26.11.1985
Sameinað þing: 21. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 906 í B-deild Alþingistíðinda. (729)
Veiðar smábáta
Valdimar Indriðason:
Herra forseti. Hér hefur verið vakið máls á vandamáli sem hefur verið mjög í brennidepli um tíma. Við getum deilt um eða verið sammála um kvóta, en eitt held ég að við séum öll sammála um og það er að við höfum ekki gengið þannig frá leikreglum í ríkjandi fiskveiðistjórnun sem stærri hluti smábátaeigenda getur unað við. Nokkuð bar á þessu haustið 1984, síðasta mánuð ársins, þegar trillubátum var haldið í landi í blíðskaparveðri. Við mörkun þeirrar fiskveiðistefnu sem ákveðin var fyrir yfirstandandi ár var tekið mið af þessari reynslu og lagt til og samþykkt í sjútvn. Ed., þar sem frv. var lagt fram, að setja undir þennan leka eins og hægt væri í reglugerð með því að sjútvrh. væri heimilað að veita þessari bátastærð, sem veiddi úr sameiginlegum kvóta, heimild til að útvega sér kvóta allt að 1000 tonnum frá bátum sem höfðu aflamark og voru aflögufærir. Í þeirri reglugerð segir svo í III. kafla, 5. gr.:
„Fari afli báta undir 10 brúttórúmlestum fram úr ofangreindum mörkum á ákveðnu tímabili er ráðuneytinu heimilt að stöðva veiðar þeirra um sinn.“ Þetta hefur verið gert. „Hafi veiðar báta verið stöðvaðar á síðasta tímabili, sbr. 1. málsgr., getur ráðherra leyft flutning á aflamarki af bátum 10 brúttórúmlestum og stærri til báta minni en 10 brúttórúmlesta skv. reglum 20. gr. eða úthlutað ákveðnu aflamarki til þeirra, þó ekki meira en 1000 lestum samanlagt, enda sé viðkomandi bátum haldið úti til veiða í atvinnuskyni allt árið.“
Mér sýnist að þessi reglugerðarákvæði gefi hæstv. ráðh. fulla heimild til að heimila bátum undir 10 lestum að afla sér kvóta allt að 1000 tonnum. Þessi heimild mundi leysa verulegan vanda í þessum efnum. Auðvitað er rétt að þessi bátastærð hefur fiskað umfram það magn sem hún mátti samkvæmt reglum sem settar voru í byrjun árs, en það sem eftir stendur er að sé farið fram yfir á síðasta tímabilinu er heimildin miðuð við það tímabil. Þess vegna, án þess að orðlengja um þessi mál, hvet ég hæstv. sjútvrh. til að endurskoða afstöðu sína í þessu máli.