20.11.1985
Neðri deild: 17. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 789 í B-deild Alþingistíðinda. (648)

67. mál, orkulög

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. forseta fyrir það hvernig hann tók í þær óskir sem ég bar hér fram áðan. Jafnframt vil ég mótmæla þeim ummælum sem fram komu hjá hv. 2. þm. Norðurl. v. vegna þess að hann var að hóta því að afgreiða ekki þessi mál. Það liggur fyrir frá undanförnum þingum að hv. þm. hefur bersýnilega viljað leggjast á þessi mál, bersýnilega viljað koma í veg fyrir að það kæmi fram að Framsfl. er sennilega minnihlutaaðili á hv. Alþingi í þessum málum, a.m.k. samkvæmt þeim upplýsingum sem fram hafa komið frá hæstv. menntmrh. Ég kann illa þeim hótunum sem hv. 2. þm. Norðurl. v. hafði í frammi áðan. Það er ekki venja að formenn nefndarinnar vinni með þessum hætti. Og hafi einhverjir tafið mál í dag eru það m.a. stjórnarliðar sem hafa reynt að koma í veg fyrir að þessi mál færu til eðlilegrar þingnefndar og fengju eðlilega meðferð. Hv. 2. þm. Norðurl. v. hefur sem formaður iðnn. beitt sér af offorsi fyrir því að fá þessi mál og knúið fram þingflokkssamþykktir í stjórnarflokkunum til að verja sig fyrir því að meiri hluti deildarinnar tæki þá ákvörðun að málin færu til allshn. Ég vil mótmæla þessum hótunum, sem hér komu fram, og ég lýsi fullri ábyrgð á hendur formanni iðnn. fyrir vinnubrögðin í þessu máli svo og á hendur 9. landsk. þm., formanni þingflokks Sjálfstfl. Þeir hafa beitt sér hér í dag með algerlega ósæmilegum hætti, að mínu mati, gagnvart þeim upplýsingum, kröfum og óskum sem fram hafa komið.