21.10.1985
Neðri deild: 5. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 97 í B-deild Alþingistíðinda. (65)

5. mál, jarðhitaréttindi

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Ég kvaddi mér hljóðs til að taka undir þá áherslu sem fram hefur komið í máli hv. 3. þm. Reykn. í þá veru að þessi mál verði afgreidd hér á þinginu. Það frv. sem hv. þm. Alþfl. hafa flutt um þessi efni er í rauninni svipað og frv. sem hv. fyrrv. ráðherra Magnús Kjartansson flutti og lét undirbúa á sínum tíma. Mig gildir því einu hver er höfundur að þeim texta sem endanlega verður samþykktur. Aðalatriðið er að málið verði afgreitt á hv. Alþingi. Þar sem málið er svo snemma lagt fram ætti að vera unnt að ná afgreiðslu á því á yfirstandandi þingi, ekki síst þegar það liggur fyrir að fyrrv. hæstv. iðnrh. og núverandi menntmrh. lét kanna þessi mál í sinni ráðherratíð sem iðnrh. og lét semja frv. um almannaeign á því sviði sem hér er um að ræða.

Hæstv. menntmrh. skýrði frá því að þetta mál hefði ekki náð fram að ganga vegna þess að það hefði verið andstaða við það annars vegar í Sjálfstfl. en þó ekki svo mikil heldur einkum í samstarfsflokknum. Þetta eru auðvitað mjög merkileg tíðindi, að Framsfl. skuli setja sig fram á sem sérstakan varðhund fyrir forréttindahagsmuni stóreignamanna, m.a. með tilliti til þeirrar afstöðu sem framsóknarmenn höfðu til Nesjavallamálsins í borgarstjórn Reykjavíkur á sínum tíma. Þetta er mjög fróðlegt og það er upplýsandi um málið og sýnir okkur hvað það er nauðsynlegt að á þessu máli verði tekið. En ég vænti þess að hæstv. menntmrh. sé mér sammála um að það sé ekki einasta nauðsynlegt að setja um þetta reglur heldur að þau frumvarpsdrög, sem hann lét vinna á ríkisins kostnað trúi ég, séu almannaeign. Þess vegna fer ég fram á það við hæstv. menntmrh. og eftirmann hans hæstv. iðnrh. að þeir sjái til þess að iðnn. hv. Nd. fái þessi frumvarpsdrög til hliðsjónar um leið og hún fer yfir frv. sem hér er á dagskrá og önnur frv. um skyld efni sem hugsanlega verða flutt. Ég legg á það sérstaka áherslu að hæstv. menntmrh. kanni hvort hann getur ekki orðið við þeim óskum sem hér eru bornar fram í fullri einlægni.

Ég held að við þurfum líka að átta okkur á því, herra forseti, að ein meginforsenda þess að við getum nýtt þá auðlind sem jarðhitinn er er sú að það verði tekin af tvímæli í þessum efnum. Það þarf kannske ekki, en er þó rétt að gera það, að rifja upp það mál sem Reykjavíkurborg ræddi og borgarstjórn Reykjavíkur fyrir nokkrum mánuðum. Þar var niðurstaðan sú að kaupa land í Grafningi fyrir 60 millj. kr., land sem talið var að kosta ætti kannske 400 þús. kr. ef farið væri eftir venjulegu mati. Þá stóðu fulltrúar þriggja flokka, Alþfl., Alþb. og Framsfl., að bókun í borgarráði Reykjavíkur sem er á þessa leið, með leyfi forseta:

„Við erum andvíg þeim samningi sem fyrir liggur um kaup á 1635 hekturum lands úr landi Ölfusvatns í Grafningi sem kosta á 60 milljónir króna. Fyrir þessari afstöðu okkar eru m.a. eftirfarandi ástæður:

1. Þessi kaup eru réttlætt með því að á u.þ.b. þriðjungi landsins eða í fjalllendinu næst Henglinum er um jarðhita að ræða sem gott væri að eiga ef virkjað yrði á Nesjavöllum. Í raun er því verið að kaupa 500 hektara af fjalllendi fyrir þessar 60 millj. kr. sem þýðir að hektarinn kostar 120 þús. kr.

2. Komi til þess að virkjað verði á Nesjavöllum og sú virkjun þurfi í framtíðinni á meiri gufuorku að halda er einsýnt að Hitaveita Reykjavíkur fengi án minnstu fyrirstöðu eignarnámsheimild ef með þyrfti á þeirri orku sem kann að vera í austurhlíðum Hengilsins, ekki aðeins í landi Ölfusvatns heldur einnig annarra jarða.“ - Og þess er rétt að geta í þessu sambandi að lönd Nesjavalla og Ölfusvatns liggja ekki saman.

3. „Ekki verður séð að Reykjavíkurborg hafi neinna hagsmuna að gæta varðandi þann hluta landsins þar sem ekki er jarðhiti. Á því svæði er að vísu ákjósanlegt sumarbústaðaland, en samkvæmt samningnum eiga núverandi eigendur að fá ungann úr því landi undir sumarbústaði til 50 ára endurgjaldslaust. Þá eiga þeir að hafa rétt til stanga- og netaveiði í Þingvallavatni og forleigurétt að sumarbústaðasvæðunum að loknu 50 ára tímabili.“ - Hérna er íhaldið aldeilis að dekra við gæðingana sína. Og síðan segir: „Núverandi eigendur halda því öllum núverandi rétti sínum og hlunnindum á landinu þrátt fyrir söluna“, upp á 60 milljónir króna. „Á því landi sem borgin fær umráð yfir má ekki reisa sumarbústaði fyrr en eftir árið 2010.“ Svona er nú um hnútana búið!

„4. Augljóst er að Reykjavíkurborg mun ekki hafa neins konar not af þessu landi næstu áratugi, hvorki að því er varðar nýtingu jarðhitans né leigu undir sumarbústaði. Lítil ávöxtun verður því á þeim 60 millj. sem þarna á að eyða af fé almennings.

5. Við erum andvíg þessum landakaupum þar sem við teljum þau með öllu óþörf og verðið allt of hátt og ekki í samræmi við neinn raunveruleika. Við teljum skynsamlegra að verja umræddum 60 millj. til annars en að láta þær liggja í ónotuðu landsvæði austur í Grafningi næstu áratugi.“

Þetta var bókun frá borgarfulltrúum minnihlutaflokkanna í borgarstjórn Reykjavíkur, fulltrúum Alþb., Alþfl. og Framsfl. í borgarráði. Þessi bókun finnst mér líka sýna að í Framsfl. eru einnig menn sem telja að núverandi skipan þessara mála sé óeðlileg. Ég held því að nauðsynlegt sé að það komi fram nákvæmlega hverjir það eru hér á hv. Alþingi sem leggjast gegn umbótatillögum af því tagi sem hér er flutt frv. um. Það er óþolandi með öllu að þeir geti í skjóli flokka sinna stöðvað mál af þessu tagi án þess að þeir komi sjálfir nokkurn tíma fram. Það er alveg óþolandi. Þess vegna ber að gera kröfu til þess og leggja á það áherslu að iðnn. hv. Nd. skili skilyrðislaust nál. og tillögu um afgreiðslu á þessu máli, ekki einhvern tíma í vor þegar allt er farið hér í hnút heldur núna á næstu mánuðum vegna þess að það er auðvitað við því að búast og má gera ráð fyrir því að umsagnir um þetta mál liggi þegar fyrir eftir meðferð þess í nefndum á tveimur löggjafarþingum. Þess vegna er ekki eftir neinu að bíða með að ná fram afstöðu í þessu efni.

Ég ítreka svo að lokum beiðni mína til núverandi og fyrrverandi hæstv. iðnrh. að þeir láti þinginu í té þau frumvarpsdrög sem fyrir liggja í iðnrn. að sögn menntmrh. og eru væntanlega almannaeign ekki síður en jarðhitinn fyrir neðan 100 metra.