26.11.1985
Sameinað þing: 22. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 913 í B-deild Alþingistíðinda. (742)

149. mál, samstarfssamningur Norðurlanda

Utanrrh. (Geir Hallgrímsson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir till. til þál. um fullgildingu samkomulags um breytingu á samstarfssamningi Norðurlanda.

Með þáltill. þessari fer ríkisstj. þess á leit að Alþingi heimili fullgildingu samkomulags frá 6. maí 1985 um breytingu á samstarfssamningi Norðurlanda frá 23. mars 1962.

Á 30. þingi Norðurlandaráðs í Helsingfors árið 1982 var rætt um hugsanlegar breytingar á starfsemi þeirra stofnana sem starfa á grundvelli Helsingforssamningsins til þess að gera norræna samvinnu virkari. Sérstakri nefnd. Benkow-nefndinni svokallaðri var falið að gera tillögur um þessi mál. Í framhaldi af skýrslu hennar og viðræðum samstarfsráðherra voru samþykktar á 35. þingi Norðurlandaráðs í Reykjavík fyrr á þessu ári tvær ályktanir, nr. 16 og 17 frá 1985, um skipulag norrænnar samvinnu.

Tillögur sem settar voru fram í ályktununum voru teknar upp í samkomulagi um breytingu á Helsingforssamningnum. Matthías A. Mathiesen, viðskrh. og samstarfsráðherra um Norðurlandamálefni þá, undirritaði samkomulagið fyrir Íslands hönd í Lundi 6. maí 1985. Samkomulagið er prentað sem fskj. I með þáltill. þessari.

Með þáltill. fer ríkisstj. þess á leit að Alþingi heimili fullgildingu samkomulagsins eins og áður er sagt.

Í tengslum við breytingar á Helsingforssamningnum voru einnig gerðar breytingar á samningi frá 15. mars 1971 um samstarf á sviði menningarmála. Matthías Á. Mathiesen undirritaði einnig þennan samning um breytingu á fyrri samningi í Lundi 6. maí L985. Samningurinn er prentaður sem fskj. II með þáltill. þessari. Að fenginni heimild til fullgildingar breytingar á Helsingforssamningnum mun ríkisstj. einnig láta fullgilda breytingu á menningarmálasamningnum.

Breytingar þær sem hér um ræðir miða að því að gera starfsemi á grundvelli norrænnar samvinnu virkari eins og fyrr er á drepið. Í því skyni verður skrifstofa ráðherranefndar Norðurlandaráðs í Osló flutt til Kaupmannahafnar og sameinuð skrifstofu þeirri í Kaupmannahöfn sem annast hefur sérstaklega Norðurlandasamvinnu á sviði menningarmála. Enn fremur verða fjárlög vegna menningarmála felld inn í sameiginleg fjárlög Norðurlandaráðs, en menningar- og menntamálaráðherrar gera áfram tillögur um fjárveitingar á þessu sviði og eru í forsvari um þau efni.

Með breytingum á 52. gr. samstarfssamningsins verður fulltrúum í stjórnarnefnd Norðurlanda fjölgað úr fimm í tíu. Svo er ráðherranefndinni gert að leggja fjárhagsáætlun vegna norrænnar samvinnu fyrir þing Norðurlandaráðs. Að lokum má nefna tillögur sem varða skipulag skrifstofu stjórnarnefndarinnar og ritaranefnd, sbr. breytingu á 54. gr. samstarfssamningsins.

Ég vil taka það fram að svo er ráð fyrir gert að þessir samningar komi til framkvæmda frá og með 1. janúar n. k., en þar sem áskilið er að fullgilding fari fram mánuði áður en samningurinn kemst til framkvæmda er nauðsynlegt að afgreiða þessa þáltill. fyrir lok mánaðarins og ætti það að vera hægt svo kunnug sem þáltill. eða efni hennar er hv. þm.

Ég vænti þess að þessari þáltill. verði vel tekið og leyfi mér, herra forseti, að leggja til að till. þessari verði að lokinni þessari umræðu vísað til utanrmn. og seinni umr.