnunnar sem birtist okkur bak við nauðungaruppboðin, bak við eignaupptöku fjölda einstaklinga og er að sumu leyti kveikjan að þessari umræðu um okurvexti.
Ég geri ekki endilega ráð fyrir því í þessari umræðu að fá svör við því, en ég vil árétta það út frá almennum umræðum um vexti að þegar þjóð skuldar um eða yfir 60% af sinni þjóðarframleiðslu í erlendum skuldum, er farin að greiða sem samsvarar 15-17 000 árslaun verkamanna bara í vexti af erlendum skuldum og situr uppi með þá staðreynd að 2/3 af allri þessari hrikalegu langtímaskuldasúpu eru á vegum opinberra aðila, er svigrúm hennar til breytinga að því er varðar vaxtastefnu auðvitað orðið takmarkað. Það er rétt hjá hæstv. fjmrh. Það er mjög takmarkað. Þess vegna er þeim mun brýnna að hæstv. fjmrh. beini sjónum sínum að því hvað hann geti gert og ríkisstjórnin og stjórnmálaöflin í landinu til að breyta eigna- og tekjuskiptingunni innbyrðis vegna þess að sá hluti þjóðarinnar sem ber mestan hluta af þessum byrðum og hefur borið á undanförnum árum er beinlínis þegar kiknaður undan sínum byrðum.
Hæstv. fjmrh. hlýtur að viðurkenna að þessi okurumræða upplýsir m.a. að þarna er um að ræða forréttindahóp í þjóðfélaginu sem í skjóli hins hripleka skattkerfis fær aðstöðu til að ávaxta fé og eignir með hæstu raunvöxtum í heimi á sama tíma og hin hlið þess sama máls er að sá hluti þjóðarinnar sem verst er settur ber allar byrðarnar, verðhækkanirnar sem af þessu leiðir og allar byrðarnar af þessum gífurlega háu vöxtum.
En menn spyrja: Getum við horfið aftur til fyrri tíðar, fyrir 1979, og tekið aftur upp neikvæða vexti í stórum stíl eins og tíðkaðist lengst af í stjórnartíð framsóknar og Alþb.? Svarið er auðvitað augljóst. Það getum við ekki. Það getur ekki þjóð sem er sokkin í skuldir. Við verðum að gera það sem okkur ber að gera að lágmarki til að tryggja innlendan sparnað og tryggja hagsmuni sparifjáreigenda. Frá því er ekki hægt að hverfa. Það þýðir að mínu mati einhvers konar verðtryggingu langtímafjárskuldbindinga. Það er ekki þar með sagt að núverandi vaxtastefna sé þar af leiðandi rétt. Þessir vextir, svo háir sem þeir eru umfram verðtryggingu, eru allt of háir og það ber að gera, og gera nokkuð hratt, sem hægt er að gera til að keyra þessa vexti niður. T.d. er alveg augljóst mál að mínu mati að aðgerð hæstv. fjmrh. nú í haust að því er varðaði affallasölu á spariskírteinum ríkisins var röng og hún hefur afdráttarlaus áhrif og veldur þrýstingi í átt til hækkunar vaxta. Ég held að það sé algjör misskilningur, miðað við hvernig þetta hagkerfi er enn í algjöru jafnvægisleysi, að ný skref í átt til frjálsræðis vaxtaákvörðunar á grundvelli samkeppni banka geti leitt til annars en frekari ójafnaðar og mismununar þegnanna sem mun enda með pólitískri sprengingu. Ég held þess vegna að menn eigi að fara sér mjög hægt í því. Ég held við verðum að átta okkur á því að fyrsta skilyrðið til þess að slíkt verði gert sé að leiðrétta það misvægi sem nú er og er búið að vera allt of lengi milli undirstöðuatvinnuveganna og annars vegar innflutnings og þjónustu. Það er allt of mikið og það verður að leiðrétta. Og í annan stað: Áður en til slíks kemur verður að vera búið að binda tryggilega um alla hnúta að því er varðar verðbréfamarkaðinn, réttindi og skyldur þeirra aðila sem selja og kaupa verðbréf. Í þriðja lagi verður að vera búið að stokka upp hið hripleka skattakerfi og gera ákveðnar ráðstafanir til þess að koma lögum yfir lúxusklassann og forréttindahópana. Fyrr en það hefur verið gert hefur allur almenningur enga trú á góðum vilja stjórnvalda til að vinna bug á undirstöðuvandamálunum sem eru að vinna okkur frá skuldasúpunni og byrja að greiða hana niður kerfisbundið samkvæmt áætlun til nokkurra ára, en sjá þá til þess að þær byrðar verði ekki aftur og enn lagðar á þann hóp landsmanna sem minnsta hefur greiðslugetuna.
Að lokum, herra forseti. Í tilefni af umræðum um okrið og það ástand sem nú er í vaxtapólitíkinni rifja ég upp þá till. til þál., sem þegar liggur fyrir á hinu háa Alþingi frá þm. Alþfl., um frestun nauðungaruppboða, neyðaraðstoð og ráðgjöf við húsbyggjendur. Sú tillaga er ekki útrædd, en hún tengist þessu máli alveg skýrt og afdráttarlaust. Þar höfum við lagt fram tillögu um hvað þurfi að gera strax, þegar í stað, til að stöðva þessi nauðungaruppboð og hafa frumkvæði að því að bjarga því sem bjargað verður varðandi fjárhag þeirra fjölskyldna sem nú standa frammi fyrir því að missa aleiguna, eins og húsnæðið oftast er. Ég ætla hins vegar ekki að ræða hana frekar hér og geymi mér það til betri tíma.