26.11.1985
Neðri deild: 20. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 949 í B-deild Alþingistíðinda. (750)

134. mál, álbræðsla við Straumsvík

Iðnrh. (Albert Guðmundsson):

Herra forseti. Hv. 5. þm. Austurl. beindi til mín einni spurningu. Ef ég náði henni rétt þá hljóðaði hún svo: „Er iðnrh. tilbúinn til að leysa samninganefnd frá þagnarskyldu?" Svar mitt verður að vera það að þegar tveir aðilar eða fleiri bindast þagnarskyldu tel ég mig ekki geta með einhliða ákvörðun leyst viðkomandi aðila undan þeirri þagnarskyldu sem í gildi er og á þeim hvílir. Svar mitt er því: Nei.