26.11.1985
Sameinað þing: 21. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 909 í B-deild Alþingistíðinda. (733)

Veiðar smábáta

Friðjón Þórðarson:

Herra forseti. Á þessu ári hafa mönnum mjög vaxið í augum aflabrögð á smábátum hér við land, sérstaklega sums staðar. Af orðum hæstv. sjútvrh. kom fram að nokkuð hefur verið hugað að þessu máli í ráðuneytinu. Hæstv. ráðh. sagði m.a. að útilokað væri að skilja á milli atvinnumanna og áhugamanna í smábátaútgerð.

Nú liggur fyrir frv. um stjórn fiskveiða sem væntanlega kemur til umræðu í dag eða næstu daga hér í hv. deild. Gefst þá betra tækifæri til að ræða þessi mál en nú.

Það vita allir að engar veiðar eru jafnháðar veðri og vindum og veiðar smábáta undir 10 tonnum. Það viðurkenna allir að það þarf að hafa einhverja heildarstjórn á aflabrögðum. En vandamál þessara svokölluðu trillukarla eru það mikil að ég tel að þeim hafi ekki verið nægur gaumur gefinn.

Hæstv. ráðh. gaf í skyn að þessir bátar gætu hafið línuveiðar strax eftir áramót. Ég fer þess á leit við hæstv. ráðh. að hann nýti nú þegar allar þær heimildir sem gefast í fiskveiðilöggjöfinni til að rétta nokkuð hlut þessara manna í samráði við sjávarútvegsnefndir Alþingis. Og það verði ekki beðið með þetta, heldur hverfi hæstv. ráðh. að því, sem honum ber samkvæmt lögum, að hafa náið samráð við sjávarútvegsnefndir Alþingis, skipaðar hinum hæfustu mönnum á þessu sviði og nýta heimildir til hagsbóta þessum smábátaútgerðarmönnum.