19.11.1985
Sameinað þing: 18. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 753 í B-deild Alþingistíðinda. (588)
Okurmál
Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Það gætir nokkurs misskilnings í orðum hv. 3. þm. Reykv. Forseti lét ekki liggja orð að því að það ætti að ljúka þessari umræðu, eins og hv. þm. sagði, á knöppum tíma. Forseti lét orð liggja að því að stefnt væri að því að ljúka þessum umræðum í dag. Enn eru sex klukkutímar til miðnættis og það hefur ekki þótt goðgá og ekkert óeðlilegt við það að ætlast til þess, ef á þarf að halda, að þm. séu á fundi um mikilvægt mál til miðnættis.
Hitt atriðið er að ráðherrar eru farnir og þau ummæli að forseta beri að tryggja að ráðherrar séu til staðar við þessa umræðu. Það getur forseti ekki tryggt því hann hefur ekki tök á því að skipa þessum mönnum að vera við umræðu hvað þá heldur að gera ráðstafanir til þess að flytja þá á þennan fund. Þetta er komið undir ráðherrunum sjálfum. Því verðum við að hlífa með ráðherra eins og með þm. raunar líka. Við getum ekki skipað þeim að vera á þingfundum þó að það sé mjög æskilegt að þeir séu til staðar.
En í tilefni af þessu tali um ráðherrana er rétt að það komi hér fram að hæstv. viðskrh. tjáði mér þegar hann gekk af fundi að hann væri nauðbeygður til þess að fara af fundi af sérstökum ástæðum. Og þegar menn eru nauðbeygðir til einhvers og þurfa þess vegna að fara af fundi verður að líta svo á að þeir hafi lögmæta ástæðu til að fara af fundi. En hæstv. viðskrh. tjáði mér að hæstv. fjmrh. mundi í öllu standa í fyrirsvari fyrir hans málum hér á fundinum.
Hins vegar er hæstv. forsrh. hér á fundi. Það var líklegra að hann væri ekki búinn að yfirgefa okkar vettvang fyrst hann hafði ekki tjáð mér það. Og ég vænti nú þess að það séu ekki mótmæli gegn því að það sé haldið áfram þessari umræðu þegar forsrh. er við, svo og fjmrh., þ.e. formenn beggja stjórnarflokkanna og svo félmrh.
En það skal endurtekið, sem sagt var hér áður og var tilefni til þessara orðaskipta, að það er ekki ætlun forseta að takmarka þessar umræður. Ég vil að menn hafi það í huga. Við sjáum hverju fram vindur. Og nú höldum við áfram umræðunni.