20.11.1985
Neðri deild: 17. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 782 í B-deild Alþingistíðinda. (620)

5. mál, jarðhitaréttindi

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Það liggja fyrir tvær bækur með upplýsingum um það hvort þessu máli hafi verið vísað til 2. umr. eða ekki. Önnur bókin er undirrituð af forseta og skrifara deildarinnar, öðrum. Hin undirrituð af aðeins öðrum skrifara deildarinnar. Nú þykir mér sanngjarnt að fá úr því skorið hvort mér beri sem skrifara að bóka það að þetta mál hafi verið afgreitt til 2. umr. og þá með hve mörgum atkvæðum því ella gæti svo farið að niðurstaðan yrði sú að það kæmi í ljós að samkvæmt þeim bókum sem skrifstofan fer eftir hefur málínu aldrei verið vísað til 2. umr. og óvíst hvort það fer þá nokkuð lengra.