20.11.1985
Neðri deild: 17. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 789 í B-deild Alþingistíðinda. (645)

67. mál, orkulög

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Ég vek athygli á því að það hefur nú tekið heila klukkustund af störfum deildarinnar að koma frv. stjórnarandstöðunnar í þingnefnd. Það hefur ekki tekist nema með nafnakalli og þm. stjórnarandstöðunnar hafa setið hjá við lokaafgreiðslu þessa máls. Þetta er mjög óvenjulegt í sölum Alþingis. Ég man ekki eftir því áður að stjórnarandstaðan hafi lagst gegn því að mál stjórnarandstöðunnar fengju þinglega meðferð. Ég vil, herra forseti, vekja athygli á þessu og ég vil jafnframt beina því til hæstv. forseta hvort nauðsynlegt sé að taka þessi mál á dagskrá deildarinnar yfirleitt, nema þá að sérstakri beiðni stjórnarandstöðunnar, til þess að störf deildarinnar geti haldið áfram með eðlilegum hætti.