20.11.1985
Neðri deild: 17. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 780 í B-deild Alþingistíðinda. (612)
5. mál, jarðhitaréttindi
Ólafur G. Einarsson:
Herra forseti. Það hefði vissulega komið til greina að kjósa sérnefnd til þess að fjalla um öll þessi mál, 1., 2., 3. og 8. sem hér eru á dagskránni, en sú tillaga hefur þegar verið felld. Upphafleg tillaga hv. flm. 1. málsins, Hjörleifs Guttormssonar, var að það færi til sérnefndar. Hér hefur verið lýst að hliðstætt mál hefur verið til meðferðar hjá hv. iðnn. þegar það hefur komið fyrir á fyrri þingum. Ég get ekki fallist á það að þessi mál öll skuli fara til umfjöllunar í allshn. og lýsi þeirri skoðun minni að 1., 2. og 3. málið skuli fara til iðnn. en 4. og 8. málið til allshn.