02.12.1985
Neðri deild: 22. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1070 í B-deild Alþingistíðinda. (800)
114. mál, endurmat á störfum láglaunahópa
Guðrún Agnarsdóttir:
Herra forseti. Ég mun ekki fara út í efnislega umræðu um þetta mál sem nú er flutt á Alþingi þriðja árið í röð en vísa í ræður okkar Kristínar Halldórsdóttur hv, þm. síðastliðin tvö ár í þessu máli.
Þetta mál er svo sjálfsagt að kanna og upplýsa að það er með eindæmum undarlegt að það skuli ekki hafa fengið framgang hér á þingi, hvað þá komist úr nefnd, og ég velti því fyrir mér af hverju þessi fyrirstaða stafar. Vilja þingmenn ekkí stuðla að því að leiðrétta það launamisrétti sem konur búa við? Hvað óttast þeir? Hvaða tregðulögmál ræður hugsunum þeirra og gerðum? Ég skora á hv. þm. að vakna nú af hægum blundi sínum svo að þeir geti orðið vitni að þeirri hreyfingu í þjóðfélaginu sem er meðal kvenna og þeim háværu kröfum sem þær gera um leiðréttingu á kjörum sínum og stöðu. Hv. þm. eru fulltrúar nútímans, ekki fortíðarinnar. Þeir hljóta því að verða að svara kröfum tímans. Því hvet ég þá til að tryggja þessu máli brautargengi í þinginu. Allt er þá þrennt er.
Umr. (atkvgr.) frestað.