22.10.1985
Sameinað þing: 5. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 105 í B-deild Alþingistíðinda. (78)
32. mál, Tjarnarskóli
Menntmrh. (Sverrir Hermannsson):
Herra forseti. Tímans vegna og af öðrum ástæðum einnegin verð ég að halda mig við þær fsp. sem hér eru fram lagðar og leiði hjá mér að sinni af auðskildum ástæðum nýjar fsp. um mína persónulegu afstöðu til þessa máls eða á hvaða ráð ég hyggist bregða í framtíðinni vegna þessa máls.
Sem svar við 1. lið fsp. vil ég taka þetta fram: Heimild til þess að starfrækja skólann var veitt á grundvelli lýsinga og áætlana um starfsemina. Fyrirhuguð starfsemi skólans fór ekki út fyrir ramma laga og reglna um skipulag og innihald náms á grunnskólastigi og því þótti ekki ástæða til þess að ráðuneytið synjaði um heimild til starfrækslu skólans. Benda má á að þegar eru starfandi nokkrir einkaskólar með sambærilega heimild á grunnskólastigi, svo sem skóli Ísaks Jónssonar, Landakotsskóli og Hlíðardalsskóli.
Áætlanir stofnenda Tjarnarskóla um virkari tengsl skólans við atvinnulífið en tíðkast hafa í grunnskólum þóttu áhugaverðar og líklegt að tilraunir skólans á þessu sviði skiluðu árangri sem aðrir grunnskólar gætu nýtt.
Sem svar við 2. lið fsp. tek ég þetta fram:
Ekki er ljóst í hverju sú mismunun, sem hér er nefnd, á að vera fólgin, en hv. fyrirspyrjandi segir svo í 2. lið fsp.: „Telur menntmrh. rétt að ríkið stuðli að því að mismuna nemendum á grunnskólastigi með stofnun skóla af þessu tagi?" Framlag ríkisins til skólans er lægra en framlag ríkisins til almennra grunnskóla því að hér greiðir ríkið einungis föst laun kennara en ekki ýmis aukastörf, svo sem stjórnunarstörf, félagsstörf, forfallakennslu o. fl., eins og í öðrum skólum er tíðkað. Enn fremur tekur ríkið ekki þátt í að greiða kostnað af rekstri skólans eins og annarra grunnskóla.
Þegar rætt er um mismunun eins og hér er gert virðist spyrjandi gefa sér fyrir fram að Tjarnarskóli sé betri skóli en aðrir grunnskólar. Engar sönnur hafa enn þá verið færðar á slíkt, enda ókleift þar sem skólinn hefur aðeins starfað á annan mánuð.
Ég tek saman svar við 3. og 4. lið fsp. og er um þá þetta að segja:
Ríkið veitir Tjarnarskóla rekstrarstyrk sem nemur um 1 millj. 392 þús. kr. á ári miðað við verðlag í september s.l. Styrkurinn er miðaður við að þrjár bekkjardeildir séu í skólanum og nemendur alls 75. Jafngildir styrkurinn 3,6 mánaðarlaunum í meðallaunaflokki kennara. Kennslumagn á nemanda reiknast skv. þeim reglum sem gilda um grunnskóla á vegum hins opinbera. Skólagjöld fyrir börn sem stunda nám við Tjarnarskóla eru 28 500 kr. fyrir barn á ári. Ég hef þær upplýsingar frá fræðslustjóra Reykjavíkurborgar að styrkur borgarinnar við skólann felist í fríu húsnæði.
Sem svar við 5. lið fsp. tek ég fram að kennarar við Tjarnarskóla eru starfsmenn skólans en ekki ríkisins og því hefur ráðuneytið ekki upplýsingar um kjör þeirra, en gera verður ráð fyrir að þeim sé greitt skv. kjarasamningi kennara.