21.11.1985
Sameinað þing: 19. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 855 í B-deild Alþingistíðinda. (674)

Okurmál

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Aðeins örfá orð nú í lokin á þessari umræðu sem mér skilst að séu upp að renna.

Ég þakka forseta enn fyrir röggsamlega og sanngjarna fundarstjórn í allri þessari miklu umræðu og fyrir það að leyfa hana. Ég þakka einnig hv. 2. þm. Reykv. sem tók sig til og fræddi hv. þingdeild og mig um nokkrar grundvallarstaðreyndir í sambandi við vaxtamál og okurmál og lög sem að þeim lúta. Margt af því var mér reyndar kunnugt eftir sjálfsnám mitt undanfarna daga, en það sakaði ekki að rifja það upp og fá það skýrt af lögglöggum manni eins og hv. 2. þm. Reykv. er.

Hv. 2. þm. Reykv. beindi spurningum til Alþb. Ég vona að hann fyrirgefi mér þó að svörin hér og nú verði í styttra lagi vegna þess að ég vil ekki níðast á góðvild forseta sem er að leyfa mér að tala í þriðja sinn. Hann spurði út í vanda lífeyrissjóðanna og hvaða stefnu Alþb. hefði gagnvart því máli. Ég get í sjálfu sér ekki svarað alveg fyrir Alþb. í þeim efnum. Ég tel mig ekki hafa til þess umboð á þessari stundu og mig rekur ekki minni til þannig stefnumarkandi samþykkta um það mál að ég geti svarað því hreint út. En ég bendi á að vandi lífeyrissjóðanna er ekki eingöngu bundinn við vexti og ávöxtun fjár. Hann er ekki síður bundinn við þá aldursdreifingu sem er í þjóðfélaginu og þá aldursdreifingu sem menn spá að verði hér á nokkrum næstu áratugum. Það er í raun og veru miklu stærri hluti vandans sem liggur þar vegna þeirra auknu byrða sem lagðar verða á lífeyrissjóðina sjáanlega í framtíðinni af þessum sökum. Það eru sem sagt fólksfjöldatölur og spár um fólksfjölda sem gera að verkum að menn þykjast sjá að þarna stefni í óefni. Þetta verður ekki leiðrétt. Fyrir þessu verður ekki séð með einum saman vöxtunum, það er alveg ljóst.

Hitt er annað mál og það er einnig stefna Alþb. að nauðsynlegt er að þessir sjóðir eins og aðrir slíkir geti tryggt stofnfé sitt og varðveitt það þannig að það brenni ekki upp. Um það er held ég ekki deilt í íslensku þjóðfélagi í dag og hefur ekki verið um nokkurt árabil þó að hv. þm. Vestfjarða hafi haldið því fram hér áðan að einhver merkileg stefnubreyting hefði uppgötvast í umræðunni.

Ég tel mig hafa skýrt afstöðu mína í það minnsta til vaxta á almennum sparisjóðsbókum og ávísanareikningum. Ég benti einmitt á að þar væri sá hópur fólks sem verst færi út úr ástandi mála í dag og ég er ósáttur við það. Það er eitt af því sem er stórlega rangt í vaxtamálunum í dag hvernig sá fjölmenni hópur fer út úr þessu og á hversu fáránlega lélegum ávöxtunarkjörum það mikla fé sem þar fer í gegn er miðað við ýmislegt annað fjármagn í landinu.

Ég held að ég fari ekki nánar út í ýmsar þær spurningar og athugasemdir sem gerðar voru við mál mitt og málflutning okkar Alþýðubandalagsmanna hér, en vil í lokin segja það, herra forseti, að ég er ekki sammála hæstv. sjútvrh. sem segir að stjórnarandstaðan hafi í þessari umræðu einungis verið með nöldur og viljað auka vandann með því að leggja til aðhaldsleysi á öllum sviðum. Þetta er alrangt. ég kynnti einmitt í umræðunni fyrr í dag þau áform Alþb. að leggja fram frv. á allra næstu dögum þingsins þar sem okkar tillögur að aðgerðum í þessum málum eru settar fram. Það er okkar tilboð til hv. alþm. og til ríkisstj. um þær aðgerðir sem við erum reiðubúin að taka þátt í. Þar koma inn í þættir eins og eftirlit með þessum hlutum, leyfisskráning og ýmislegt fleira. Ég vil því segja, herra forseti, að í þessari umræðu hafi stjórnarandstaðan, ég tel mig a.m.k. hafa gert það, bæði gagnrýnt málsmeðferð ríkisstj. og ýmislegt í sambandi við hennar meðhöndlun á þessum málum, það er rétt, en við höfum einnig sett fram okkar tillögur og lagt til úrbætur og gert kröfur um úrbætur. Ég tel það vera málefnalegan málflutning, herra forseti.

Að síðustu þetta: Ég hvet menn til að gleyma sér ekki í fortíðinni í þessum efnum. Það er auðvitað alveg rétt að áður hefur pottur verið brotinn og okur hefur áður viðgengist. En menn mega hvorki dvelja um of við Biblíusögutímana né heldur við okurmálalöggjöf Hammúrabís þó að hún sé að sjálfsögðu gagnmerk. Við lifum í nútíðinni, herra forseti, og við þurfum að takast á við vandamál nútímans fyrst og fremst. Við leysum hvort sem er ekki úr þessu þau vandamál sem Hammúrabí var að glíma við á sínum tíma í sambandi við okur.

1