20.11.1985
Efri deild: 16. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 768 í B-deild Alþingistíðinda. (598)
121. mál, sala Kröfluvirkjunar
Sveinn Jónsson:
Virðulegi forseti. Það frv., sem hér liggur fyrir deildinni, er fyrst og fremst til staðfestingar á orðnum hlut. Ég get þó ekki látið hjá líða að koma hér aðeins inn í umræðuna þar sem ég hef átt sæti í stjórn Rafmagnsveitna ríkisins undanfarin ár. Þar hefur þetta mál nokkuð komið til umfjöllunar, þó aðeins með þeim hætti að stjórn hefur verið gerð grein fyrir framvindu þess og stöðu án þess þó að ætlast væri til þess á nokkurn hátt að hún væri um það umsagnaraðili eða hefði af málinu afskipti hin minnstu.
Það eru því fyrst og fremst stjórnvöld sem hafa mælt fyrir um það að þessi sala skuli eiga sér stað og á þeirra vegum hefur síðan verið ákveðið það söluverð sem einna helst hefur verið hér til umfjöllunar og staðið nokkuð í mönnum. Í því sambandi er rétt að ég láti þá skoðun í ljós að það hafi verið mat stjórnar Rafmagnsveitna ríkisins og forsvarsmanna Rafmagnsveitna ríkisins að hér mundi vera um mjög góðan samning að ræða fyrir kaupaðila, þ.e. Landsvirkjun. Það var jafnvel haft í flimtingum hvort ekki væri ráð að bjóða eins og 100 millj. betur og vita hvort Rafmagnsveitunum stæði þá til boða að eiga þarna hlut að máli. En það varð aldrei að neinum veruleika heldur aðeins rætt manna á milli.
En svo sem hv. 3. þm. Norðurl. v. gerði hér grein fyrir í sinni ræðu átti sér stað á vegum Rafmagnsveitnanna á sínum tíma allítarleg athugun á því hvort fyrirsjáanlegt væri að Kröfluvirkjun gæti með tímanum skilað aftur þeirri fjárfestingu sem þar var til orðin. Sú niðurstaða fékkst að svo mundi vera þó að þar skipti nokkru máli hversu mikið afl væri sett á vélar virkjunarinnar og með hvaða hætti rekstrinum væri fyrir komið. Til þessa hefur aðeins önnur vél virkjunarinnar verið starfrækt og það er sennilega stór spurning hvort hin vélin verði nokkru sinni starfrækt. Það er m.a. vegna þess að hún hefur að nokkru leyti verið notuð til viðhalds og varahluta í þá vél sem starfrækt hefur verið. Hversu langt sú slátrun er komin veit ég ekki en vafalaust er það ekki svo að þar megi ekki úr bæta ef mönnum þykir ástæða til. En svona hefur alla vega verið að þessu staðið að mér er tjáð.
Ég vil meina að allvel hafi verið að rekstri Kröfluvirkjunar staðið á þeim árum sem hún hefur verið starfrækt og ég efast um að það sé íbúum þess byggðarlags, sem hlut á að máli, nokkurt fagnaðarefni í sjálfu sér að þessir samningar hafi átt sér stað nú þar sem þeir munu tvímælalaust leiða til þess að draga mun úr rekstri og þeim rekstraráformum sem eitt sinn hafa verið uppi um þessa verksmiðju. Það mun þar af leiðandi leiða til þess að atvinnutækifærum þarna nyrðra mun fækka og þar af leiðandi að einhverju leyti draga úr afkomu og vaxtamöguleikum þess byggðarlags sem þar um ræðir.
Þetta atriði kemur reyndar að nokkru leyti fram hér í samningnum sjálfum, þ.e. í 8. gr. þar sem segir, með leyfi forseta:
„Landsvirkjun mun gera þær breytingar á skipulagi og rekstri og starfsmannahaldi við Kröfluvirkjun sem hún telur nauðsynlegar til hagræðingar á starfrækslunni og samhæfingar við annan rekstur Landsvirkjunar. Starfsmönnum Kröfluvirkjunar verður gefinn kostur á endurráðningu í þær stöður, sem haldið verður áfram eftir 1. jan. 1986, og skal gengið frá þeim málum fyrir 1. sept. 1985.“ Það þýðir m.ö.o. að þessum málum hefur væntanlega nú þegar verið ráðið þó að ég viti annars ekki um niðurstöðu þess.
Ég vil svo aðeins ítreka það sem ég sagði áðan, að Rafmagnsveitunum hefði ekki verið gefinn kostur á því að hafa nokkra aðild að þessu máli þó svo að þeim hefði á sínum tíma verið treyst fyrir rekstri þessa verkefnis sem er kannske meira umdeilt en nokkurt annað í nútímaframkvæmdasögu þjóðarinnar. Það má vel vera að það sé niðurstaða einhverra að þar hafi verið svo illa að staðið að ekki væri við hæfi að ræða við Rafmagnsveiturnar þar um. En ég dreg alla vega í efa að svo sé og vil fullyrða að Rafmagnsveiturnar og framkvæmdastjórn virkjunarinnar hafi verið vanda sínum vaxin og reynt að leysa þar sem best úr öllum málum.
En vegna þessa og þeirrar umræðu, sem átti sér stað á vettvangi Rafmagnsveitnanna, held ég að vel væri við hæfi að þegar þetta mál kemur til umfjöllunar í iðnn. verði leitað eftir því t.d. að fá Kristján Jónsson rafmagnsveitustjóra til viðræðna svo að hann geti þar gert grein fyrir viðhorfum þeim sem uppi voru innan veggja Rafmagnsveitnanna.
Það má svo alltaf deila um það hvers virði Kröfluvirkjun er landskerfinu. Því var hér velt upp áðan hvort þessi virkjun, eins og allar virkjanir, mundi ekki borga sig er fram líða stundir. Vafalaust gerir hún það með einum eða öðrum hætti. Kannske sýndi þessi athugun, sem gerð var á sínum tíma, fyrst og fremst að hún borgi sig aftur vegna þess háa raforkuverðs sem er í landinu. Ef svo væri ekki væri augljóst mál að það tæki alla vega miklu lengri tíma fyrir virkjunina að borga sig ef hún þá gerði það nokkurn tíma. Það er aðeins það að raforkuverðið er svo hátt sem gerir það að verkum að þetta dæmi gengur upp.
Rafmagnsveiturnar töldu og telja væntanlega að staðsetning Kröfluvirkjunar skipti miklu máli fyrir landskerfið í heild. Hún er þannig staðsett að hún skiptir miklu máli fyrir orkuflutning til Austur- og Norðurlands, dregur úr töpum á þeim löngu flutningsleiðum sem eru frá virkjunarsvæðunum við Þjórsá. Við höfum mjög nýlegt dæmi um þetta mikilvægi hennar þegar rafmagnstruflanir urðu á byggðalínuhringnum í óveðrinu sem gekk yfir nú fyrir síðustu helgi. Þegar loðnubræðslur eru víðast hvar í fullum gangi norður í landi sáust ljósin varla flökta á meðan sló þó út hér á suðvesturhorninu. Þar kom því til bæði staðsetning þessarar virkjunar og hringtengingin sem einnig hefur verið mjög umdeild í þeirri orkuumræðu allri sem átt hefur sér stað á undanförnum árum. Þetta sýnir okkur aðeins að mikilvægt er fyrir okkur að dreifa virkjununum sem mest um landið þannig að kerfið sé tilbúið til að mæta þeim áföllum sem hugsanlega verða á hverjum tíma og mæta þeirri orkuþörf sem er á hverjum stað á hverjum tíma án þess að truflanir verði óviðunandi í rekstri þeirra fyrirtækja sem þá eru í gangi hverju sinni.
Ég hef svo ekki um þetta mál fleiri orð en vildi aðeins koma þessu að hér á þessari stundu þar sem ég á aðeins sæti hér um skamman tíma og hef ekki möguleika á því að hafa frekari áhrif á gang þessa máls. En eins og ég sagði í upphafi er hér aðeins um að ræða staðfestingu á orðnum hlut.