26.11.1985
Sameinað þing: 21. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 903 í B-deild Alþingistíðinda. (724)
147. mál, þjóðminjalög
Fyrirspyrjandi (Hjörleifur Guttormsson):
Herra forseti. Á þskj. 161 hef ég leyft mér að bera fram svofellda fsp. til hæstv. menntmrh. um frv. til þjóðminjalaga:
„Hvað veldur því að frv. til nýrra þjóðminjalaga, sem boðað var að flutt yrði á 106. löggjafarþingi 1983-84, hefur ekki enn verið lagt fram?"
Á nefndu þingi, nánar tiltekið þann 27. mars, mælti ég fyrir fsp. til hæstv. þáv. menntmrh. um stöðu endurskoðunar þjóðminjalaga og hvort vænta mætti þess að frv. til nýrra þjóðminjalaga yrði þá flutt á því þingi. Hæstv. menntmrh., Ragnhildur Helgadóttir, svaraði þessu þá á þennan veg m.a.:
„Frv. til nýrra þjóðminjalaga verður væntanlega lagt fram á yfirstandandi þingi, en frv. er nú til athugunar í ráðuneytinu. Um allmikinn lagabálk er að ræða, þannig að einhvern tíma mun taka að kanna hina ýmsu þætti frv. til nokkurrar hlítar, en því er langt komið og ég á von á að það verði búið mjög fljótlega.“
Hæstv. ráðh. greindi þá í svari sínu frá nokkrum þáttum þess frv. sem unnið hafði verið á vegum menntmrn. af þriggja manna nefnd og skilað til ráðuneytisins í desember 1983, nefndarálit ásamt tillögum að þjóðminjalögum og ég fagnaði því að von skyldi á því að frv. skyldi lagt fram.
Nú hefur það ekki gerst enn þá og því spyr ég nú nýjan hæstv. menntmrh. að því hvenær vænta megi að flutt verði stjfrv. til þjóðminjalaga.
Mér er málið nokkuð skylt. Ég hygg að það hafi verið safnamenn á Austurlandi sem fyrstir ýttu á eftir endurskoðun af þessu tagi 1976. Og þegar 1977 skipaði þáv. hæstv. menntmrh., Vilhjálmur Hjálmarsson, nefnd í þetta mál en hún komst ekki á skrið og málið var endurvakið af Ingvari Gíslasyni, hæstv. menntmrh., 1981 og afraksturinn barst ráðuneytinu í desember 1983. Ég spyr því hæstv. ráðherra: Er ekki að vænta þess að við förum að sjá þetta mál hér á Alþingi?