20.11.1985
Neðri deild: 17. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 783 í B-deild Alþingistíðinda. (628)
59. mál, orka fallvatna
Ólafur Ragnar Grímsson:
Herra forseti. Ég tel vafa á að sú tillaga sem hér er verið að bera upp sé rétt fram borin. Eins og lýst var áðan kom ekki fram nein tillaga á meðan umræður fóru fram um að vísa málinu til iðnn. og umræðu lauk á þann veg að aðeins ein tillaga var fyrirliggjandi, þ.e. tillaga um allshn.
Hins vegar kom formaður iðnn. hér upp í ræðustólinn undir öðrum dagskrárlið, þ.e. umræðu um þingsköp, og orðaði þá hugsun sína í tillöguformi að þessu máli yrði vísað til iðnn. Ég tel mikinn vafa leika á, þó ég ætli ekki að lengja fundartíma deildarinnar með því að deila við hæstv. forseta um það, að sú till. sé í raun og veru rétt fram borin þar eð hún hafi verið of seint fram komin vegna þess að umræðu var lokið og búið að vísa málinu til 2. umræðu þegar hugmyndin um iðnn. kom fram. Ég greiði þess vegna ekki atkvæði.