02.12.1985
Efri deild: 20. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1058 í B-deild Alþingistíðinda. (794)

117. mál, stjórnarskipunarlög

Haraldur Ólafsson:

Herra forseti. Það frv. til stjórnarskipunarlaga sem hér liggur fyrir er það viðamikið að ástæða væri til að fjalla mjög rækilega um það. Það hefur nú þegar verið drepið á mörg þau atriði sem ég hefði kosið að ræða og ætla ég ekki að endurtaka það. Ég vil einungis segja örfá orð vegna þess hve málið er mikilvægt og stórt. Ég held að í raun og veru sé það allt of stórt til þess að unnt sé að afgreiða það á nokkrum dögum. Þetta er reyndar mál sem snertir það starf sem fram fer að endurskoðun stjórnarskrárinnar og þar af leiðandi hljóta umræður í þinginu og umfjöllun um það í nefnd að vera til góðs eins, en ég vil taka það strax fram að ég er ekki tilbúinn að afgreiða þetta mál frá þinginu. Ég held að þetta sé eitt af þeim málum sem rétt sé að ræða, en síðan liggi það í salti og gerjist með mönnum. Vonandi verður hafist handa um að koma saman stjórnarskrá fyrir lýðveldið og þá hlýtur endurskoðun á 67. gr. og lögum sem tengd eru henni að koma til rækilegrar athugunar.

Það eru þó nokkur atriði hér sem ég vil minnast á og tel þess eðlis að rétt sé að íhuga miklu betur og úttæra miklu nánar en gert er í frv. Hv. 5. þm. Vesturl. hefur þegar bent á ýmis þau atriði, en ég held að það séu fleiri sem þyrfti að taka til skoðunar.

Það er í fyrsta lagi varðandi skilgreiningar á hugtökum. Þær virðast vera nokkuð óljósar í 1. gr. Það er talað um að öll verðmæti í sjó og á sjávarbotni innan efnahagslögsögu, svo og almenningar, afréttir og önnur óbyggð lönd utan heimalanda teljist sameign þjóðarinnar allrar. Eins og þegar hefur verið bent á er um að ræða það víðtæka skilgreiningu að ég held að ekki verði komist hjá því að fara lagaleiðina að því að afmarka t.d. hvað verðmæti eru, afmarka svæðið utan heimalanda. Það er einnig um að ræða ekki aðeins séreign bænda á jörð eða annarra einstaklinga, heldur einnig og ekki síður yfirráðarétt, nytjarétt og í mörgum vafaatriðum eignarrétt byggðarlaga, hreppa og upprekstrarfélaga.

Þá er einnig spurning varðandi verðmæti á þessum slóðum. Er t.d. átt við að náttúruminjar, sérkennilegir steinar, jafnvel jurtir, hugsanlega fuglar, fuglsegg og annað slíkt, séu þjóðareign? Er hugsanlega átt við að það sé ríkið eitt sem fái að nytja slíkt utan mjög afmarkaðra heimalanda, jafnvel svo að slíkar eignir gætu orðið hagur ríkisins? Ég minnist þess að fyrir þremur árum var unnið talsvert að því að undirbúa menningarmálastefnu Framsfl. og þá kom fram sú hugmynd að ýmiss konar náttúruminjar, t.d. steinar, væru þjóðareign og ríkið hefði einkarétt á vinnslu og sölu slíkra steina. Þetta kom upp í sambandi við hið mikla steinanám sem erlendir ferðamenn hafa stundað hér á landi undanfarin ár. Einnig hefur komið fram sú hugmynd að ríkið t.d. tæki að sér sölu fálkaeggja og annaðist jafnvel uppeldi fálka til sölu. Mér finnst full ástæða til að íhuga slík atriði í sambandi við þetta mál.

En það er þó fyrst og fremst það að þó svo að grein eitthvað í þessa átt verði samþykkt er alls ekki búið að ganga frá afmörkunum þeirra landa sem um er að ræða. Það eru fjölmörg svæði á landinu sem deilt er um og ef slík grein yrði samþykkt á ég von á að hæfust mjög langar deilur og mikil málaferli um hvernig háttað væri eignarrétti á einstökum svæðum.

Þá er einnig eitt atriði sem tengist þessu og það er varðandi nytjaréttinn, t.d. beitarrétt sem ég vil kalla svo. Beitiréttur er orð sem mér fellur ekki alls kostar. Beitarrétturinn er vissulega nytjaréttur og það er spursmál hvort hann er ekki einhvers virði, eins og t.d. hefur komið í ljós í sambandi við virkjanir. Ég held að það hefði engu breytt hver talinn hefði verið eiga landið. Ég held að bætur fyrir slíka skerðingu á hlunnindum hljóti alltaf að koma upp. Það verða alltaf mjög óglögg mörk á milli nytjaréttar og eignarréttar.

Þá má einnig benda á að margs konar reglur um umgengni á landi þurfa alls ekki að vera háðar eignarréttinum. Það er langt frá því að setja þurfi almennar reglur um slíkt út frá eignarréttarsjónarmiðum. Það skiptir í sjálfu sér engu máli hvort um einkaeign er að ræða eða almenningseign. Það gilda þar ákveðnar reglur. Hvað snertir náttúruvernd og annað sem henni tengist skiptir það t.d. engu máli hver talinn er eigandi þess svæðis sem um er að ræða.

Ég held að það sé ekki komið að því að samþykkja slíka tillögu. Ég get í sjálfu sér fallist á að setja þurfi reglur um þessi efni, t.d. um námarétt og orku í fallvötnum. Ég tel sjálfsagt að mjög rækilega verði athugað með að setja mörk um hvert „eignarréttur“ á heitu vatni nær og ég get vel hugsað mér að sama verði gert um námarétt og það séu settar þrengri reglur um hann en nú eru í gildi. En þar sem þetta mál tengist endurskoðun stjórnarskrárinnar og ófrágengin eru fjölmörg atriði, og raunar vekur þessi grein, ef' að lögum yrði, tvímælalaust fjölmargar spurningar sem eftir er að svara, þá treysti ég mér ekki til að styðja frv, og teldi best að það yrði rætt en ekki afgreitt.