20.11.1985
Neðri deild: 17. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 784 í B-deild Alþingistíðinda. (634)
67. mál, orkulög
Guðrún Helgadóttir:
Herra forseti. Ég vil benda hv. Alþingi á að orkufrv. sem liggur fyrir á þskj. 69 fjallar um eignarrétt á landi. Slík mál heyra undir dómsmrn. eða forsrn. Það leiðir af sjálfu að það er ákaflega óvanalegt að slíku máli sé vísað til iðnn. jafnvel þótt formaður þess sé hv. þm. Páll Pétursson.
Ég vil vara menn við þessum leik með vísun mála til nefnda og mig undrar að hv. 2. þm. Reykn., prófessor í lögum og formaður allshn., skuli ekki benda hv. þingheimi á þessa vitleysu. Og ég vil vara menn við að vera með svo gáleysislegar tillögur sem hér á sér stað. Það gæti farið svo að ég færi fram á að málinu yrði vísað til heilbr.- og trn.