28.11.1985
Sameinað þing: 23. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1020 í B-deild Alþingistíðinda. (774)

Rannsókn kjörbréfs

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Borist hefur svohljóðandi bréf:

„Reykjavík, 28. nóv: 1985. Svavar Gestsson, 3. þm. Reykv., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að vegna setu 1. varamanns á Alþingi taki 2. varamaður Alþb. í Reykjavík, Grétar Þorsteinsson, formaður Trésmiðafélags Reykjavíkur, sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti, með ósk um að fram fari í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Ingvar Gíslason,

forseti Nd."

Bréfi þessu fylgir kjörbréf Grétars Þorsteinssonar og vil ég biðja hv. kjörbréfanefnd að taka kjörbréfið til athugunar, en á meðan verður fundi frestað í fimm mínútur. - [Fundarhlé.]