27.11.1985
Neðri deild: 21. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 982 í B-deild Alþingistíðinda. (761)

145. mál, stjórn fiskveiða

Einar Kr. Guðfinnsson:

Herra forseti. Það mál sem nú er komið á dagskrá hv. Alþingis er eitthvert hið mikilvægasta sem hér hefur verið lagt fram. Það mál snertir í rauninni alla þjóðina og getur örugglega haft úrslitaþýðingu um afkomu okkar, lífsskilyrði, tekjur almennt og búsetu í þessu landi um fyrirsjáanlega framtíð.

Þetta mál hefur nú þegar hlotið allmikla umræðu og mikla kynningu víðs vegar um landið og enn fremur í hagsmunasamtökum sjávarútvegsins. Við erum því flestöll kunnug þeim meginrökum sem liggja að baki þeim hugmyndum sem uppi eru um fiskveiðistjórnun í landinu, þar með taldar vitaskuld þær hugmyndir sem liggja að baki því frv. sem hæstv. sjútvrh. hefur hér fylgt úr hlaði.

Engu að síður er það mjög mikilvægt að hér á hinu háa Alþingi fái þetta mál eðlilega meðferð og um það verði fjallað af yfirvegun og íhygli og allar leiðir skoðaðar. Þetta mál er vítaskuld afar flókið og alls ekkert einhlítt í þessum efnum.

Ég tel að það sé mikilvægt þegar við skoðum þessi mál að við reynum að setja umræðuna sem nú hefur hafist hér í sölum Alþingis í nokkurt samhengi við það sem fyrr hefur gerst í þessum málum.

Það var um það talað hér áðan af hv. 5. þm. Reykv. að almættið hefði áður og fyrr stjórnað fiskveiðunum. Þegar almættið hætti að stjórna um miðjan síðasta áratug og sjávarútvegsráðherrar þessa lands tóku við þá blöstu við ákveðnar staðreyndir. Það er í fyrsta lagi það að þetta var um það leyti sem við vorum að hrinda af höndum okkar útlendingum af miðunum í kringum landið og rétt um það leyti kom fram ákaflega alvarleg skýrsla frá Hafrannsóknastofnun á árinu 1975, hin svokallaða svarta skýrsla, sem dró upp ákaflega dökka mynd af ástandi lífríkisins í sjónum í kringum landið. Það var m.a. á grundvelli þessarar skýrslu og með þessa skýrslu í bakgrunni sem Alþingi setti lög nr. 81 frá 31. maí 1976, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Það er á grundvelli þessara laga sem fiskveiðum í kringum landið var stjórnað allt fram á árið 1984.

Ég vil minna á að á grundvelli þessara laga var beitt víðtækum almennum aðgerðum til þess að stýra og stjórna veiðunum og takmarka sóknina í fiskstofnana.

Ég vil einnig minna á í fyrsta lagi að á grundvelli þessara laga var beitt lokun á hrygningarsvæðum landsins. Það er enginn vafi á því að þessar heimildir til lokunar á hrygningarsvæðum höfðu jákvæðar og mikilvægar afleiðingar í för með sér. Um þetta deilir enginn nú í dag, þó einatt sé það þannig að menn greinir á um framkvæmdina í smáatriðum hvað þetta varðar.

Svipaða sögu er að segja um annað ákvæði, sem beitt var á grundvelli þessara sömu laga, en það var lokun uppeldissvæða fyrir norðan og vestan landið. Ég vil t.d. nefna svæðið út af Kögrinum við Vestfirði. Auðvitað greindi menn á um framkvæmdina í þessum efnum líka í smáatriðum. En í meginatriðum hefur samt sem áður ríkt um það einhugur að á grundvelli þessara laga beri að beita lokun á uppeldis- og hrygningarsvæðum. Sama er auðvitað að segja um svæðisbundnar lokanir sem sífellt er verið að beita fram á þennan dag á svæðum þar sem upp kemur of mikill smáfiskur í afla togara.

Ég vil enn fremur minna á að á þessum árum var líka tekin sú ákvörðun, sem þá olli nokkrum titringi en er nú almennt viðurkennd, að auka möskvastærð í botnvörpu togara fyrst úr 120 mm í 135 og loks í 155. Allar þessar aðgerðir sem ég hef hér nefnt höfðu augljóslega jákvæð áhrif í för með sér og hafa t.d. augljóslega dregið mjög úr smáfiskaveiði við landið.

En mikilvægasta atriðið í þessu sambandi er þó enn ótalið. Það lýtur að sjálfri grundvallarstjórnuninni sem átti sér stað á fiskveiðum okkar frá árinu 1976 og byggðist á þeim lögum sem ég hef nú þegar margoft nefnt. Hér á ég við þá aðferð sem við notuðum allt frá árinu 1976 og fram til ársins 1984 og byggðist á tegundamarki, skrapdögum eða þorskveiðibanni sem stóð í allt að 150 daga á ári. Í þessu sambandi er rétt að geta þess að um þetta mál ríkti í meginatriðum friður á meðan sú framkvæmd stóð. Í meginatriðum ríkti um þetta friður sem er auðvitað grundvallaratriði þegar við erum að tala um fiskveiðistjórnun, svo flókin sem hún er í allri framkvæmd. Að þessu stóðu sjávarútvegsráðherrar úr þremur stjórnmálaflokkum sem unnu heils hugar að framkvæmd þessara laga og þessara aðferða.

Ég vil í fyrsta lagi minna á að lögin voru sett að frumkvæði og undir forustu Matthíasar Bjarnasonar, sem þá var sjútvrh. Þeim var enn fylgt af Kjartani Jóhannssyni, þáv. sjútvrh. og loks af núv. hæstv. forsrh., þáv. sjútvrh., Steingrími Hermannssyni. Ég held það sé mjög mikilvægt að við höfum þetta í huga og minnumst þess, þegar við erum að tala hér nú um kvótaskiptingu á afla, að ekki er langt síðan hér var framkvæmd allt önnur veiðistjórnun í sæmilegum friði af mönnum með svo gerólíkar stjórnmálaskoðanir, sem ég hef þegar rakið hér. Mér finnst nefnilega að þrátt fyrir að ekki séu nema tvö ár síðan að lög, sem gerbreyttu fiskveiðistjórnuninni, voru sett, þá sé farið að fyrnast yfir það að við höfðum þá áður komist af með fiskveiðistjórnun sem fór fram með allt öðrum hætti og hægt var að beita í sæmilegum friði af mönnum úr þremur mismunandi stjórnmálaflokkum í landinu.

Það var hins vegar á árinu 1983 að talið var nauðsynlegt að gerbreyta hér um aðferð, að hverfa frá tegundamarkinu en hverfa að kvótafyrirkomulagi og síðan þá hefur það verið við lýði. Því var að vísu mjög haldið á lofti um það leyti sem farið var að impra á þessari hugmynd að hér ætti fyrst og fremst að vera um að ræða skammtímaaðgerð og enn þá heyri ég að menn eru að gæla við að hægt verði að hrinda þessari framkvæmd af höndum sér að ári og að samþykkja þennan kvóta einungis til eins árs. En ég minni á að verði það fyrirkomulag ofan á þá verður búið að hafa kvóta hér við lýði í þrjú ár.

Þegar farið var að impra á því að taka upp breytt fyrirkomulag á stjórnun fiskveiða þá var enn í bakgrunninum ákaflega svört skýrsla frá Hafrannsóknastofnun. Í þeirri skýrslu var lagt til að einungis yrðu veidd á árinu 1984 um 200 þús. tonn af þorski. Við skulum hafa í huga þegar þetta er nefnt að einungis örfáum árum áður, árið 1981, höfðu veiðst hér af Íslendingum sjálfum 461 þús. tonn af þorski. Hér var því verið að leggja til meira en helmings niðurskurð á þorskafla landsmanna með þeim afleiðingum sem það nú hefði haft fyrir efnahagslíf þjóðarinnar. Það var með þennan dökka bakgrunn að fiskiþing samþykkti að kvótafyrirkomulag skyldi tekið upp á fiskveiðum til eins árs, en með miklum semingi þó.

Nú er þetta mál enn á dagskrá þrátt fyrir að aðstæður hafi mjög breyst í lífríkinu í sjónum í kringum landið. En við stöndum að því leytinu nú í allt öðrum sporum að nú að þessu sinni erum við reynslunni ríkari. Við getum borið þessa fiskveiðistjórnun saman við það ástand sem ríkti hér á árum áður og við getum reynt að átta okkur á því hvort við höfum í þessum efnum gengið götuna fram eftir veg til góðs eða hvort við höfum yfir höfuð eftir nokkru að slægjast í þeirri aðferð sem ríkt hefur við fiskveiðistjórnunina síðustu tvö árin.

Augljóslega eru menn ekki á eitt sáttir í þessu mikilvæga, flókna og stóra hagsmunamáli. Augljóslega eru uppi mjög mismunandi viðhorf, guði sé lof, því hvernig væri nú komið fyrir okkar þjóð og okkar lýðræði, ef menn hefðu ekki ólíkar skoðanir í svo veigamiklu atriði. En þrátt fyrir það vil ég fullyrða að í raun og veru ríkir meðal allra þeirra, sem um þessi mál þurfa að fjalla, megn óánægja með þá skömmtun sem í núverandi kerfi er innbyggt. Þetta kann að hljóma dálítið mótsagnakennt í ljósi þess að sífellt er til þess vitnað að hagsmunasamtökin hafi lýst yfir velþóknun sinni á núverandi fiskveiðistjórnunaraðferð.

Í fyrsta lagi vil ég gera þá athugasemd við þá fullyrðingu að Farmanna- og fiskimannasamband Íslands, hvorki meira né minna, stéttarfélag skipstjóra og stýrimanna í landinu einfaldlega hafnaði núverandi kerfi. Það hafnaði núverandi kerfi og lagði til allt aðra stjórnunaraðferð. Hér er um að ræða þá menn sem kannske hvað helst starfa í návígi við þessa aðferð, ef þannig má að orði komast. Sjómannasamband Íslands hélt ekki þing sitt á þessu ári, en Farmanna- og fiskimannasambandið gerði það hins vegar og samþykkti með umtalsverðum meiri hluta að hafna þessu kerfi.

Í öðru lagi kom það fram, bæði á fiskiþingi og á þingi Landssambands ísl. útvegsmanna, að það er ríkjandi mikil óánægja með núverandi fyrirkomulag og það mátti jafnvel heyra og lesa í blaðaviðtölum við þá sem harðast gengu fram um það að fá þetta kerfi samþykkt að þar var óánægja ríkjandi. En hitt er rétt, sem fram kom í ræðu hæstv. sjútvrh., að því miður hefur ekki tekist að sameina alla þá sem óánægðir eru í hjarta sínu um eina tillögu, um annan valkost og því fór sem fór á þessum þingum. (Forseti: Ég vil nú leyfa mér að ónáða hv. ræðumann. Ég sé að hann mun eiga allmikið eftir af ræðu sinni og nú er hugmyndin að gera fundarhlé í 11/2 klst. og byrja hér aftur kl. 8.30.) - [Fundarhlé.]

Ég held nú áfram máli mínu þar sem frá var horfið. Ég hafði nýlokið við að lýsa því að í raun og veru væri, þrátt fyrir ályktanir tveggja hagsmunasamtaka, ríkjandi talsverð óánægja með kvótafyrirkomulagið, með aflamarksleiðina, og því væri það ekki alls kostar rétt að halda því fram að um væri að ræða einhuga stuðning hagsmunasamtakanna í landinu við þessa aðferð.

En nú er rétt að hyggja að sjálfu frv. og líta á einstakar efnisgreinar þess. Ég vil þá byrja á því að skoða nokkuð 1. efnisgr. frv. sem hljóðar svo, fyrri hlutinn, með leyfi hæstv. forseta:

„Fyrir 1. nóvember ár hvert skal sjávarútvegsráðherra, að fengnum tillögum Hafrannsóknastofnunar, ákveða með reglugerð þann afla sem veiða má úr helstu botnfisktegundum við Ísland á komandi ári og skulu heimildir til botnfiskveiða samkvæmt lögum þessum miðast við það magn. Ráðherra er heimilt innan ársins að hækka eða lækka aflamark sem ákveðið er samkvæmt þessari málsgrein, enda sé sú ákvörðun tekin fyrir 15. apríl.“

Ég held að hér sé um að ræða ákaflega óheppilega aðferð við að ákveða hámarksafla fyrir ár hvert. Ég er þeirrar skoðunar að óheppilegt sé í sjálfu sér að leggja allt þetta vald í hendur ráðherra þrátt fyrir að hann muni styðjast við tillögugerð Hafrannsóknastofnunar. Ég er þeirrar skoðunar og sú skoðun á fylgi að fagna víða að hér þurfi að setja upp ákveðið kerfi, hafa ákveðnar almennar reglur um ákvörðun á hámarksafla þannig að allt þetta vald sé ekki saman komið í höndum ráðherra. Ef við lítum á árin 1950-1983 var þorskafli á Íslandsmiðum að meðaltali tæp 400 þúsund tonn eða 397 þúsund tonn svo ég sé ögn nákvæmari. Mestur varð þorskaflinn á þessu árabili árið 1954 eða 548 þúsund tonn en minnstur á árinu 1983 294 þúsund tonn.

Það er auðvitað algjört grundvallaratriði til þess að hægt sé að halda uppi sæmilegu atvinnuöryggi í þessari grein að hún búi við vissa festu. Þessi festa þarf meðal annars að koma fram í því að menn viti nokkuð að hverju þeir gangi, lengra en part úr ári fram í tímann. Það er þess vegna að því leytinu rétt hugsun hjá hæstv. sjútvrh. þegar hann leggur til að mótuð skuli fiskveiðistefna til lengri tíma. Þessi mikla óvissa sem greinin hefur búið við ár frá ári er að mínum dómi ein mesta ógæfa sjávarútvegsins. Þess vegna væri eðlilegt að móta fiskveiðistefnuna til lengri tíma og þegar ákvörðun um hámarksþorskafla er tekin að miða við reynslu fyrri ára. Ég vil benda á í þessu sambandi að það liggur fyrir mat og skoðun á því hvernig þorskafli á Íslandsmiðum hefur þróast á árunum 1976 til 1985 í samanburði við tillögur Hafrannsóknastofnunar um hámarksafla á þessum sama tíma. Þegar þessi mynd er skoðuð kemur glögglega í ljós að tillögur Hafrannsóknastofnunar elta meira og minna þá þróun sem varð í þorskafla næstu árin á undan. Það er af þessum sökum sem ýmsir í þessari grein hafa komist þannig að orði að svo megi segja að tillögur Hafrannsóknastofnunar megi fremur skoða sem sagnfræði heldur en vísindalegan spádóm fram í tímann.

Ég held sem sagt að það sé höfuðmál fyrir þessa grein að hún fái að búa við það starfslega öryggi sem felst í því að fiskveiðistefna sé mótuð til lengri tíma og að farið sé að almennum reglum þegar verið er að ákveða hámarksafla á botnlægum tegundum. Ég vil í þessu sambandi sérstaklega minna á orð hæstv. sjútvrh. sem hann viðhafði í ræðu í hæstv. Ed. Alþingis 19. desember 1983, en þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Einnig er rétt að taka fram að sveiflur í tekjum sjávarútvegsins hafa mikil áhrif. Þessar tekjur eru uppistaðan í okkar útflutningstekjum og hafa ekki eingöngu áhrif á afkomuna í greininni sjálfri heldur hafa þær áhrif á allan þjóðarbúskapinn. Stuðla verður að sem mestu jafnvægi þannig að jafnar framfarir verði í hagkerfinu. Mikil veiði eitt árið sem getur orsakað mun minni veiði annað árið veldur því að okkar hagkerfi verður í stöðugum sveiflum.“

Þetta held ég að sé einmitt grundvallaratriði og í þessu sambandi vil ég minna á að á árabilinu 1981- 1984 drógust saman útflutningstekjur sjávarútvegsins um sem svaraði 200 milljónum bandaríkjadala sem jafngildir því á verðlagi dagsins í dag að vera nálægt 8,5 milljarðar króna. Ég fullyrði að sjávarútvegurinn hefur svo sannarlega fengið að finna af fullum þunga fyrir þessum skelli en hið sama verður því miður ekki sagt um ýmsar aðrar greinar í landinu sem hafa getað haldið uppi gegndarlausri þenslu, launaskriði og þar fram eftir götunum í krafti erlends lánsfjár og valdið þar af leiðandi sjávarútveginum beinlínis miklum búsifjum.

Ég vil í þessu sambandi jafnframt biðja hv. þm. að leiða rétt aðeins hugann að því hvað hefði gerst ef hæstv. sjútvrh. hefði í einu og öllu farið að tillögum Hafrannsóknastofnunar um ákvörðun hámarksþorskafla landsmanna. Í þessu frv. er gert ráð fyrir að hann styðjist við tillögur Hafrannsóknastofnunar. Við skulum gefa okkur það að hann hefði farið í einu og öllu að þessum tillögum og ákveðið að í ár og í fyrra yrðu veidd um 200 þúsund tonn af þorski. Ég vil benda á að nógu illa gengur okkur að lifa með því að veiða 300- 320 þúsund tonn þó við færum ekki í þá stöðu að vera með um 200 þúsund tonna þorskafla. Hvernig halda hv. þingmenn að væri umhorfs í okkar þjóðfélagi ef við byggjum við það að þorskaflinn sem dreginn var á land hefði einungis verið 200 þúsund tonn? Hvernig ætli væri umhorfs í þessum litlu sjávarþorpum, þessum plássum úti á landi þar sem allt byggist á þessari veiði? Hvernig ætli væri hljóðið í hv. þingmönnum nú við gerð fjárlaga ef þjóðarframleiðslan væri sem þessu næmi minni? Hvernig ætli væri umhorfs á vinnumarkaði okkar? Hvernig væri komið fyrir launakjörum opinberra starfsmanna o.s.frv., o.s.frv.? Og hvernig ætli væri komið fyrir afkomu okkar fiskiskipastóls, okkar fiskvinnslustöðva? Nógu bág er hún samt.

Í 7. gr. frv. segir svo, með leyfi hæstv. forseta: „Við ákvörðun aflamarks og þorskaflahámarks 1986 fyrir fiskiskip þau sem stunduðu botnfiskveiðar með sóknarmarki 1985 gilda eftirfarandi reglur:

A. Aflamark af einstökum fisktegundum skal ákveðið þannig að afli þeirra á árinu 1985 vegi þriðjung en reiknað aflamark þeirra fyrir 1985 tvo þriðju.

B. Þorskaflahámark skal ákveðið þannig að það sé, hvort sem hærra reynist, meðalþorskaflamark báta í hverjum flokki, stærð og veiðisvæði með 20% álagi, eða reiknað þorskaflamark viðkomandi skips samkvæmt lið A með 20% álagi.

Við úthlutun botnfiskveiðileyfa fyrir árið 1987 skal endurmeta aflamark og þorskaflahámark þeirra fiskiskipa, sem botnfiskleyfi hafa með sóknarmarki árið 1986 með sama hætti og að ofan greinir, þó þannig að afli árið 1986 vegi helming við ákvörðun aflamarks eða þorskaflahámarks og vægi aflamarks á fyrra ári sbr. og 5. gr. minnki að sama skapi.“

Til þessarar greinar hefur nokkuð oft verið vitnað í umræðunum í kvöld og þessi grein verið talin til sérstaks marks um það frjálslyndi sem ríkti í tillögugerðinni varðandi ákvörðun aflamarks fyrir árið 1986. Ég held hins vegar að þessi tillögugrein eins og hún liggur fyrir feli í sér jafnmargar hættur og sá vandi sem henni er í rauninni ætlað að leysa. Þessi tillögugrein hefur það að markmiði að auðvelda þeim skipum sem það kjósa að vinna sig út úr reynslunni, aflareynslunni, sem þeim var úthlutað á árinu 1984. Henni er sem sagt ætlað að leysa þau skip úr ákveðnum viðjum og gætu þannig síðar unað við þá úthlutun sem þau fengu á grundvelli reynsluáranna um áramótin 1983-1984.

Gott og vel. En hver er vandi sá sem þessi tillögugrein skapar? Hann er auðvitað sá að þau skip sem ekki munu velja sóknarmark munu sitja eftir við aflamarkið, að hlutur þessara skipa mun rýrna að sama skapi. Eftir því sem hlutur sóknarmarksskipanna eykst - að því gefnu vitaskuld að úthlutun þorskaflamarksins sé gefin stærð - mun hlutur aflamarksskipanna rýrna, dragast saman. Menn sem einhverra hluta vegna, af gildum ástæðum væntanlega, neyðast til eða munu velja aflamarkið, sitja eftir í farinu og geta sig hvergi hreyft. Skip sem hafa drjúga úthlutun þorskkvóta munu smám saman verða að meðaltalsskipum án þess að geta komið nokkrum vörnum við.

Þá segja menn: Af hverju velja þá þessir útgerðarmenn ekki bara sóknarmarkið? Það er ekki jafnauðvelt og virðast kann við fyrstu sýn. Ég hef í huga dæmi af útgerð einni þar sem ég þekki örlítið til og þar er því þannig háttað að um er að ræða tvö skip hjá sömu útgerð. Annað skipið er gamalt og afskrifað, hitt skipið er nýtt og dýrt og ber mikinn fjármagnskostnað. Útgerðarmaðurinn þarna hefur tekið þann kostinn - til þess að tryggja það að nýja skipið geti staðið í skilum við fjárfestingasjóðina - að láta eldra skipið á rækjuveiðar og nýta botnfiskkvóta þess skips á hinu nýja. Með þessu móti hefur hann getað staðið í skilum. Þessi maður á í raun og veru engra kosta völ annarra en þeirra að halda áfram sömu aðferð ef hann ætlar sér að standa í skilum. Hann getur auðvitað reynt að fara á sóknarmarkið í því skyni að vinna sér inn nýja reynslu, brjótast úr þessum frægu viðjum, en það mun leiða til þess að hann getur ekki staðið í skilum. Þetta vil ég benda á vegna þess að þessi grein eins og hún er sett fram þarna mun með öðrum orðum skapa ný vandamál jafnframt því sem hún kann að leysa einhver sem fyrir eru.

Í þeim umræðum sem fram hafa farið um fiskveiðistjórnina upp á síðkastið hefur mjög mikið verið gert úr vanda þeirra báta sem eru innan við 10 tonn. Út af fyrir sig ætla ég ekki að orðlengja þessa umræðu. Að mínum dómi hefur hún farið úr öllum böndum og vandi þessara skipa verið á margan hátt blásinn upp og umræðan dreifst út um víðan völl m.a. vegna þess. Ég er þeirrar skoðunar í raun og veru - og það má kannske segja að liðsaukinn komi nú úr óvæntustu átt - að á margan hátt sé komið mjög til móts við sjónarmið útgerðarmanna minni bátanna í því frv. sem hér er lagt fram; þá er ég að tala um bátana fyrir neðan 10 tonn. Á hinn bóginn sé ég ekki betur en að eftir séu skildir úti í kuldanum þeir útgerðarmenn og sjómenn sem ég álít að hafi farið verst út úr þessari aðferð við stjórnun fiskveiða og það eru útgerðarmenn og sjómenn á bátum sem eru á stærðarbilinu ca. 10-20 tonn. Þessir bátar hafa á margan hátt litla aðra möguleika en þá sem bátarnir innan við 10 tonnin hafa en er samt gert að hlíta miklu strangari stjórnunaraðferðum við fiskveiðar. Ekki er talað um það að tugir ef ekki hundruð manna af þessum bátum hafa orðið að mæla göturnar í allt sumar eða fá sér aðra vinnu. Útgerðarmenn þessara báta hafa ekki getað skaffað þeim verkefni. Ég vil beina því til sjútvn. og hæstv. sjútvrh. að sérstakur gaumur verði gefinn að vanda þessara báta því hann er ærinn og hann er mjög alvarlegur. Ég held að við gerðum góðan hlut í því að beina sjónum okkar nú um stund fremur að vanda þessara báta en eingöngu að einblína á þá báta sem eru innan við 10 tonn og fer nú ört fjölgandi.

Í 12. gr. frv. í lokakafla segir svo, með leyfi forseta: „Heimilt er að takmarka framsalsheimild þeirra skipa er sérleyfisveiðar stunda.“ Ég vil sérstaklega vara við þessu ákvæði frv. Mikið er talað um það að útgerðarmenn tiltekinna báta leggi þeim upp á fjörukamb, láti þá grotna þar niður, selji kvótana sér til skemmtunar og fari síðan í sólarlandaferðir til útlanda. Þessar staðhæfingar eru byggðar á einhverjum rokufréttum nokkurra dagblaða en skipta í raun og veru engu máli. Hér er ekki um að ræða almenna misnotkun á þessu kerfi heldur fyrst og fremst einstök tilvik sem oft á tíðum eru orðum ýkt og standast tæpast frekari skoðun. Ég vil benda á að í raun og veru er ekki með þessu ákvæði - þar sem gert er ráð fyrir einhverri takmörkun á framsalsheimild - verið að reyna að ná þessum einstaklingum enda held ég að slík leit væri álíka vonlaus og leitin að nálinni í heystakknum. Hins vegar er gert ráð fyrir því beinlínis í grg. frv. að heimilt sé að takmarka framsalsrétt skipa sem hafa sérveiðileyfi og eru m.a. hafðir í huga þeir bátar sem stunda úthafsrækjuveiðar allt árið. Ég bendi á í þessu sambandi að árin 1984 og 1985 voru engan veginn reynsluár hvað þetta snertir. Hafi þau átt að vera reynsluár hefði verið eðlilegur hlutur að tilkynna um það fyrir fram svo menn áttuðu sig á því að sú aðferð sem þeir höfðu við veiðarnar væri metin sem einhvers konar reynsla. Það er alveg ljóst að hafi menn það í huga að takmarka framsalsheimildir einhverra skipa, sem byggja á því að þau nýti ekki sinn kvóta, er eingöngu hægt að líta til ársins sem nú fer í hönd, 1986, og áranna þar á eftir, en engan veginn hægt að líta á árin 1984 og 1985.

Ég vil biðja hv. þingmenn að hafa í huga hvað væri líkleg atburðarás í þessu sambandi. Í fyrsta lagi bendi ég á að hér er um að ræða ákaflega fá skip. Afli þeirra skiptir nánast engu og væri honum dreift niður á þau skip sem fyrir eru í veiðinni býst ég við að hvert skip, hver meðaltogari fengi svona 10-15 tonn út úr þeirri úthlutun og á ég ekki von á að neinn telji sig muna mikið um það. Það sem hins vegar mundi gerast á næsta ári er að útgerðarmenn þessara skipa mundu haga þannig veiðum sínum að þeir misstu ekki þennan kvóta sinn. Ég held að það sé ákaflega mikið ofmat á góðmennsku þessara útgerðarmanna, og þekki ég þar nokkuð til, að ímynda sér að þeir mundu láta kvótann úr höndum sér á svo auðveldan hátt. Það er enginn vandi fyrir þessi skip að fiska; þetta eru flest ágætlega búin togskip. Það er enginn vandi fyrir þessi skip að sópa upp þessum nokkrum hundruðum þorskígilda sem þau hafa á sumarmánuðunum júní, júlí og ágúst þegar mestur afli er. Það væri enginn vandi að koma þessum afla undan í gáma til útlanda og það væri enginn vandi sem sagt fyrir þessi skip að nýta þennan afla og halda síðan á rækjuveiðar. Og hvað hefðum við upp úr þessu? Jú, við hefðum haft það upp úr þessu að vísu að koma í veg fyrir að þau væru að braska með þennan kvóta en annað væri það að við hefðum staðið að þessum veiðum með dýrari hætti en ella. Við hefðum minnkað heildarafrakstur sjávarútvegsins í landinu því á meðan þessi skip væru að fiska þennan botnfiskafla sinn gætu þau ekki verið á rækjuveiðum og við skulum muna að þessi afli hefði í öllum tilvikum verið veiddur af öðrum skipum. Við værum að minnka heildartekjur íslenskra sjómanna. Við værum að koma í veg fyrir að nýta þá fjárfestingu sem við hefðum fyrir í landinu á hagkvæmasta hátt sem okkur ber. Er það markmiðið með þessum lögum? Er það markmiðið með málflutningi þeirra manna sem hafa talað og varað við framsalshugmyndinni og vilja takmarka hana? Ég vil spyrja að þessu.

Ég vil í þessu sambandi sérstaklega vitna til þess að í Degi, fyrir ekki löngu, var vitnað til þeirra orða hæstv. sjútvrh. að rækjuveiðar hefðu aukist mjög mikið í kjölfar breyttrar fiskveiðistjórnunar á árinu 1984 og sú aukning næmi u.þ.b. 7-800 milljónum króna. Ég hefði haldið að þessi aukning skilaði nokkru fyrir þjóðarbú okkar og væri þess eðlis að við teldum ástæðu til þess að viðhalda henni. Ég er þeirrar skoðunar að yrði þessu heimildarákvæði beitt gengi það öndvert við þá hugmynd að efla hagræði í sjávarútvegi okkar og auka hámarksafrakstrargetuna og vil ég sérstaklega minna á orð hv. 5. þm. Reykv., formanns Alþfl., sem spurði knýjandi spurninga í þessu sambandi.

Herra forseti. Ég hef nú farið yfir frv. ekki mjög ítarlega en komið inn á nokkur þeirra atriða sem ég tel vera gagnrýnisverð í frv. sjálfu. Ég vil þó leggja höfuðáherslu á að ég tel að sú aðferð við fiskveiðistjórnun sem við erum að tala um nái ekki þeim meginmarkmiðum sem hæstv. ráðherra talaði um í ræðu sinni og hefur raunar lagt áherslu á eftir því sem ég best veit á öllum þeim fundum sem hann hefur haldið vítt og breitt um landið og fyrir þá fundi vil ég sérstaklega þakka honum; það voru fundir sem voru til fyrirmyndar.

Hver voru þessi markmið? Í fyrsta lagi takmörkun heildarafla, í öðru lagi að tryggja réttláta skiptingu milli skipa og byggðarlaga, í þriðja lagi að atvinnuöryggi verði ekki stefnt í hættu, í fjórða lagi að keppa að því að minni tilkostnaður yrði í veiðum, í fimmta lagi að auka nýtingu og bæta hráefni og í sjötta lagi er spurningin um athafnafrelsi í greininni.

Það er alveg ljóst og það hefur margkomið fram að núverandi kvótakerfi tryggir ekki takmörkun heildarþorskafla. Menn segja sem svo: Þetta er ekki sanngjörn ályktun vegna þess að hér er um að ræða stjórnvaldsákvörðun um það að hundsa tillögur Hafrannsóknastofnunar. Það sem ég vil leggja áherslu á er það að núverandi kerfi býður sem sagt upp á að ekki sé farið eftir tillögum Hafrannsóknastofnunar um hámarksafla og þar af leiðandi er alveg ljóst að þetta kerfi í sjálfu sér tryggir alls ekki neitt í þessum efnum. Ég fagna því að vísu, eins og ég gerði fyrr í ræðu minni, að hæstv. sjútvrh. hafði til að bera þá víðsýni að gera kerfið þannig úr garði að það byði upp á það að fara allt að 60% fram yfir tillögur Hafrannsóknastofnunar. Í þessu sambandi vil ég minna á að þrátt fyrir þetta leggur Hafrannsóknastofnun til 50% magnaukningu frá tillögum sínum fyrir árið í ár þannig að ekki sýnist hafa verið teflt þar í neina tvísýnu.

Í öðru lagi vil ég víkja að hugmyndinni um réttláta skiptingu milli byggðarlaga og skipa. Ég verð að játa að þetta finnst mér vera háleitasta markmiðið sem býr að baki þessum kvótahugmyndum. Menn hafa í árþúsundir verið að reyna að dunda sér við að finna út hvað sé réttlæti og skylt er að geta þess að enginn hefur komist að endanlegri niðurstöðu. Um þetta hafa heimspekingar þráttað og skrifað langar bækur og þrátta víst enn. Þess vegna finnst mér ánægjulegt að í sjútvrn. skuli menn taka til við svo heimspekilegt og háalvarlegt viðfangsefni sem það að skilgreina réttlæti þó í fiskveiðum sé. En sennilega hefur ekki tekist heldur í sjútvrn. að finna hinn endanlega sannleik í þessu viðkvæma og erfiða, flókna, tæknilega máli því að svo bregður við að jafnvel bestu vinir kvótans sjá sérstaka ástæðu til þess í blaðaviðtölum að setja út á réttlætiskenndir ráðuneytisins og ráðherrans og vil ég þá sérstaklega í þessu sambandi vitna til orða Gísla Jónassonar, forstjóra Samtogs í Vestmannaeyjum, sem er eitt stærsta útgerðarfyrirtæki landsins, og hann er mikill stuðningsmaður núverandi kvótakerfis en hann segir svo í nýlegum Fiskifréttum, með leyfi forseta:

„Við Vestmanneyingar erum í höfuðdráttum sammála frv. sjútvrh. um fiskveiðistjórnun. Þó eru náttúrlega agnúar á því sem við vildum sníða af. T.d. var gott karfafiskirí á þeim árum sem höfð voru til viðmiðunar þegar kvótinn var ákveðinn á sínum tíma og við vorum þá meira í karfaveiðum en þorskveiðum. Þess vegna fáum við mjög skertan kvóta af þorski“, sagði Gísli. Og enn bætir hann við: „Núna á þessu ári erum við með öll skipin á sóknarkvóta og ég er óhress með að skip sem eru á sóknarkvóta fái ekki jafnmikinn þorsk hvort sem þau eru skráð í Vestmannaeyjum eða á Akureyri. Togari í Vestmannaeyjum fær 800 tonn en togari fyrir norðan 1500 tonn.“ Ég skal játa að ég er ekki heldur ýkja hrifinn af réttlætiskenndinni sem þarna birtist, en vek athygli á þessu fyrst og fremst til þess að sýna að í þessu háleita markmiði hefur ráðherrann ekki einu sinni getað sannfært sína einlægustu stuðningsmenn í þessu máli.

Þá er komið að spurningunni um atvinnuöryggi. Það er rétt að merkilega vel hefur tekist að tryggja atvinnuöryggi í landinu þrátt fyrir þær miklu takmarkanir sem verið hafa á þorskafla á árinu. Þetta hefur fyrst og fremst gerst vegna þess rýmis sem menn þó hafa til framsals og vil ég biðja menn að hafa þetta sérstaklega í huga þegar verður farið að fjalla um þennan hluta aflamagnsfrumvarpsins. En þó eru blikur á lofti og í einkamálgagni hæstv. forsrh. á Vestfjörðum, blaðinu Ísfirðingi, birtist ákaflega lýsandi frásögn af framkvæmd kvótakerfisins og hvernig það kemur við hinar smærri byggðir í landinu. Ég vildi fá að lesa þessa stuttu grein, með leyfi hæstv. forseta. Þetta er fréttafrásögn vestan frá Patreksfirði í þessu einkamálgagni hæstv. forsrh.; hún hljóðar svo:

„Hin hefðbundna haustvertíð línubáta hófst með seinna móti þar sem kvótinn var búinn að mestu strax í vor hjá flestum bátunum. Reynt hefur verið að fá keyptan kvóta, sem gengið hefur erfiðlega. Menn sjá fram á áframhald niður á við í útgerðarmálum staðarins þar sem afli er tregur og gæftir slæmar og auk þess dregur staða kvótamála kjark úr mönnum. Togarinn Sigurey lýkur kvóta sínum í þessari viku, þ.e. um miðjan nóvember, og er þar ekkert fram undan annað en lega við bryggju fram til áramóta. Hið sama á við um línubátinn Þrym sem einnig er í eigu HP, Hraðfrystihúss Patreksfjarðar, en hann er að ljúka við sinn kvóta þrátt fyrir að hann hafi einungis stundað bolfiskveiðar í tæpa fjóra mánuði á árinu.“

Ég vil í þessu sambandi, herra forseti, einkanlega leggja áherslu á tvö atriði. Hið fyrra er það að í einkamálgagni hæstv. forsrh. sjá menn sérstaka ástæðu til að tala um að „staða kvótamála dragi kjark úr mönnum“. Hér held ég að sé einmitt komið að kjarna þessa máls og einum alvarlegasta þætti núverandi fiskveiðistjórnunar, þ.e. þessi kvíði sem víða hefur gert vart við sig og kom fram svo oft á þessu ári þegar menn hvað eftir annað stóðu frammi fyrir því að vita ekki þegar togarinn lagði út í veiðiför hvort hann gæti fengið að fara út í aðra vegna kvótaleysis. Sem betur fer tókst oft að ráða fram úr þessu, en ég vil leggja áherslu á þann kvíða sem þetta skapaði í þessum litlu plássum og hefur örugglega átt sinn þátt í því að fólk hefur ekki laðast að störfum í þessari atvinnugrein.

Það ber að vísu að játa, vegna þessa sérstaka tilviks á Patreksfirði, að togarinn Sigurey er núna að veiða fisk fyrir Vestmanneyinga og hefur þar með verið hægt að skapa skipinu verkefni. En það er náttúrlega lítil stoð fyrir vinnufúsar hendur vestur á Patreksfirði.

Mikið er talað um að kvótakerfið hafi dregið úr öllum tilkostnaði við veiðarnar. Þetta er vitaskuld mikið deilumál og álitamál og verður sennilega seint nokkuð fullsannað í þessum efnum. Það ber að vísu að játa að líklega er kostnaður við þorskveiðar togara minni á þessu ári en oft áður. Það byggist fyrst og fremst á þeirri mikil aflasamþjöppun sem varð nú í sumar og ég mun koma að síðar. Það er ódýrara - það gefur auga leið - að moka upp fiskinum í júlí en að skarka á þessu við verstu skilyrði yfir vetrarmánuðina.

En það er fleira sem ber að hafa í huga. Á fiskiþingi á síðasta ári flutti Jón Páll Halldórsson varafiskimálastjóri erindi þar sem hann m.a. vék að þessu og sagði svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Talsmenn breytingarinnar“ - þ.e. breytingarinnar í kvótakerfi - „hafa bent á að veiðafærakostnaður netabáta hafi verið minni á síðustu vertíð en áður, en aðrir telja að hann sé miklu fremur afleiðing af hagstæðara tíðarfari. Sama er að segja um hráefnisgæði netafisks, þau voru betri en árið áður, sérstaklega vegna hagstæðara tíðarfars á vetrarvertíðinni.“

Ég hygg, herra forseti, að nákvæmlega sama megi segja um árið í ár, að það sé fráleitt að líta eingöngu til þess að kvótakerfið hafi haft í för með sér hugsanlegan sparnað í sóknartengdum kostnaði. Ég held nefnilega að þarna komi margt fleira til og ég hef þegar bent á tvö mjög mikilvæg atriði.

En það er líka talað um að kvótakerfið hafi stuðlað að betri nýtingu veiðanna, betri nýtingu á hráefni og verðmætara hráefni. Í þessum efnum held ég að álitamálin séu enn þá fleiri. Við getum að vísu reynt að skoða þessi mál með því að bera saman gæðaskýrslur þær sem Fiskifélag Íslands gefur út á grundvelli gæðamats Ríkismats sjávarafurða. En ég held að það séu tölur sem er ákaflega varlegt að treysta. Ég skoðaði nýjustu gæðamatsskýrsluna fyrir tímabilið janúar-maí á þessu ári. Þar kemur m.a. í ljós að u.þ.b. 80 línubátar á allri vetrarvertíðinni skiluðu að landi algerlega gallalausu hráefni skv. þessari skýrslu. Ég vil bara beina þeim orðum til þeirra sem þekkja til hvort þeim þyki þetta líkleg niðurstaða, hvort þeim þyki líklegt að þetta komi heim og saman við raunveruleikann, að 80 línubátar, sem fiskuðu vísast þúsundir tonna, hafi komið með hvert gramm af fiski algerlega gallalaust. Þrátt fyrir að við öll viðurkennum gæði línufisksins vitum við vel að hér er ekki um að ræða neinar raunhæfar tölur, hér er maðkur í mysunni og hér er alls ekki um að ræða neinar tölur sem á er byggjandi. Því vara ég mjög við því að fara út í samanburð á gæðum fisksins á þessum grundvelli.

Ég vil hins vegar benda á að fjölmargir þeir, sem gleggst þekkja til, eru þeirrar skoðunar að í raun og veru hafi ástand fiskjarins síst batnað við tilkomu kvótakerfisins. Í þessu sambandi langar mig til að vitna til álits tveggja manna sem eru báðir þaulkunnugir daglegu starfi í þessari grein, tveir vel menntaðir menn, fisktæknar frá Fiskvinnsluskóla Íslands sem starfa við sjávarútveg, Einar Garðar Hjaltason hjá Hraðfrystihúsinu hf. í Hnífsdal og Hörður Geirsson hjá Pólnum hf. á Ísafirði. Þeir segja svo í grein, sem birtist í Ægi 4. tölublaði 1985, með leyfi hæstv. forseta:

„Greinilegt er að sumarveiðin hefur aukist ískyggilega á milli þessara ára og var þó ekki á bætandi. Besta starfsfólk við snyrtingu og pökkun eru útivinnandi húsmæður og hvorki erlendur starfskraftur né skólafólk í sumarafleysingum standast þeim snúning. Það er því augljóst að ekki getur gefið góða raun að veiða mestan afla í júlí og ágúst þegar flestar húsmæðranna taka sér sumarfrí eða þurfa að vera heima vegna lokunar dagheimila og skóla. Afleiðingin af því að hrúga fiski á land þegar flestir vanir starfsmenn eru fjarverandi hlýtur að vera að verkstjórar neyðast til að láta vinna fiskinn í hraðvirkustu pakkningar til þess einfaldlega að hafa undan togurunum. Þá geta menn lent í þeirri aðstöðu að vinna í pakkningar sem gefa mjög lítið af sér.“

Því hefur verið haldið fram hér í þessum umræðum að þessi staðreynd, að afla hafi verið hrúgað í land í júlímánuði, eigi ekkert skylt við stjórnun fiskveiða. En hver er skoðun þessara manna, sem starfa í greininni sjálfri frá degi til dags, hafa þessa reynslu af sjálfum sér? Þeir segja svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Undirritaðir eru sannfærðir um að kvótakerfið í núverandi mynd hafi ekki aukið gæði aflans og ekki stuðlað að því að samræma veiðar og vinnslu við afrakstursgetu fiskstofna.“

Þetta er sem sagt mat þeirra. Ef við skoðum enn fremur hvernig þróunin hefur verið frá því að núverandi fiskveiðistjórnunarfyrirkomulag var tekið upp kemur í ljós að verið hefur jöfn og stöðug þróun í þessum efnum. Í júlí á þessu ári bárust á land alls 42 263 tonn. Hér er um að ræða bráðabirgðatölu Fiskifélags Íslands sem kann að breytast eitthvað örlítið en það skiptir ekki máli. Ég hef hér í höndunum tölur 20 ár aftur í tímann sem sýna okkur að aldrei á þessu tímabili hefur borist annar eins þorskafli á land. Meira að segja árið 1981, hið fræga metaflaár, bárust einungis á land í júlímánuði 34 371 tonn. Miðað við áætlanir Fiskifélags Íslands um fiskveiðar á þessu ári má búast við að júlíaflinn verði u.þ.b. 13-14% af heildarafla ársins í ár. Árið 1981 var hann 7,5%.

Ef við skoðum þróunina aftur í tímann er ljóst að umtalsverð breyting verður á árinu 1984. Enginn fær mig til að fallast á að þetta sé alger tilviljun, að skyndilega hafi menn misst allt úr böndunum og þetta eigi ekkert skylt við kvótakerfið, núverandi aðstæður við fiskveiðistjórnun. Ég held að það þurfi ærið mikla tilviljun til að svo kunni að vera.

Varðandi sjötta atriðið í markmiðum um fiskveiðistjórnun, þ.e. spurninguna um athafnafrelsið, þá þarf náttúrlega ekki vitnanna við. Það liggur fyrir að eitt markmiðið með núverandi fyrirkomulagi við stjórnun fiskveiða er nákvæmlega það að stýra og stjórna, að takmarka og koma í veg fyrir. Þetta getur varla talist mikilvægt framlag til athafnafrelsisins í landinu.

Herra forseti. Það eru fjölmörg atriði sem ég hefði viljað koma hér inn á í ræðu minni en mál er brátt að linni. Ég vil benda á að að því er stefnt með þessu kvótafrumvarpi að kvóti verði við lýði þriðja árið í röð. Nú eru aðstæður í þjóðfélaginu, í lífríkinu í sjónum allt aðrar en þær voru þegar aflamarksleiðin var fyrst valin í árslok 1983. Ég er þeirrar skoðunar að í fyrsta lagi séu fjölmargir gallar við núverandi frv. og í öðru lagi að núverandi aðferð við stjórnun fiskveiða hafi ekki náð þeim markmiðum sem að var stefnt. Það er á þessum grundvelli sem ég hef lýst andstöðu minni við þessa leið.

Ég vil í lokin taka undir þau orð hv. 5. þm. Austurl. þegar hann sagði að við ættum að hafa það í huga að þrátt fyrir mikilvægi þessa máls séu ýmis önnur mál enn mikilvægari fyrir sj ávarútveginn í heild. Þar á ég fyrst og fremst við þá alvarlegu afkomu sem nú er í þessari grein. Ég er þeirrar skoðunar að það sé frumskylda Alþingis að láta þessi mál til sín taka með miklu beinskeyttari hætti en gert hefur verið. Sú þróun, sem hófst reyndar af sérstökum krafti í tíð þeirrar ríkisstjórnar sem hv. þm. átti aðild að, getur ekki gengið lengur að eigið fé sjávarútvegsfyrirtækjanna sé að brenna upp, að greiðslustaða þeirra sé í núlli, að dag eftir dag þurfi forustumenn þessara fyrirtækja að verða að ómerkingum í viðskiptum sínum við viðskiptamenn sína, að staða sé þannig í þessari undirstöðuatvinnugrein að fólkið flýi hana, að víða um landið séu togarar á uppboði og annars staðar sé þannig komið að þeir séu að fara á kaf í skuldir.

Ég er þeirrar skoðunar að þrátt fyrir mikilvægi fiskveiðistjórnunarinnar fyrir efnahagslíf okkar allt og fyrir starfshætti atvinnugreinarinnar séu þessi afkomumál greinarinnar enn þá mikilvægari. Ég vil árétta það sjónarmið hv. þm. að þessi mál verði tekin til sérstakrar meðferðar hér á Alþingi.