26.11.1985
Sameinað þing: 21. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 892 í B-deild Alþingistíðinda. (708)

60. mál, alþjóðasamningur um afnám mismununar gagnvart konum

Fyrirspyrjandi (Sigríður Dúna Kristmundsdóttir):

Herra forseti. Þann 13. júní s.l. var samþykktur hér á Alþingi alþjóðasamningur um afnám allrar mismununar gagnvart konum. Í umræðum um þennan samning kom fram að þótt engar formlegar hindranir stæðu í vegi fyrir fullgildingu samningsins skorti mikið á að ákvæðum hans væri í raun framfylgt hér á landi. Kynbundið launamisrétti, vanmat á barnsfæðingarhlutverki kvenna, eins og það heitir í samningnum, og bág fjárhagsleg og félagsleg staða kvenna var meðal þess sem nefnt var að leiðrétta þyrfti ef þessi samningur ætti að verða eitthvað annað en orðin tóm. Þess vegna hef ég á þskj. 62 spurt hæstv. forsrh. að því, með leyfi forseta: „Hvernig hyggst ríkisstj. ná markmiðum samnings um afnám allrar mismununar gagnvart konum sem samþykktur var á Alþingi 13. júní s.l.?" Hefði ég þá ekki síst hug á að vita hvernig ríkisstj. hefur hugsað sér, t.d. í kjarasamningum við opinbera starfsmenn, að taka á því launamisrétti og því vanmati á störfum kvenna sem þar blasir við rétt eins og annars staðar á vinnumarkaðnum. Og ef ríkisstj. ætlar að hafa afskipti af komandi kjarasamningum annars launafólks, hvernig hefur hún þá hugsað sér að taka á þessu misrétti þar?

Ég nefni þetta sérstaklega, en auðvitað hef ég hug á að vita um mörg fleiri atriði sem samningurinn tekur til. T.d. hvernig ríkisstj. hefur hugsað sér að taka tillit til barnsfæðingarhlutverks kvenna og skapa aukið rúm fyrir börn í þessu þjóðfélagi. Ætlar hún að lengja fæðingarorlofið, byggja fleiri dagvistarheimili, stytta vinnutímann? Hvað ætlar hæstv. ríkisstj. að gera til að ná markmiðum þessa samnings? Um það er spurt.