27.11.1985
Neðri deild: 21. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1014 í B-deild Alþingistíðinda. (768)

145. mál, stjórn fiskveiða

Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Hv. 3. þm. Reykv. spurði mig spurningar. Ég skal með ánægju svara þeirri spurningu sem þm. beindi til mín. Það var rétt tekið eftir hjá hv. þm. að ég hef aldrei talið mig kvótamann og er ekki enn kvótamaður eins og ég orða það. Ég er hv. þm. að þessu leyti sammála, mér skildist að hann væri heldur ekki kvótamaður. En ég er einnig sammála hv. þm. um að það verður að hafa stjórn á veiðum í okkar mikilvægustu fiskistofna, eins og hann orðaði það. Reyndar hygg ég að fáir fiskistofnar séu undanteknir.

Ég reyndi á mínum tíma sem sjútvrh. að bæta það kerfi sem hlotið hefur nafnið „skrapdagakerfi“. Ég minnist þess að vísu mjög vel að það var ekki mikil ánægja með það og það var harðlega gagnrýnt. Ég gæti reyndar nefnt ráðherra í þeirri ríkisstjórn sem töldu að það ætti að taka kvótakerfi til athugunar.

Ég er jafnframt mjög eindregið þeirrar skoðunar, sem ég hygg að allir hv. þm. geti tekið undir, að það verður ein stjórnunaraðferð að gilda fyrir landið allt. Það er ekki hægt að hafa kvótakerfi í einum landshluta og skrapdagakerfi í öðrum.

Ég vek einnig athygli á því að allir sjútvrh. hafa lagt á það mjög mikla áherslu að hafa samráð við aðila sjávarútvegsins um stjórn fiskveiða. Ég hygg að í slíkri atvinnugrein sem sjávarútvegi sé annað nánast óframkvæmanlegt. Það verður að ná þar breiðri samstöðu. Ég lagði þess vegna mikla áherslu á í minni tíð að ná samstöðu við aðila sjávarútvegsins um það stjórnkerfi sem þá var beitt. T.d. kom fram á fiskiþingi 1981 tillaga um að taka upp kvótakerfi. Hún var flutt þá af Vestmanneyingum. Samkomulag varð á milli mín og fiskiþings um að sú tillaga yrði sett í nefnd. Það var gert, kosin 13 manna nefnd 13. nóv. 1981, ef ég man rétt, og ég lét sjútvrn. vinna með þeirri nefnd við að skoða þær hugmyndir. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að ekki ætti að taka upp kvótakerfi.

Nú hefur hins vegar meiri hluti hagsmunaaðila í sjávarútvegi - fyrst nokkurn veginn eindregið í árslok 1983 - mælt með því að tekið verði upp kvótakerfi. Það verður að viðurkennast að með þeirri mjög miklu takmörkun á veiði, sem augljóslega var nauðsynleg á s.l. ári ef fylgja átti tillögum fiskifræðinga, þurfti að gera enn verulegar takmarkanir í gegnum skrapdagakerfið í viðbót við það sem áður hafði verið gert. Ýmsar þær takmarkanir voru erfiðleikum háðar þó vitanlega væri hægt að gera það með því að stöðva togara lengur um helgar o.s.frv., sem ég er ekki viss um að hefði orðið mjög vinsælt.

Þetta frv., sem hér liggur fyrir, er búið að fá mjög ítarlega meðferð og umfjöllun á þingum hagsmunaaðila. Þó að þeir eigi að sjálfsögðu ekki að ákveða það sem Alþingi síðan ákveður í þessum málum hygg ég, með tilliti til þess samstarfs sem verður að leggja áherslu á við þessa aðila, að rétt sé að hlusta á þeirra álit. Álit þriggja þinga er að miklum meiri hluta að halda eigi áfram kvótakerfinu í tvö ár. Aðeins eitt þing, með þó ekki miklum meiri hluta, lagðist gegn því. Það eru fleiri en Landssamband ísl. útvegsmanna sem mæla með frv. Það gera einnig sjómannasamtökin og fiskiþing þar sem um blandaða samkomu fleiri aðila er að ræða.

Ég hef því ákveðið að fylgja þessu frv. í þeirri trú að þannig náist breiðust samstaða yfir landið um mjög mikilvæga stjórn fiskveiða. Þess vegna fylgi ég frv. Ég skammast mín alls ekki fyrir það þótt ég sé ekki kvótamaður. Ég tel svo mikilvægt að ná sem breiðastri samstöðu yfir landið. Ef nú yrði ákveðið hér á hinu háa Alþingi að taka upp skrapdagakerfið að nýju, þrátt fyrir þessar samþykktir hagsmunaaðila, hygg ég að fram undan væri stríð, sem við sæjum ekki fyrir endann á, í þessum málum.

Ég vek einnig athygli á því að það hafa verið gerðar ýmsar breytingar á þessu kerfi frá því að það var tekið upp á síðasta ári. T.d. er nú boðið upp á sóknarmark sem að mínu mati er miklu aðgengilegra en kvótakerfið. Ég get nefnt dæmi um menn úr mínu kjördæmi sem hafa kosið sóknarmarkið og eru tiltölulega ánægðir með það. Ég vildi nota tækifærið og mæla með því hér að sem flestir útvegsmenn, sem kunna að frétta af mínum orðum, skoði sóknarmarkið. Ég held að það sé athyglisverð leið sem er að nokkru leyti á milli kvótakerfisins og skrapdagakerfisins.

Einnig hafa á því frv., sem hér liggur nú fyrir, verið gerðar nokkrar mikilvægar breytingar. T.d. hefur 1. gr. frv. verið breytt frá því sem hún var í sinni upphaflegu mynd og er núna að mínu mati miklu aðgengilegri en þar var gert ráð fyrir. Sömuleiðis eru í frv. heimildir til að auka frjálsræði til veiða í ýmsum greinum eins og t.d. með línu og það tel ég mikilvægt að verði gert. Ég held að það eigi sem sagt að leita leiða innan ramma þessa frv. til að auka frjálsræði til veiða á ýmsum sviðum.

Ég vona að ég hafi gert grein fyrir minni afstöðu til þessa máls.