26.11.1985
Sameinað þing: 21. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 896 í B-deild Alþingistíðinda. (714)

60. mál, alþjóðasamningur um afnám mismununar gagnvart konum

Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Í svari mínu áðan lagði ég á það áherslu að ríkisstj. hefur fullan hug á að framkvæma þann samning sem fullgiltur hefur verið og þau lög sem samþykkt voru á Alþingi 19. júní s.l.

Ég var að segja að mér finnst ekki óeðlilegt að framkvæmdir ríkisstj. og Alþingis á þessum sviðum byggist á því sem lög og samningur gera ráð fyrir. Mér finnst gæta óþolinmæði þegar þess er krafist að framkvæmd sé lokið við að útrýma ýmsum órétti sem, eins og ég sagði, því miður eflaust ríkir og lög frá l9. júní s.l. eiga að ráða að einhverju leyti bót á.

Jafnréttisráð kemur að vísu aldrei til með að þurrka út þann mismun sem er á milli kynjanna. Það er alveg ljóst. Það getur í besta lagi gert tillögur um slíkt sem ríkisstj. og fjárveitingavald og ekki síður atvinnurekendur og fjölmargir aðrir í þjóðfélaginu þurfa síðan að framkvæma. Það verður ekki gert á einni nóttu, það er alveg ljóst. Það tekur lengri tíma.

Ég nefndi áðan að ýmsar upplýsingar liggja ekki fyrir hér. Ég heyrði nýlega á fundi þar sem m.a. málsvari Jafnréttisráðs talaði og fleiri og upplýstu að athuganir sem gerðar hafa verið erlendis hafa leitt í ljós atriði sem við þurfum að kanna. Þar var t.d. upplýst að könnun í Svíþjóð hefði sýnt að launamisrétti þar stafaði að langmestum hluta af því að konur hefðu ekki hlotið þá menntun sem oft væri krafist í ýmsar stöður. Hins vegar var tekið fram að þetta væri að breytast og það er að breytast líka hér því að konur leita sér stöðugt meira og meira æðri menntunar og verða þess vegna betur gjaldgengar í ýmsar þær stöður sem um er að ræða. Ég held að það séu svona atriði sem krefjast nokkurs tíma til að ná settu markmiði og fleira þess háttar þurfum við vitanlega að kanna og stuðla að.

Ég skal ekki, tíminn leyfir það ekki, rekja fleira sem fróðlegt hefur komið fram um þessi mál á undanförnum vikum og mánuðum. En ég endurtek það að ríkisstj. hefur fullan hug á að gera það sem í hennar valdi er til að þetta hreyfist og það fljótt í rétta átt.

Spurningu hv. síðasta ræðumanns um fjárveitingar get ég litlu svarað. Ég hef ekki farið yfir þær eins og hún, en ég er sannfærður um að Jafnréttisráð, þegar það er skipað, gerir áætlanir um fjárþörf og þá verður vitanlega fjárveitingavaldið að skoða þær tillögur þegar þær koma fram.